Sýningin hjá Arctictrucks (Yamaha umboðinu) Sýningin hjá Arctictrucks (Yamaha umboðinu) sló svo sannarlega öllu við í mótorhjólasýningum. Þeir Arctictrucks menn eiga sko sannarlega hrós skilið fyrir flotta og vel undirbúna sýningu. Það voru um 30 hjól til sýnis hjá þeim um helgina. Krossarar, hippar, götuhjól, enduro auk fjórhjóla. Þessi sýning var fyrir alla fjölskylduna frá því að vera sýning var þetta einnig skemmtun. Yamaha menn buðu upp á myndatöku fyrir krakkana þar sem þeir settust á lítið fjórhjól og tekin var mynd sem krakkarnir fengu að eiga, einnig var þeim gefin Yamaha bolur. Eins og ég sagði hér áðan eiga þeir Arctictrucks menn hrós skilið og held ég að þeir verði eitt sterkasta umboðið á landinu. Ég vil þakka þeim fyrir frábæra sýningu og vonandi fylgja sýningar hjá öðrum umboðum í áframhaldi af þessari. Þeir eru allavena búnir að lofa öllu og hafa fjármagnið í þetta þannig að ég held að Arctictrucks muni verða mjög öflugt umboð. Vonandi fylgja sýningar í frammhaldi af þessari. Vildi t.d. að moto o.fl kæmi með sýningar (Gulli redda essu)

Kveðja,

Wiss

And Remember <a href="http://www.icemoto.tk"> www.icemoto.tk </a