Ég hef nokrrum sinnum í vetur lent í því að ef ég er að fara á pall þá hefur skíðagaur svínað fyrir mig, ég þarf að hægja á mér til að meiða hann og sjálfan mig ekki, ég missa hraðann, næ honum ekki upp nógu fljótt, ferðin ónýt. Og þessir gaurar eru ekkert endilega að fara á pallinn heldur eru þeir bara þarna einir. Þetta hefur aldrei gerst með snjóbrettamann(eða konu). Eru það bara snjóbrettamenn sem geta tekið tillit til hvors annars. Ekki hef ég verið að bögga þessa skíðamenn eitthvað....