Ég er alin upp við það að djass sé bara eina tónlistin sem hlustandi er á. Pabbi og mamma hlusta bara á djass og nánast ekkert annað. Ég er búin að prófa allt mögulegt og alltaf dettur maður niður í djassinn. Ég var 7 ára þegar ég byrjaði að læra á hljóðfæri og er búin að prófa píanó, fiðlu, þverflautu og endaði að sjálfsögðu á saxafón. Mínir menn eru Stan Getz, Charlie Parker, Django Reinhard og fleiri og fleiri. Þetta er bara tónlist sem passar við öll tækifæri og hvenær sem er. Kveðja Lilja