AC MILAN hafa gefið út frá sér yfirlýsingu um að Andrei Shevchenko sé ekki á förum frá félaginu. Hann er einfaldlega ekki til sölu.

Shevchenko hefur verið að reyna að vinna sér aftur sæti í liðinu eftir meiðsli, en hefur átt erfitt uppdráttar þar sem Rivaldo og Inzaghi hafa farið gjörsamlega á kostum nú í vetur.

Samkvæmt slúðurblöðunum hafa það verið Man U. og Real Madrid sem hafa verið að reyna að krækja í snillinginn, en þau verða nú að róa á önnur mið.