Sæll verið gott fólk,ég kís þennan vetfang til þess að miðla,,,ja því sem ég veit með vissu vegna þess að trúðarnir á Mogganum þora ekki að leyfa sauðsvartum almúganum að tala.

Heimsendir er í nánd!Ég hef mjög ábyrgar heimildir um að heimsendir sé í nánd!Lokum gluggum,tjóðrum hesta og skepnur,lokum okkur inni og fyllum húsin okkar með dósamat ef að við viljum lifa,hafið ávalt byssur meðferðis og ekki láta sjást að nóttu til.

Ja þið spurjið hvaða heimildir,ég hef ekki svigrúm til þess að segja alla söguna en ég get látið ykkur vita það að að ég var á ferð í Hollandi í sumar og fór þar til spákonu,spákona þessi sagði mér að hana hefði dreymt ský,grátt ský sem nálgaðist sig og það táknar heimsendi samkvæmt fornum erlendum fræðum.Ekki meira með það en 12 dögum síðar dreymdi mig þennan sama draum!Að þetta gráa skuggalega ský væri að fara yfir allan heimin,hægt og rólega.

Seinna þetta sumar var ég staddur í Kópavogi,þá allt í einu féll ég í yfirlið ég gat hvorki hreyft legg né lið en sá samt út úr augunum,þar lá ég á gangstétt liggjandi með augun út í loftir og þar sá ég glitta í svona grátt ský á stjörnubjörtum himingeimnum fyrir ofan mig.Síðan þá hefur þessi sýn verið sterkari og sterkari og mig hefur dreymt hana oft en upp á síðkastið hafa undarlegar verur sótt í huga minn.
NÚ ER ÉG ALVEG HANDVISS UM AÐ HEIMSENDIR SÉ Í NÁND,takið spólur á leigu til að gera ykkar síðustu stundir ánæjulegar,kveðjið ástvini ykkar,gætið þess að allt sé tryggilega læst og byrðið ykkur með mat.

Ég mun gera fleiri greinar og láta ykkur vita af stöðuni hverju sinni.

Ekki segja að ég hafi ekki varað ykkur við!