Ég var að horfa á þessa mynd fyrir skömmu, en hún á að vera þekkt fyrir að vera “ versta mynd ” sem nokkurn tíma hefur verið gerð. Satt að segja er ég ekki sammála. Vissulega eru sum atriði alveg fáránleg og klippingin og leikurinn alveg mannkyninu til skammar, en það er eitt sem gerir hana alverg frábæra. Þessi mynd er örugglega ein af fyndnustu myndum sem ég hef séð! Það sem gerir hana svo fyndna er að öll mistökin sem sjást er bara fyndin.
Dæmi um svona er t.d. þegar einn lögreglumaðurinn tók upp byssu sína og ætlaði að benda á einhvern annan. Það eina sem var að var að byssan beindist að honum sjálfum!!! Annað sem var líka fyndið var þegar geimskipin voru sýnd sáust þræðirnir VEL sem héldu líkönunum.
Þið sem hafið séð hana eru örugglega sammála mér um þetta að þótt að hún sé alveg ömurleg, er hún alveg rosafyndin!!!
“ Þar sem koma fleiri en tvö tré, þar er skógur ”.