Er ég sá eini sem sé að maður getur ekki verið tilbúinn til að eignast barn 21-24 ára samkvæmt könnuninni. Mér er sama þó þið sendið inn kannanir sem eru lítilvægar og ómerkilegar en ég vildi bara að allir sem senda inn kannanir myndu taka augnablik í að skoða hana áður en þeir senda þær inn, einnig finndist mér allt í lagi að svona gölluðum könnunum væri bara hent í ruslið og fólk fengi enginn stig fyrir þær.

Sýnið smá metnað og áttið ykkur á að léleg skoðanakönnun angrar út frá sér og eitrar heiminn, hver veit nema pirringur út í skoðanakönnun á Huga endi með því að einhver fremji fjöldamorð (já, ég veit að þetta er langsótt).

Ég held áfram að gagnrýna skoðanakannanir í von um að þær batni í kjölfarið, fólk byrji að skoða þær sjálft áður en það sendir þær inn.
<A href="