Ég var að sjá myndbandið sem stöð 2 var að sýna, og þetta er bara ótrúlegt. Ég hef aldrei séð jafn hræðilegt myndband frá Írak…

En það var náð myndum þar sem hermennirnir koma að Íröskum hermanni sem að þykist vera dauður, ég man ekki hvernig þeir orðuðu þetta orðrétt en það var eitthvað í þessum dúr “Look he's pretending to be dead” svo skýtur hann hermanninn og segir “He's dead now”. Hermaðurinn var óvopnaður og var engin ógn.

Ég tel að það eigi að setja þennan hermann í ævilangt fangelsi fyrir þessa grimmd.