Ef við fáum upplýsingar um að lyfjafyrirtæki í Danmörku geymi hugsanlega efnavopn sem hugsanlega verði notuð hér á landi, gefur það okkur rétt til þess að sprengja hana í loft upp. Svo ekki sé talað um án þess að ganga úr skugga um að upplýsingarnar væru réttar. Í fréttum hef ég aldrei heyrt minnst á að lýðræðisleg stjórn eigi að taka við á eftir konunginum. Ég sá hins vegar fréttir um að tvö utanað komandi lönd, Bretland og Pakistan, hefðu komið sér saman um stjórnarskipun í Afganistan. Það...