Þið sem vitið ekki hvaða mynd þetta er þá er það alveg skiljanlegt vegna þess að hún er frá uþb. 1955. Þessi mynd er talinn vera lélegasta kvikmynd frá upphafi en satt að segja sá ég hana fyrst á Filmundi og hún er algjör SNILLD!!! Hún er svo illa gerð, leikararnir leika svo illa o.s.frv. að það er bara hlægilegt! Þótt að hún er talin lélegust af þeim lélegustu þá er eitt gott við hana. Hún er rosalega fyndin. Dæmi: Geimskip eiga að vera að svífa yfir nokkra hermenn og þegar geimskipin sjálf sjást þá sér maður spottana sem halda líkaninu. Allavegna keypti ég DVD af henni og satt að segja er þetta einn af þremur bestu DVD diskur sem ég á af u.þ.b. 70 diskum.
Kaupið ykkur hann!!!
“ Þar sem koma fleiri en tvö tré, þar er skógur ”.