Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

ljufa
ljufa Notandi frá fornöld 44 ára kvenmaður
192 stig

Re: Shrek - Mæli með henni

í Kvikmyndir fyrir 25 árum
Ég sá hana í gær og ég mæli líka með henni fyrir alla aldurshópa :)

Re: Hvað er að ykkur!?!

í Tíska & útlit fyrir 25 árum
Ég er alveg sammála, mér finnst það mjög sorglegt þegar fólk getur ekki hegðað sér eins og þroskaðir einstaklingar!

Re: Listin að ljúga

í Deiglan fyrir 25 árum
Ég er einmitt alveg ótrúlega lélegur lygari… maður ætti kannski að fara að æfa sig!!! :) Annars góðar ábendingar ef maður heldur að einhver sé að ljúga að sér :)

Re: draumar

í Dulspeki fyrir 25 árum
Vissulega er það rétt að það sem þú upplifir í vöku hefur áhrif á það sem þig dreymir. Hinsvegar er það þannig að það má flokka drauma niður í mismunandi gerðir, sbr. venjulegir draumar vs. martraðir… Til dæmis er svona orgy-draumur dæmigerður óskhyggjudraumur :) og ef þú hefur áhyggjur af einhverju er mjög líklegt að það komi fram í draumi… En svo eru líka svona draumar þar sem líkaminn eða undirmeðvitundin er að koma til þín einhversskonar skilaboðum. Sem dæmi má nefna að ef þú borðar mjög...

Re: Nice guys, why last?

í Rómantík fyrir 25 árum
Ég held að þessi kenning “nice guys finish last” sé ekki alrétt! Svona nice-guys þurfa bara að finna nice-girl. Það er auðvitað rétt að margar stelpur leita í “vonda” stráka, en það eru bara alls ekki allar… Svo getur það ekki verið að margir nice-guys séu bara að horfa á vitlausar stelpur? Ég á nokkrar vinkonur sem þurfa alltaf að vera með svona töffaratýpum og þær enda alltaf uppi særðar! Persónulega finnst mér betra að láta koma vel fram við mig en illa! svo bara go niceguys :) Kveðja, Ljúfa

Re:

í Heimspeki fyrir 25 árum
Snilldarpæling :) Ég er mjög oft sammála því að “fólk sé fífl” en hinsvegar eru einstaklingar bestu grey og ég held að meirihluti einstaklinga hafi nægilegt vit til að greina góðar hugmyndir snillinga frá lélegum hugmyndum ! Kveðja, Ljúfa

Re: Fartölvur

í Skóli fyrir 25 árum
Mér gekk svo þúsund sinnum betur að glósa og fylgjast með og allt það eftir að ég fékk fartölvu (2 ár síðan). Maður er auðvitað miklu miklu fljótari að glósa og nær þessvegna öllu sem kennarinn segir og getur glósað betur. Svo þegar kemur að prófum þá á maður allar glósur snyrtilegar í tölvunni… Ég get ekki hugsað mér að taka aftur upp eitthvað stílabóka-system… Ég allavega mæli með fartölvunotkun :) Kveðja, Ljúfa

Re: Bölvanir

í Dulspeki fyrir 25 árum
Bölvanir eru ekkert grín svo ef að þú veist ekki hvað þú ert að gera… Ég myndi allavega passa mig! Kveðja, Ljúfa

Re: velta

í Dulspeki fyrir 25 árum
Hús og bílar tákna rosalega oft fólk. Ef þetta var bíll móður þinnar þá skaltu passa þig á hvernig þú kemur fram við hana í náinni framtíð til að særa hana ekki! Kveðja, Ljúfa

Re: Á flugi!

í Dulspeki fyrir 25 árum
Ég hef alltaf fulla stjórn á fluginu og get farið hvert sem ég vil og gert það sem ég vil. Svona flugdraumar eru uppáhaldsdraumarnir mínir því þegar maður flýgur þá streymir svona góð tilfinning um mann allan… kannist þið ekki við það? Ljúfa

Re: Þetta orð

í Djammið fyrir 25 árum
Mér finnst alveg sjálfsagt að skella mér “á djammið” án áfengis. Ég fer aðallega á djammið til að dansa og hitta fólk. Ef maður sleppir áfenginu getur maður verið á bíl og sleppir við að borga fullt af peningum í leigubíla! En auðvitað er stundum gaman að fá sér í glas!!! Kveðja, Ljúfa

Re: Kannast einhver við þessa dularfullu veru?

í Dulspeki fyrir 25 árum
Lýsingin hljómar nú mikið eins og lýsing á möru…

Re: Eru mínípils málið?

í Tíska & útlit fyrir 25 árum
Það gæti nú alveg verið flott (kannski ekki alveg minimini en svona aðeins styttri en þessi sem eru búin að vera!), en þó að ég hafi getað verið í stuttum pilsum fyrir ca 4 árum þá held ég ekki að ég sé neitt á leiðinni í svoleiðs á næstunni!!!

Re: þýðing

í Dulspeki fyrir 25 árum
Þú verður eiginlega að segja meira frá draumnum til að hægt sé að skilja hann almennilega! Varst þú þar, hvernig leið þér, hverjir aðrir voru þar, hvað gerðist, hvernig endaði draumurinn??? o.s.frv. Annars myndi ég segja að svona óveður væri fyrir erfiðleikum, annaðhvort í nútímanum eða þá í nálægri framtíð. Endilega segðu okkur meira frá draumnum :) Ljúfa

Re: Stormur

í Ljóð fyrir 25 árum
Mjög flott :)

Re: Hára-fár

í Kettir fyrir 25 árum
Ég á við svipað vandamál að stríða, ein kisan mín (ég á tvær) fer svo rosalega úr hárum að í hvert skipti sem maður fer út úr íbúðinni þá þarf maður að fara yfir fötin sín með svona límrúllu til að líta ekki út eins og kisuháraflóki! En svo fékk ég mér svona apparat sem er svona hanski, með svona einhverju gúmmídóti lófameginn og ef ég nota hann á kisuna mína, þe strýk henni með því og tek þannig lausu hárin, þá minnkar hárlosið mjög mikið! Ég fékk þessa hanskagreiðu eða hvað maður á nú að...

Re: Pearl Harbor

í Kvikmyndir fyrir 25 árum
Ég er reyndar ekki búin að sjá hana, datt ekki í hug að fara á hana í bíó, en ég á hana á vcd og er að spá í að horfa á hana við tækifæri ef ég fæ mig til þess :)

Re: Tölvuleikarar

í Kvikmyndir fyrir 25 árum
Það er náttúrulega nokkuð svalt að hafa svona tölvuleikara en það mun alltaf vanta eitthvað við svoleiðis leikara, svona eitthvað persónulegt. Það líka bara hefur sýnt sig að fólk vill meiri raunveruleika (sbr. Survivor og þessa þætti sem eiga að vera 100% real). En það er frábært að hafa val og meiri fjölbreytni. Ljúfa /all real

Re: Af hverju erum við þau sem við erum?

í Heimspeki fyrir 25 árum
Það segir nú einhversstaðar að fjórðungi bregði til móður, fjórðungi til föðurs, fjórðungi til fósturs og nafnið segi til um fjórðung. Þannig að skv því segja genin til um helming, uppeldið 25% og nafnið 25% (kannski sálin falli inn í þann part?). En þangað til ég er búin að fatta tilgang lífsins eins og jonpall þá læt ég mér nægja að vita að ég veit ekki allt og kannski þegar sálir eldast þá læra þær allt sem hugurinn girnist að vita :)

Re: Er guð sem enginn trúir á til?

í Heimspeki fyrir 25 árum
Takk fyrir ábendinguna Frostwolf, ég gleymdi alveg að hugsa út í að guð skapaði heiminn :) En ég var nú samt meira að meina svona að ef guð er bara hugmynd mannanna og heimurinn varð til án aðstoðar guðs… En þrátt fyrir þessar pælingar ég trúi samt á guð (sem svona alheimskraft ef það má orða það þannig)

Re: Draumur: Blóð á fötum úr öðrum - martraðir

í Dulspeki fyrir 25 árum
Ef þig er alltaf að dreyma illa þá gæti verið sniðugt hjá þér að hugsa aðeins betur um sjálfa þig (þ.e. ef það er málið), ég veit t.d. um nokkra sem dreymir alltaf illa eftir að hafa borðað þungan mat rétt fyrir svefninn. Ef þú ert með endalaust með miklar áhyggjur (þunglyndi gæti alveg tengst því svosem) þá endurspeglast þær líka í draumum þínum. Annars er líka til í dæminu að þetta séu bara einhversskonar fyrirboðar! Ef þú heldur að þetta tengist þunglyndi þá stafar þetta eflaust af því....

Re: Pearl Harbor

í Kvikmyndir fyrir 25 árum
Já en hún er samt sagnfræðilega merkileg og hjálpar manni að læra sögu! Maður verður að þekkja sína sögu :)

Re: Friends eru bara asnalegir!

í Gamanþættir fyrir 25 árum
Þú afsakar en mér finnst það bara hrein heimska að halda að eitthvað sé alveg eins og í einhverjum sjónvarpsþáttum eða bíómyndum!!! Ég hef verið í NY hálft ár og ég skemmti mér frábærlega! Og fyrir vikið finnst mér enn meira gaman að horfa á friends því að ég hef komið á fullt af þessum stöðum, eins og t.d. þegar er sýnt frá central park o.fl… Friends er náttúrulega bara þáttur en í mínum augum alveg frábær þáttur, mjög skemmtilegur og góð afþreying og alveg einstaklega gaman að horfa á hann...

Re: Hvenær er nóg nóg?

í Rómantík fyrir 25 árum
Mér sýnist þetta bara ekkert vera að ganga hjá ykkur svo að því fyrr sem þið bæði áttið ykkur á því því betra. Því um leið og þið gerið það getið þið haldið áfram með lífið og fundið hamingjuna aftur. Gangi ykkur vel Ljúfa

Re:

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Nákvæmlega! Það lítur út fyrir að margir hafi misskilið merkingu orðsins, ekki seinna vænna að útskýra þetta :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok