Ég hef svona tvisvar spilað Kult, þótti það ókei en einu sinni þá náði ég alveg frábæru samspili með meðspilara mínum. Allir kannst við lögguparið týpaska sem er frægast úr Lethal Weapon, það er sá eðlilegi og þessi klikkaði, ég og félagi minn bjuggum til lögguteymi sem var aðeins öðruvísi en frumtýpan.

Ég var sá brjálaði, raunverulega brjálaður þetta var dark secret hjá mér, ég var hins vegar sá sem átti fjölskylduna, eðlilegi félaginn var einhleypur og alveg fullkominn.

Við náðum oft alveg frábæru samspili en það náði hámarki klikkunarinnar þegar hitt lögguparið, sem við vorum að vinna með, var að stríða mér með því að reyna að plata mig til að halda að félagi minn væri að reyna við dóttur mína. Þeir voru með mig í bíl og óku fram hjá heimili mínu og þar sá ég bíl félaga míns, ég klikkast og segi þeim að stoppa en þeir vildu halda áfram að stríða mér, ég tók þá upp byssuna og skipaði þeim að stoppa, “nei, nei, þú skýtur okkur aldrei”, það var rétt hjá þeim, ég plaffaði í framrúðuna svo þeir neyddust til að stoppa. Ég var dreginn inn á teppið hjá stjóranum stuttu seinna en mig minnir að ég hafi útskýrt þetta með því að segja að ég hefði óvart hleypt af, slysaskot, hitt lögguparið fyrirgaf mér aldrei.
<A href="