Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Metnað, meiri metnað í skoðanakannanir (8 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Er ég sá eini sem sé að maður getur ekki verið tilbúinn til að eignast barn 21-24 ára samkvæmt könnuninni. Mér er sama þó þið sendið inn kannanir sem eru lítilvægar og ómerkilegar en ég vildi bara að allir sem senda inn kannanir myndu taka augnablik í að skoða hana áður en þeir senda þær inn, einnig finndist mér allt í lagi að svona gölluðum könnunum væri bara hent í ruslið og fólk fengi enginn stig fyrir þær. Sýnið smá metnað og áttið ykkur á að léleg skoðanakönnun angrar út frá sér og...

Óskin mín.... (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
ef aðeins ég fengi að ráða hvaða flokkar á forsíðu fara þá Ljóð og Púlsinn báða kæmu inn á áhugamálum bara ósk mín er það og ég vefstjóra um það bað að þetta færi inn á kork Robin Williams lék geimveru sem hét Mork þið megið ríma fyrir mér en á forsíðu það fer það ætti bara að vera hér eins og vera be

Dómar um spil og bækur (13 álit)

í Spunaspil fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Jæja ég ætla að endurtaka mig, ég sendi inn svipaða grein á korkinn fyrir stuttu og þó margir virðist hafa lesið hana þá hefur enginn komið með álit á hana, hvorki “frábær hugmynd” né “ömurleg hugmynd” bara ekkert, en svona fer oft fyrir korkgreinum. [týpískt, ég fór að líta á gömlu greinina mína og þá er búið að svara henni loksins eftir 9 daga - tekið jákvætt í hugmyndina] Væri ekki gaman að þegar einhver hérna kaupir sér nýja roleplaybók þá myndi hann taka að sér að skrifa dóm um hana...

Jarðgöng (12 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Oft er talað um jarðgöng eins og þau séu milli allra smábæja á landinu þegar staðreyndin er allt önnur. Jarðgöng væri hægt að gera á ýmsum stöðum þar sem raunverulega þarf á þeim að halda en Sjálfstæðisflokkurinn hefur notað þau til að kaupa kosningar, núna á að troða þriðju jarðgöngunum í kringum Ólafsfjörð og Siglufjörð þegar það eru ýmsir staðir sem þurfa á jarðgöngum að halda. Ég veit að margir hérna halda að jarðgöng séu helsti útgjaldarliður ríkisins en ég bið þá endilega að skoða...

Dauði persónu (6 álit)

í Spunaspil fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Rólpleiarar líta dauða persónu sinnar mismunandi augum, sumir eru bara “ókei, get ég fengið nýtt character sheet-þið haldið bara áfram, ég kem rétt strax aftur” og aðrir verða voðalega sárir, sumir hafa ekki lent í þessu. Mitt álit er að dauðinn sé nauðsynlegur í spilum, spennan hlýtur að hverfa ef dauðinn er ekki líklegur. Dauðinn á ekki að vera einfaldur, ég hef séð ágæta spilara hundsa það algjörlega þegar besti vinur þeirra er drepinn, skilja bara líkið eftir og hugsa ekkert um þennan...

Leiðir til að verða betri stjórnandi og spilari (3 álit)

í Spunaspil fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Leiðir til að verða betri stjórnandi og spilari (eitthvað tekið úr Arcane en ekki allt): Fyrir báða * Atburðir gærdagsins eru mun merkilegri en spilið. * Teningar er eitthvað sem aðrir hugsa um. * Fjöldi áhorfenda er það sem skiptir máli, smábörn og dýr eru góð til að skapa andrúmsloft, sérstaklega í horrorspilum. * Live action er best á almannafæri þar sem þú getur hrætt hinn almenna borgara. * Ef eitthvað gott er í sjónvarpinu þá er best að hafa kveikt á því á meðan, af hverju að taka...

Prúðuleikararnir, ekki bara fyrir börn (13 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég ætla aðallega að fjalla um Prúðuleikarana á tíma Jim Henson þó svo að margt af því sem þeir eru að gera núna mjög fínt. Ég hef orðið dáltið var við það hjá þeim sem eru yngri en ég, og jafnvel á svipuðum aldri, að þeir halda að Prúðuleikararnir séu bara barnaefni, sú ályktun er mjög röng. Jim Henson var snillingur, hann var bandarískur þó að Prúðuleikarnir hafi fyrst komið fram í bresku sjónvarpi, Henson hafði lengi þann draum að koma brúðum fyrir sjónir almennings sem skemmtun fyrir...

Frábærasta skoðanakönnun til þessa. (8 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Fólk ætti aðeins að hugsa til þess að það er til fólk sem vill sjá niðurstöðurnar án þess að hafa áhrif á hlutföllin, þess vegna er gott að hafa stig möguleika eða hlutlaus. þessi skoðanakönnun öskrar að hún þurfi slíkan möguleika en samt var ekki hugsað til þess. Nú þegar hafa tveir karlmenn tekið þátt í könnuninni, annar segist stunda hreyfingu á meðgöngu og hin segist ekki gera það, síðan er spurning hve margar af konunum, sem greiða atkvæði, eru í stöðu til að svara þessu, eiga kannski...

Sýnið smá metnað í skoðanakönnunum (0 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Skoðanakannanirnar á Huga eru ekki stórkostlegar og alls ekki vísindalegar en samt finnst mér að fólk ætti að vanda sig við gerð þeirra, líklega er versta skoðanakönnunin sem ég hef séð könnun um hver sé besta útvarpssöðin, þar eru líka möguleikarnir “Rass 1” og “Rass 2”, hvers vegna var þetta samþykkt? Mér finnst að svona skoðanakannanir ætti að senda aftur til sendanda og segja honum að þetta sé óviðunandi. Ég veit að það eru ekki allir sem hafa lært eitthvað um gerð skoðanakannanir og...

Skattar (66 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég hef lengi vel verið fylgjandi þeirri hugmynd að hafa lægri skatta á landsbyggðinni (mér er sagt að þetta sé gert í Noregi en ég veit það samt ekki), nú veit ég að höfuðborgarbúar byrja flestir að hneykslast á mér en leyfið mér að röksyðja þetta aðeins: Það er ekki neinum í hag að landsbyggðarfólk flytji á höfuðborgarsvæðið, alls ekki gott fyrir þá sem eru þar fyrir vegna þess að þessi öra fjölgun sem er þar í gangi er að eyðileggja fyrir þeim. Það er ekki gott fyrir landsbyggðina vegna...

Af hverju er þessi fáránlega tímaröð á myndunum? (22 álit)

í Sci-Fi fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Samkvæmt því sem Lucas segir í viðtali sem er á undan myndunum sem ég á þá skrifaði hann fyrst SW ESB og ROTJ sem eina langa sögu, þar fyrir utan þá var hann líka búinn að skrifa forsögu og hvaðan persónurnar komu. Lucas hélt að hann gæti aldrei gert allar myndirnar þannig að ákvað að gera fyrsta hlutan en síðan þegar það gekk upp þá ákvað hann að gera hinar tvær, SW hét ekki Episode 4 A New Hope í fyrstu sýningarlotu, því var bætt inn seinna. Nú verð ég að minnast á það að Lucas er ekki...

Red Special (6 álit)

í Hljóðfæri fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég ætla aðeins að skrifa um gítarinn hans Brian May sem þið sjáið vonandi ennþá á fyrstu síðunni á Hljóðfæri. Fjölskylda hans hafði ekki efni á rafmagnsgítar eins og honum langaði í þannig að hann tók sig til með föður sínum og bjó til eitt stykki rafmagnsgítar úr m.a. gömlum arni og prjónadóti. Gítar þessi hefur mikið að gera með þann hljóm sem einkennir Queen, líklega er aðeins rödd Freddie mikilvægari. Hér fyrir neðan pósta ég nákvæmari sögu um gítarinn á ensku og ef þið hafið meiri áhuga...

Byrjendaörðugleikar (4 álit)

í Spunaspil fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það er skemmtileg grein í Storytellers Handbook (örugglega 1st ed) af Vampire eftir Mark Rein-Hagen (sem er upphaflegi höfundur V:TM). Í þessarri grein segir hann frá því einu fyrsta ævintýrinu sem hann samdi sjálfur og stjórnaði, þeir sem voru að spila með honum voru fjölskyldan hans, þar á meðal pabbi hans (sem er/var prestur hef ég heyrt). Í ævintýrinu áttu spilararnir að brjótast inn í neðjansjávarhelli og finna eitthvað, í leiðinni áttu þeir að finna spæjarann James Bond sem var fangi...

Woody Allen og Friends (34 álit)

í Gamanþættir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég efast um að margir hafi tekið eftir því en Friends hefur fengið ýmislegt “lánað” frá meistara Woody. Besta dæmið er náttúrulega samsvörun milli karakters Woody Allen í Manhattan og Ross. Í Manhattan leikur Woody náunga sem á í ýmsum vandamálum með ástarlíf sitt, hann er tvískilinn, fyrrverandi konan hans yfirgaf hann fyrir aðra konu og þær alla saman upp barn sem persóna Woodys á. Annað sem minnir á Ross er að í myndinni þá á Woody Allen í sambandi við stúlku sem er miklu yngri en hann og...

Matrix Meiðsl (19 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Bæði Carrie Anne Moss og Keane Reeves hafa slasað sig við æfingar á the Matrix 2. Það er ekki nákvæmlega vitað hvað er að honum Keanu, kannski að hann hafi tekið of mikið af þessum vímuefnum sem hann minntist á í nýlegu viðtali, maðurinn er víst í gifsi. Carrie Anne Moss meiddist á hnjám og þarf að vera á hækjum í 6 vikur. Hvað getum við lært á þessu? Látið aftvinnumennina um bardagalistirnar.

Húmorspil (8 álit)

í Spunaspil fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það er stundum gaman að leika sér og þá eru til nokkur spil sem hjálpa manni, mér dettur strax í hug Paranoia, Macho Women With Guns og GURPS Goblins. Ég hef ekki spilað þessi fyrra tvö spil og hefði gaman af því að heyra um þau (ég hef að vísu heyrt margt um Paranoia). GURPS Goblins var örugglega klikkaðasta sem ég hef spilað, þú ert að spila goblin en ekki svona týpaskan AD&D goblin. Þessir búa í London um miðja 18du öld, þeir lifa erfiðu lífi, meðal þess sem hefur áhrif á persónusköpun...

Sá eðlilegi og svo sá brjálaði. (8 álit)

í Spunaspil fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég hef svona tvisvar spilað Kult, þótti það ókei en einu sinni þá náði ég alveg frábæru samspili með meðspilara mínum. Allir kannst við lögguparið týpaska sem er frægast úr Lethal Weapon, það er sá eðlilegi og þessi klikkaði, ég og félagi minn bjuggum til lögguteymi sem var aðeins öðruvísi en frumtýpan. Ég var sá brjálaði, raunverulega brjálaður þetta var dark secret hjá mér, ég var hins vegar sá sem átti fjölskylduna, eðlilegi félaginn var einhleypur og alveg fullkominn. Við náðum oft alveg...

Uppáhaldsþátturinn (23 álit)

í Gamanþættir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það væri að mínu mati gaman að rifja upp skemmtilega þætti ef fólk myndi nefna sína uppáhaldsþætti eða þátt af Friends. Minn uppáhaldsþáttur er líklega “The One With Chandler in a Box”, Chandler fer í kassa til að sýna Joey hve mikils virði vinátta þeirra er. Monica fer út með syni Richards. Það kemur í ljós að Rachel stal beini af safninu hans Ross til að minnast fyrstu nánu kynna þeirra. Joey við Gunther: “Have you seen Chandler?” Gunther: “I thought you were Chandler. One of you is over there”

3 frábærir gamanleikarar og þrjár frábærar myndir (13 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
LA Story, Steve Martin með sitt meistaraverk, tilvísanir í Shakespeare, Woody Allen og Monty Python. Quote: Harris Telemakker:“The sign spoke to me, said I was in trouble” Trudy:“If your talking to signs, then you are in trouble” Annie Hall, meistarverk Woody Allen, ein besta ákvörðun sem ég hef tekið varðandi kvikmyndir var að taka þessa mynd og láta til hliðar alla fordóma um Woody Allen. Quote: Duane: Can I confess something? I tell you this as an artist,I think you'll understand....

Galdrar og Galdrahlutir (13 álit)

í Spunaspil fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Og aftur fer ég að skamma ykkur fyrir að nýta tækifærin illa. Er hópurinn þannig að hver einasta á galdrahlut, eða nokkra? Eru þeir orðnir ómerkilegir og óspennandi. Mér finnst að galdrahlutir eigi að vera spennandi og sjaldgæfir. Galdrar eru yfirleitt óspennandi og ég kenni AD&D um. Eru galdrar daglegt líf lærirðu nýja galdra eins og ekkert sé, kannski með að finna bækur á ótrúlegustu stöðum? Mage gerir þetta vel þó að það sé flókið, galdur er spennandi, óútreiknanlegur, mestu takmörkin eru...

Jesus Christ: Lust for Glory (13 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Fáir kannast við þennan titil sem átti að nota á Life of Brian,. Ég var að horfa á þessa snilldarmynd, hún er æðisleg á svo mörgum sviðum. Sjálfsmorðssveit Þjóðvarðarsveitar Júdeu er eitt af upphaldsatriðunum mínum og síðan er það atriðið þar sem lærisveinarnir skiptast í ólíka trúarhópa. Monty Python hópurinn gerði svo mikið fyrir gamanmyndir, þið fáu sem hafið ekki sér neitt ættuð að líta á þær.

Léleg skoðanakönnun (11 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já á himnum: 0% Já í helvíti: 0% Sálin flyst inn í annan líkama barns sem fæðist: 33% Nei maður rotnar og allt slokknar: 67% Í fyrsta lagi myndi ég segja að Himnaríki/Helvíti væri hluti af sömu trúnni, öðru lagi þá er þetta mjög takmörkuð sýn á trú á Endurholgun þar sem sumir trúa að þeir verði dýr eða eitthvað annað. Það ætti að vera möguleiki:“Maður fer inn á annað svið”. Og fullt af öðru, til dæmis hið augljósa “Ég veit það ekki”. Ef þið eruð á annað borð að gera skoðannakannanir þá ættuð...

Davíð Oddson Sjálfstæðisflokkurinn (6 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Mér finnst alltaf áhugavert hvað Davíð er vinsæll, og að hann skuli vera sífellt kosinn maður ársins og hvaðeina, maðurinn hefur verið í mörgu en það eina sem hann hefur í raun gert er að reisa minnisvarða um sjáfan sig, athafnir eru í raun engar, maðurinn hefur ekkert gert. Davíð mun ekki skilja eftir sig nein spor Á Íslandi er einn stór flokkur hægrimanna en vinstri menn eru sundraðir, hvers vegna er það? Mín kenning er sú að hægri menn á Íslandi hafi þann hæfileika að fylgja foringjanum í...

Mannanöfn (44 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
<a href=http://brunnur.stjr.is/interpro/dkm/dkm.nsf/5bce9616df3b107a00256583003c1872/25bcc0b88cd23fda0025668a00607d96?OpenDocument“>Mannanafnanefnd og upplýsingar um hana og reglur hennar</a> Ég var að skoða síðuna sem ég nefni hér fyrir ofan og mér finnst þetta ægilega sorglegt. Ein reglan er alveg sérstaklega glæsileg, ”Það má ekki vera þannig að það geti orðið þeim sem ber það til ama", ég ber nafn sem mér hefur verið strítt oft á þó svo að það sé leyft, nafnið er Óli (skóli, njóli,...

Ross þokkafyllstur í augum karla? (16 álit)

í Gamanþættir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
24 kusu Chandler og af þeim voru 10 karlmenn og 14 kvenmenn. 24 kusu Joey og af þeim voru 16 karlmenn og 8 kvenmenn. 8 kusu Ross og af þeim voru 8 karlmenn og 0 kvenmenn. Chandler er greinilega vinsælastur meðal kvenna, yfir 60% atkvæði þeirra, Joey með þriðjung fylgis síns frá konum en tvo þriðju frá körlum en Ross með örfá atkvæði, bara frá körlum. Er þetta í samræmi við það sem kemur fram í þáttunum?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok