Sammála því að allt of mikið er af agavandamálum í boltanum, ekki bara hjá Arsenal heldur mörgum liðum í deildinni. Eftir því sem tækninni fer fram og fleiri myndavélar eru notaðar við að taka upp leiki eru menn gómaðir hvað eftir annað við að gera eitthvað hálfvitalegt. Það sem gerist svo utanvallar er oft ekki skárra, freistingarnar eru allstaðar og ef menn gæta sín ekki eiga þeir á hættu að vera gómaðir með allt niður um sig….