Brotið var viljandi en mér finnst að hann hafi ekki getað komist hjá því að stíga á hann eins og hann gerði. Þetta lýtur samt illa út þegar þetta er sýnt hægt í imbanum….
Miðað við hvað miðjuspilið hjá enska landsliðinu er oft hugmyndasnautt finnst mér skrýtið að kappinn fái nánast enga sénsa, því þegar hann fær að spila hjá Real þá er hann yfirleitt að gera fína hluti…
Miðað við spilamennsku liðsins í síðustu leikjum og vitandi að “hákarlar” eru að ná sér eftir meiðsli, hef ég ekki trú að að það verði verslað neitt á þessum bænum í janúar.
Það er ekkert sem heitir plastþrenna og bara barnalegt að vera að halda því fram. Houllier hefur komið með nýtt blóð í enska boltann sem og Wenger. Án þeirra væru Vieira og fleiri kallar ekki í enska í dag.
Ætli hann viti það ekki betur en þú að lykillinn að einhverri uppbyggingu er að hafa t.d. góða vörn og byggja út frá þeim grunni. Hvernig væri að sýna smá þolinmæði á erfiðum tíma í stað þess að reka góðan stjóra.
Ég spila helst í Ítölsku eða Ensku deildinni. Hef prófað Norsku, Skosku, Hollensku, Frönsku, Þýsku, Argentísku og Spænsku en enda alltaf í Ítölsku og Ensku því það eru lang skemmtilegastar.
Finnst þetta alltaf hafa verið svona, í fyrri útgáfum líka. Áhrifin af þessu verða minni ef spiluð eru mörg tímabil og skipt er um lið þegar maður er orðinn þreyttur og vill nýja áskorun í stað þess að byrja upp á nýtt og fara í gegnum sama pakkann.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..