Ég á svona JVC GR-D30 og get eignilega ekki mælt neitt sérstaklega með henni. Það er ekki mic tengi á henni. Það er ekki svona dæmi til að setja ljós á. Veit hreinlega ekki hvort það er almennt svoleiðis á JVC það er allavega á mörgum Sony vélum. Svo er þessi “Digital Color Night Scope” er algjört drasl. En ef þú ert bara að hugsa um verðið er þetta kannski allt í lagi. Þetta virkar allavega.
Þetta eru náttúrulega allt pælingar sem menn lífsins ættu að velta fyrir sér og kafa djúpt í þetta. Menn eins og Chelsea o.fl. ættu að lesa þetta með opnum huga og kafa dýpra í huga sinn til þess að öðlast hinn andlega skilning sem þarf til að átta sig á tilgangi lífsins. Hringur er lykilatriði í lífinu. Til eru margar kenningar um hringinn og Einfarinn benti á eina góða. Önnur gengur út á það að lífið sé einfaldlega kleinuhringur. Allir vilja komast í súkkulaðið en það geta aðeins fáir...
Fáránlega framsett grein og fáránlega bitur og heimskuleg svör. Mér finnst hvorki greinin né bullið sem ég er búinn að lesa í svörunum(reyndar ekki búinn að lesa öll) vera svaravert en varð bara að koma þessu á framfæri. kv. Verzlingur P.S. Ef einhver ætlar að vera fyndinn og segja að ég hafi sjálfur skrifað heimskulegt svar… hugsaðu 2var.
Nú veit ég ekki, ég veit ekki einu sinni af hverju ég er á þessu áhugamáli en gæti nokkuð verið að þú hafi gleymt að loka þarna neðasta else-inu… með } nei, líklega ekki, þú hefur örugglega bara ekki pastað því með… mátti samt reyna
Þakka fyrir mörg og skemmtileg svör. Efni greinarinnar hefur sannað sig oft á síðustu dögum og fólk í kringum mig er farið að pæla meira í þessu og taka eftir þessu meira. En þetta mun þó alltaf verða svona og er ekkert að fara að breytast. Dæmi frá þessari helgi sem einn af heitum stuðningsmanni kenningarinnar og reynslubolti í kvennamálum lenti í: 5 krakkar ætla í bíó. 1 stelpa 4 strákar. Strákarnir vilja allir fara í bíó, stelpan vill það ekki. Strákarnir grátbiðja hana að koma. Ég þarf...
Ég verð nú eiginlega að segja mína skoðun á nokkrum punktum þarna hjá þér. Ég er sjálfur nemandi í Verzlunarskóla Íslands. Þessir fordómar þínir út í Verzló eru mjög hlægilegir og heimskulegir að mínu mati. Hvers vegna segi ég það? Þú ert að tala um að skólinn sé meira fyrir krakka sem vilja sökkva sér í félagslíf heldur en nám. Þetta er alls ekki rétt. Það er mjög krefjandi nám í Verzló. Ég fór alveg easy gegnum allan grunnskólann með ca. 9 alltaf í einkunn. Í000 Verzló er þetta virkilega...
Shit, ég nennti ekki einu sinni að klára að lesa þetta, þetta var einum of mikið bull. Ekki ætla ég að rakka þig niður því ég veit að það eru 170 manns búnir að því nú þegar. Votta þér bara samúðar fyrir að hafa skitið upp á bak og verið rökkuð niður í skítinn. Svekkjandi!
Þetta mál er náttúrulega algjört bull út í eitt. Mínus voru búnir að gefa frá sér að þeir myndu allir vera edrú á tónleikunum og hafa aldrei hvatt til neyslu fíkniefna en það var greinilega ekki nóg. Þetta er náttúrulega frekar lélegt hjá Samfés að ætla að láta þá skrifa undir að hafa aldrei neitt fíkniefna. Ætli allir hinar hljómsveitirnar(Quarashi?) hafi skrifað undir þá yfirlýsingu og ef svo er, ætli það sé satt? Mætti semsagt Bubbi Morthens ekki spila á Samfés? Allir vita að hann hefur...
Já, þetta eru mjög áhugaverðar pælingar. Ég er búinn að rýna í þetta og hef fundið “trikk” sem má nota til að sanna þessa reglu og hyggst leggja fram fulla sönnun hér á næstunni.
Þetta er áhugavert efni sem er hægt að pæla soldið í og rökræða en hins vegar skýtur þú eiginlega áhugaverðar umræður í kaf með hörmulegri grein. Sorry.
Það er náttúrulega bara fáránlegt að fara fram á að það verði fylgst með því nákvæmlega hverju allir internetnotendur landsins eru að downloada. Þetta er ekkert að fara að gerast við þurfum engar áhyggjur að hafa af því. Svo kynnist maður oft hljómsveitum gegnum netið og fer og kaupir diskinn. Þar fyrir utan þá kaupir maður frekar íslenska tónlist en erlenda. Það er einfaldlega staðreynd að margir gera þetta. En erum við að borga stef-gjöld af öllum CD-R geisladiskum? Ég hélt að það hefði...
Þakka ykkur fyrir góð svör. Jæja, maður er búinn að redda sér premiere pro 7. En ég er ennþá ekki kominn að niðurstöðu með geymslu á gögnum. Ef ég tek upp af vélinni inná tölvuna þá verða nokkrar mínútur af efni að einhverjum nokkrum GB(DV PAL - Standard 48khz stillingin í premiere notuð). Ég get ekki farið að geyma mikið efni þannig það er alveg á hreinu. Er málið semsagt að geyma á spólum eins og þeir ágætu menn sem rituðu hér að ofan segjast gera? Tapar maður ekki bara gæðum með því að...
Ég er ánægður með þig að gera cm síðu en það er vissulega margt sem má bæta. Spá í að miðla smá reynslu til þín: 1. Þetta er cm síða, ekki satt? Hafðu þetta cm síðu. Hinn almenni cm áhugamaður kemur ekki inn á síðuna þína til þess að skoða myndir af vinum þínum og heldur ekki til að lesa 25 ástæður fyrir því hvers vegna á að leifa áfengi á vinnustöðum. Þeir koma til að lesa um cm og skoða drasl tengt cm. Fyrsta skrefið hjá þér er að gera cm síðuna þína að cm síðu. 2. Það næsta sem þú þarft...
Maður verður bara að halda áfram að bíða og vona. Er planið að það komi update fyrir nýja cm eða á íslenska deildin að verða hluti af 03/04? Maður reyndi nú einhvern tímann að standa í að mixa einhverja íslenska deild í 01/02 en það hafðist því miður ekki. Þá fékk maður að kynnast að þetta er meira mál en maður heldur. Ég vona að íslenskir cm spilarar sjái sóma sinn í því að hjálpa þér eins og þeir geta. Gangi þér vel kv. Gaur sem átti misheppnaða tilraun til að koma íslensku deildinni í cm3:)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..