Þannig er mál með vexti að syni mínum var að hlotnast ættbækur hundanna sinna, því miður könnumst við ekki við þessa hunda eftir þessum bókum, ég hringdi í ræktandann, og hann vildi ólmur fá að vita hvað væri vitlaust í bókunum, við létum það ekki uppi, sögðum að hún sem ræktandi ætti að vita hvaða hundar væru undan hverjum, hún endurtók sífellt,: Geturðu ekki sagt mér hvenær þeir eru fæddir og hvað foreldrar þeirra heita, ég neitaði henni um þessar upplýsingar, á þeim forsendum, að ég stóð við mitt, þ.e.a.s. búinn að greiða þá til fulls, og þá bæri henni að standa við sinn hlut. Ég ætla ekki að veita þeim nokkrar upplýsingar, en eitt er alveg makalaust að okkur finnst, þar sem rúm þrjú ár eru á milli þeirra, eru þeir þá ekki mjög skyldir, því þeir eiga sama afann annar í föðurætt og hinn í móðurætt, nú langar okkur til spyrja einhvern sem hefur vit á þessu, hvort þeir séu ekki náskyldir, og eitt að lokum, ég fór með þetta í neytendasamtökin, kveðja. Kristín.
Popo , the mighty one…