Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Golfferðir. (5 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Kæru golfarar. Ég verð nú að segja það að golfferðirnar sem eru hér boðnar á landi eru alltaf að fara hækkandi. Reyndara er verðið svo hátt að ég skil ekki í nokkri lifandi manneskju að bóka sig í golfferð. Ég kíkti aðeins á ferðirnar sem voru boðnar upp hjá Úrval útsýn. Ég verð nú að segja það að ég fékk hálfgert sjokk. 13 daga ferð til Islandia merð ótakmörkuðu golfi og kvöld og hádegishlaðborði kostar frá 160.000 kr án flugvallarskatta. Sjálfum finnst mér þetta vera aðeins of mikið verð....

Golfsett. (10 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sælir golfistar. Það sem ég ætla hér að tala um eru golfsettin sem við eigum. Persónulega á ég: Titleist 990 semi-blade járn, Cleveland sand og lobwedge, Callaway steelhead 3 fimm tré, Hawkey driver og Ping pútter. Það tók mig heillangan tíma að finna t.d. járnin sem ég nota núna. Ég var hálft ár að ákveða mig hvort ég skyldi fá mér Ping i3 eða Titleist. Á endanum valdi ég Titleist járnin vegna þess að ég einfaldlega fílaði þau betur en Ping i3 járnin. Þessi járn hafa nú hjálpað mér alveg...

Líflegar umræður! (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Mér finnst að ástæðan fyrir lélegri aðsókn sé vegna þess að við erum með ekkert líflegar greinar sem er ekkert skemmtilegt að lesa um. Satt að segja er ég vúin að fá nóg af þessum profælum um Tiger Woods, Sergio Garcia og fleirum ( þótt að sumir þeirra séu góðar). Málið er að reyna að finna eitthvað skemmtilegar frásagnir úr golfinu og einhvern stórviðburð. Dæmi um þetta er greinin hjá Sk8ter boy sem skrifaði grein um golfmót Huga.is. Mér sýnist að þónokkrir hafa þótt þetta áhugaverð og...

Þróun (5 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þróun golfkylfa hefur verið alveg rosaleg. Dæmi: Faðir minn keypti sér einhvern tímann Biggest big bertha fyrir nokkrum árum. Þá var hún talin alveg með roslegan haus, og ekki hægt að hitta ekki með henni. Svo eftir 3-4 fjögur er hún núna bara orðin lítil!!! Mér finnst nú að sumir hausar séu orðnir allt of stórir og tæknilegir að maður bara ruglast á þessu. Mér finnst nú að það ætti aðeins að fara að slaka á hjá þessum stórfyrirtækjum eins og Callaway, Taylor Made og Ping.

Aðferðir (10 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég hef verið að velta fyrir mér hvernig við getum fjölgað aðsóknum á golfið og fengið fleiri til að gera greinar og þess konar. Ég held að ef við myndum nú finna eitthvað sniðugt sem myndi nú auglýsa þetta áhugamál og fá fleiri hingað og skrifa. Einhverjar hugmyndir um þetta???

Að vera góður í Champ, eða ekki vera góður í Champ (51 álit)

í Manager leikir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég hef verið að spá í hvernig maður getur skilgreint sjálfan sig sem “ góðan ” í Championhip manager leiknum. Hvað er það sem þarf? Þarf að vinna deildina 5 sinnum í röð, og vinna líka meistaradeildina og bikarinn? Eða þarf bara að vera klókur í kaupum og vera kannski alltaf í toppbaráttunni og að leikmennirnir séu ánægðir ( líka stjórnin! ). Hvenær er það sem er hægt að segja að maður sé góður í leiknum? Bara að velta mér upp úr þessu.

Fíkni! (1 álit)

í Manager leikir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég verð nú að segja það að fyrir svona 3 vikum lánaði ég vini mínum champ leikinn. Eftir viku var ég að þjást, eftir 2 vikur var ég byrjaður að dreyma um að spila leikinn og eftir þrjár vikur var ég farinn að tala við mig sjálfan hvernig ég ætlaði að stilla liðinu mínu upp. Kannski er ég aðeins að ýkja, en málið er að hefur þetta gerst fyrir ykkur?

Að eiga sportbíl á Íslandi! (14 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Mér hefur stundum dottið í hug hvernig hægt er að eiga sportbíl og nota hana af alvöru. Þá er ég að meina að það er engin hraðbraut hérna sem hægt er að keyra á meira en 250 km hraða. Þegar ég er að meina sportbíl, þá er ég að meina SPORTBÍL. Dæmi um það er Ísólfur sem á Ferrari. Hann notar hann örugglega aldrei! Ég meina. Af hverju að kaupa sér sportbíl ef maður getur ekki notað bílinn í það sem hann á að vera notaður í: Að keyra hratt, eða fær maður bara eitthvað kick út úr því að eiga...

Plan 9 from outer space ( 195 og eitthvað ). (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég var að horfa á þessa mynd fyrir skömmu, en hún á að vera þekkt fyrir að vera “ versta mynd ” sem nokkurn tíma hefur verið gerð. Satt að segja er ég ekki sammála. Vissulega eru sum atriði alveg fáránleg og klippingin og leikurinn alveg mannkyninu til skammar, en það er eitt sem gerir hana alverg frábæra. Þessi mynd er örugglega ein af fyndnustu myndum sem ég hef séð! Það sem gerir hana svo fyndna er að öll mistökin sem sjást er bara fyndin. Dæmi um svona er t.d. þegar einn lögreglumaðurinn...

Dræm þáttaka í golfinu á Huga! (8 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég verð nú að segja það að þáttaka okkar í golfinu er ansi léleg. Dæmi: Greinar sem eru skrifaðar hér fá bara á milli 1-5 álit. Í bílum hef ég séð 150 álit og í vélbúnaði um 50 álit. Það sem ég er að segja er að við þurfum að ver meira “ active ” í þessu. Þið eruð örugglega sammála mér um þetta. Þetta er bara til hábornar skammar hvað við sinnum þessu lítið. Takk fyrir mig -Links

Æfingaaðstaðan í Sporthúsinu. (3 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Kæru golfarar. Á laugardaginn var fór ég og kíkti á nýju æfingaaðstöðuna í Sporthúsinu. Þar er tveir hermar. Ég prufaði báða hermana, og verð að segja að ég var mjög hrifinn. Hann sýndi alveg hvernig boltinn fór, vegalengd, snúning, myndavél ( hægt að sjá sveiflu sína )! og margt fleira. Svo kíkti ég á “ rangið ”. Það er eiginlega alveg eins, nema hvað að skilti er kkomin hliðin á hverjum bás og að það er búið að setja sérstakar rennur í hallann, þannig að boltarnir safnast fyrir í holdur og...

Landcruiser V100 (4 álit)

í Jeppar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Einn daginn fékk ég að prufa Landcruiser af þessari gerð ( dísil ) Þessi bíll er algört gersemi ( varð að segja það ). Hann er alveg rosalega þægilegur við keyrslu og eiginlega bara í öllu. Smá lýsing á bílnum: V8 dísil vél sem skila 202 hestöfl við 3.400 sn. á mín. Togið er 410 Nm við 1.400 til 3.400 sn. á mín. 4 diska bremsur ABS. Tölvustýrð vökvajöðrun. Cruise control. ETC-i loftinntak. Rafdrifin leðursæti. Ræsivörn. Fjarlægðaskynjari aftur í bíl, sem segir um hvað maður er nálægt...

Man Utd. (6 álit)

í Manager leikir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Já, núna er ég að spila Man utd í championship manager sem stendur. Þegar ég tók við liðinu þá krafðist stjórnin þess að liðið myndi vera í toppbaráttunni ( auðvitað!). Ég ákvað strax að ná mér í Mark Van Bommel úr PSV, en hann er algjör snillingur!. Mér gekk mjög vel í byrjun deildar. Var í fyrsta sæti 2 stigum á undan Arsenal. Bommel var að spjara sig en það sem kom mér á óvart var að Ryan Giggs var að brillera. Hann var alltaf með 9 og 10, en sárasjaldan 7 og 8. Í meistaradeildinni gekk...

Platon (6 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég var að koma úr heimspekitíma og við vorum að vinna verkefni um Platon. Það kom mér á óvart um frummyndakenningu Platons, eða hún hljóðar þannig að ef einhver lífvera myndi deyja þá myndu “eindir” lífverurnar skiljast að. Svo eftir nokkrar aldir myndu þær renna saman og mynda alveg eins dýr. Mér fannst þetta frekar áhugaverð kenning. Reyndar segir hann líka að það séu til tveir heimar: Okkar heimur eða “skynheimur” og til annar sem hann kallaði “frummyndaheimur”. Mér finnst þetta allavegna...

Hver er mesti heimspekingur sem uppi hefur verið? (0 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum

Hjálp!!! (5 álit)

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já. Ég er að fara að kaupa mér nýja tölvu vegna þess að mín gamla er að syngja sitt síðasta. Jæja hvað með það, en ég er búinn að sjá mörg góð tilboð hjá mörgum raftækjabúðum, en ég veit ekki hvað er gott og hvað er slæmt. Er einhver hérna sem getur ráðlagt mér hvar ætti að kaupa tölvu

Hvað hafið þið lækkað ykkur mikið í forgjöf í sumar? (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 7 mánuðum

Hvort ertu? Örvhentur eða rétthentur? (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 7 mánuðum

Plan 9 from outer space (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þið sem vitið ekki hvaða mynd þetta er þá er það alveg skiljanlegt vegna þess að hún er frá uþb. 1955. Þessi mynd er talinn vera lélegasta kvikmynd frá upphafi en satt að segja sá ég hana fyrst á Filmundi og hún er algjör SNILLD!!! Hún er svo illa gerð, leikararnir leika svo illa o.s.frv. að það er bara hlægilegt! Þótt að hún er talin lélegust af þeim lélegustu þá er eitt gott við hana. Hún er rosalega fyndin. Dæmi: Geimskip eiga að vera að svífa yfir nokkra hermenn og þegar geimskipin sjálf...

Kiðjabergsvöllur (4 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég Links var að spila Kðjabergsvöll um daginn. Ég verð að segja að í ár er hann alveg frábær!!! Flatirnar flottar, brautirnar mjúkar og fínar, teigarnir góðir og flottir bunkerar. Það sem ég er að meina er að hvetja ykkur að spila völlinn í ár og verðið er ekkert dýrt. Bara 1800 kr. 18 holur sem er ekki neitt! Endilega prufið hann og segið mér hort ykkur hafið líkað hann.

Goðððððððððður (3 álit)

í Húmor fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Það var einu sinn maður að spila golf á golfvelli einum. Þegar hann var að spila þar sló hann einu sinni kúluna lengst út í rassgat. Þegar karlinn er að leita að kúlunni sér hann rotaðann álf og kúlu hans hliðina á álfinum. Maðurinn notar lífgunartækni og nær að vekja hann til lífsins. Álfurinn: Góði maður. Þú bjargaðir mér og vegna þess ætla ég að gefa þér þrjár óskir. Maðurinn: Nei nei elsku elskan mín. Ég hef ekkert að gera með einhverjar þrjár óskir. Álfurinn: Þá skal ég bara gera það...

Heimsmeistari? (5 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Hverjir haldiði að verða heimsmeistari? Ég segi að Senegalar taki þetta vegna þess að þetta er mjög gott lið ( góð liðsheild ). Þeir eru með góða sóknarmenn og góða miðju og varnarmenn. Góður markmaður líka. Enginn þessara leikmanna eru ofdekröð BÖRN sem halda að þeir þurfa bara að koma inn á völlinn og halda að þetta mun vera mjög létt fyrir þá og nenna ekki að hreyfa sig. England eða Brasilía í 2 sæti. Þjóðverjar í 3 sæti Hvernig haldið þið að fari?

Hólmsvöllur (keflavík) (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Komiði sæl kæru golfvefnotendur. Ég var að spila í íslandsmeistaramótinu í holukeppni á Hólmsvelli (er í keflavík) og mér langar að segja frá hvað mér fannst um völlinn. Uhumm: Völlurinn í heild kom mér mjög á óvart. Ég bjóst við slökum velli, en þegar ég spilaði sá ég að það er ekki að dæma völl fyrirfram. Brautirnar voru góðar, flatirnar ágætar að mestu leyti nema á þriðju braut (Bergvíkin). Teigarnir fínir en röffin voru of há og þykk. Annars vegar í heildina í ágætis standi miðað við í...

Hvað ætlar þú að lækka þig mikið í forgjöf í sumar? (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 11 mánuðum

Góður þessi (7 álit)

í Húmor fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Einu sinni voru kanína og björn að ganga í skóg einum og þar fundu þeir allt í einu lampa. Þeir tóku hann upp, nudduðu hann og þá kom andi úr lampanum: ég er búinn að vera fastur í þessum lampa í nokkrar aldir, en vegna þess að þið frelsuðuð mig ætla ég að veita ykkur 3 óskir. Björnin steig fram og sagði: Ég vildi að það væru bara birnur í skóginum fyrir utan mig. Andinn varð að ósk hans. Þá kom kanínan: Jáh, mig langar í hjálm. Andinn varð að ósk hans og allt í einu var kominn hjálmur á...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok