Hversu margir af þeim sem að hér hafa tjáð sig skyldu hafa kynnt sér plaggið sem að hleypti þessu öllu af stað, þ.e. fjölmiðlaskýrsluna. Nú hef ég sjálfur ekki lesið hana í heild sinni en hef gluggað aðeins í henni og þar er margt sem að mér finnst athyglisvert með tilliti til laganna sem að voru sett í kjölfar gerðar skýrslunnar. kafli 6,3 í skýrslunni er svohljóðandi: “6.3 Kostir samþjöppunar Við mat á þeim úrræðum, sem til greina kemur að mæla fyrir um til að hamla gegn óæskilegum áhrifum...