Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Sjálfsmorð

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Sagt er að fólk sem talar um það geri það ekki en fólk sem fremur sjálfsmorð er yfirleitt búið að gefa vísbendingar sem fólk kannski fattar ekki fyrr en eftirá. T.d. ganga frá sínum málum, kveðja og gefa frá sér hluti sem því þykir vænt um. Ef ég þekkti einhvern sem væri í þessum hugleiðingum, þá myndi ég hvetja hann eða hana til að fara til læknis, geðlæknis eða sálfræðings og ræða málin. Ef fólki líður mjög illa, þá hlýtur að vera hægt að fá það til að sjá að það er hægt að hjálpa því. Það...

Re: Pilluáminning

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvað um hormónastafinn? Ég sá þetta held ég á Stöð 2 þar sem ein konan var að fá sér svona. Dugar víst í 2-3 ár. Ég hef líka heyrt um að til séu sprautur sem eru gefnar á 3-4 mánaða fresti. Tékkaðu á http://www.persona.is/ht/Kynlif/Gamansaman/framtidgetna davarna.htm

Re: Fóstureyðingar og reykingar á meðgöngu

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Góður punktur. Þannig að um leið og hún ákveður að eiga barnið, þá er hún ábyrgð fyrir velferð fóstursins eins og það væri í rauninni orðið barn. Annars held ég að oft þegar stelpa fer í fóstureyðingu, þá er þeirri sögu ekkert endilega lokið fyrir hana. Hún getur séð rosalega eftir því. Það virðist líka vera frekar algengt að stelpur sem láta eyða verði óléttar fljótlega aftur og láti þá ekki eyða, hvort sem þeim finnst þær vera að gera einhverja yfirbót eða hvað.

Re: Sjónvarp óskast

í Heimilið fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér finnst að þú ættir bara að kaupa nýtt. Þú getur fengið 21“ í Sjónvarpsmiðstöðinni frá 28 þús. eða 20” frá 23 þús. og það er þá alla vega í ábyrgð. Tékkaðu verðin hjá ELKO og Raftækjaverslun Íslands líka. Allir sem ég þekki sem hafa keypt notuð sjónvörp hafa farið illa út úr því, þar á meðal ég.

Re: Einingarhús

í Heimilið fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Uppsetning á húsinu sjálfu kostar 2.000.000 skv. listanum í upphaflegu greininni en það er spurning hvort uppsetning á pípulögnum og rafkerfi sé innifalin eða að grafa og steypa grunn.

Re: Radar

í Hugi fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ertu að meina RADAR hjá Símanum? Það er þessi þjónusta sem hægt er að sjá hvar vinir þínir eru með GSM, sjá <a href="http://www.vit.is/html/is/entertainment_radar_is.htm"> http://www.vit.is/html/is/entertainment_radar_is.htm</a

Re:

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Sveitarfélögin reka skólana þannig að það er annað hvort sveitarfélagið eða skólastjórnirnar sem ráða þessu. Áslandsskóli tók held ég upp skólabúninga. Það þyrfti samt að vera samstaða um þetta hjá foreldrum. Alltaf einhverjir sem myndu ekki vilja vera með en með því að kaupa inn magn fyrir heilan skóla ætti að fást gott verð þannig að foreldrar væru að fá mjög ódýr föt á krakkana.

Re: Er hægt að gera HTML í greinum?

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er hægt í korkum og korkasvörum og greinum en <u>ekki</u> greinasvörum. Veit ekki alveg ástæðuna. Líkega einhver böggur.

Re: Einingarhús

í Heimilið fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Miðað við linkinn sem pollyanna sendi inn, ef það er dæmið sem þú ert að tala um, þá er grunnpakkinn án: Hreinlætistækja Gólfefna Raflagna Pípulagna Málningar Uppsetningar Uppsetning er svo í listanum sem þú telur upp en þá er eftir málning, pípulagnir, raflagnir, gólfefni og hreinlætistæki. Að vísu er raf- og pípulagnahönnun og efni innifalið en hefur þú kunnáttu og réttindi til að leggja þessar lagnir? Annars þarftu að ráða rafvirkja og pípara til að ganga frá því. Innifalið er líka:...

Re: Fóstureyðingar og reykingar á meðgöngu

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það sem stingur mig í þessu svari er þetta: “Það að stelpur séu á pillunni án þess að vera í föstu sambandi er alls ekki gott mál.” Nú er pillan lang öruggasta getnaðarvörnin. Þess vegna finnst mér bara eðlilegt að ef stelpur vilja koma í veg fyrir óléttu þá ættu þær að vera á henni. Af hverju er það ekki gott mál? Ef þú ert á móti pillunni af því hún sé óholl eða hvað, af hverju ertu þá ekki á móti henni líka ef fólk er á föstu? Hins vegar finnst mér líka að bæði stelpur og strákar ættu að...

Re: Briet.is

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
chacha: Það er jafnrétti á Íslandi. Það er ekki til í dag að stelpa geti ekki gert hvað sem hún vill, sama hvaða nám hún vill fara í eða hvaða starf hún vill vinna, það stoppar hana enginn af því hún hefur ekki typpi. Feministahreyfingin gerði sitt gagn á sínum tíma en nú er hún hreinlega orðin óþörf. Það “ójafnrétti” sem ennþá er eftir er vegna ákvarðana sem fjölskyldur taka, konan heima, karlinn að vinna eða konan að vinna 9-5 með höfuðábyrgð á börnunum og karlinn að vinna þá yfirvinnu sem...

Re: Einingarhús

í Heimilið fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Er inni í þessu að grafa fyrir grunni og steypa sökkul? Ég sé að efni til raflagna og pípulagna er inní en er uppsetning á því líka inní? Talaðu við fyrirtækið og hafðu þetta alla vega á hreinu áður en þú spáir í þessu meira. Svo er náttúrulega eftir eins og orvarjens segir að kaupa lóð og náttúrulega ganga frá lóð.

Re: Um skólabúninga...

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Farðu með þessa hugmynd í skólayfirvöld og tékkaðu hvað þeir segja.

Re: Ísland þriðja heims ríki??

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Já, það er alveg satt. Bestu læknarnir myndu líklega fara á einkaspítalana þar sem þeir geta grætt meiri pening og almenningur sæti eftir með ríkisspítala þar sem eru lélegir læknar sem sætta sig við léleg kjör. Hins vegar er þetta orðið svona að vissu leyti nú þegar. Flestir spítalalæknarnir eru með einkastofur líka og geta jafnvel boðið sjúklingunum að hoppa fram fyrir biðröðina með smávægilegar aðgerðir ef það er hægt að gera þær á stofunni. Þeir sem eru ekki ánægðir með launakjörin á...

Re: Ísland þriðja heims ríki??

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það væri kannski ekkert vitlaust að hafa einkaspítala líka þannig að þeir sem eiga pening fari þá út úr kerfinu en það verður þá að vera til þess að kerfið batni fyrir þá sem eru eftir í því, ekki að það sé tekinn meiri peningur út úr því. Nú þegar hefur fólk val um smáaðgerðir eins og t.d. kirtlatöku. Það er hægt að fá það gert á einkastofu og borga eða bíða í ca. ár og fá það gert á spítala. Að vísu borgar víst Tryggingastofnun einhvern hluta ef það er gert einka en mér finnst að þeir ættu...

Re: Ísland þriðja heims ríki??

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Bandaríkjamenn eru reyndar með sér kerfi fyrir þá sem eru aldraðir og fatlaðir (medicare) en hins vegar er þetta svo vitlaust kerfi að það er ekki nokkru lagi líkt. T.d. ef einhver er fatlaður, þá er best fyrir hann að fara ekki að vinna vegna þess að ef hann gerir það, þá missir hann sjúkratrygginguna. Hins vegar einhver sem er í láglaunavinnu og hefur ekki efni á að fara til læknis, ef hann verður svo á endanum óvinnufær og fer á örorku, þá fær hann loksins læknisþjónustu.

Re: Briet.is

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það að konan taki einhvern tíma að vinna sig upp aftur í starfi eftir 6 mánaða frí, það er jafnrétti. Ef hún þyrfti þess ekki, þá væru það forréttindi. Ég er ekki að segja að fólk eigi ekki að eyða tíma með börnunum sínum en hins vegar þarf það að skilja að það hlýtur að koma niður á vinnunni. Það verður ekki bæði sleppt og haldið.

Re: Ísland þriðja heims ríki??

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held samt að öll lönd sem hafa eitthvað heilbrigðiskerfi á annað borð séu í vandræðum með það. Ég veit að það eru líka biðlistar eftir aðgerðum í Danmörku, kerfið í Bretlandi er frekar svelt og í Kanada eru líka biðlistar og kerfið svo svelt að það er alltaf verið að tala um að leggja það hreinlega niður. Manni finnst að það hljóti að vera til betri leið til að reka svona kerfi en hún virðist bara ekki hafa fundist ennþá.

Re: Briet.is

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
*væl*væl*grát*grát* Þú segir að ábyrgð á heimilum sé ekki skipt jafnt. Það er alveg rétt en hins vegar er það ekki á ábyrgð neinna nema heimilanna að breyta því. Ég þekki fólk sem skiptir ábyrgðinni jafnt þannig að ég held að þú fáir mig ekki til að trúa því að það sé ekki hægt.

Re: Ísland þriðja heims ríki??

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Tekjutengd upphæð á mánuði er þá í rauninni bara aukaskattur sem fer beint í spítalana. Það er kannski betra en að hækka skatta almennt. Ríkið er svo gjarnt á að ráðstafa peningnum í eitthvað annað en hann átti að fara í. Svo er líka spurning hvort hægt sé að gera þetta ódýrar. T.d. í Kanada er tilvísanakerfi. Þú getur þá ekki bara pantað tíma hjá sérfræðing í meltingarsjúkdómum ef þú ert með magapínu heldur verðurðu að fara til heimilislæknisins fyrst sem er náttúrulega ódýrara fyrir...

Re: Forsetaembættið og þjóðsöngurinn

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér finnst fínt að hafa forseta. Þá hefur forsætisráðherra meiri tíma til að stjórna einhverju meðan forsetinn tekur á móti gestum og fer erlendis í veislur.

Re: Sniðug leið til að drepa simsa

í The Sims fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég man ekki hvenær flugeldarnir komu inn en ég er með Livin' it up, House Party og Hot Date og ég get keypt flugelda til að skjóta upp úti og allir verða voða happý eða skjóta upp inni og kveikja í.

Re: Briet.is

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held að þú hafir ekki verið að lesa það sem ég skrifaði. Ef karlinn og konan skipta ábyrgðinni á heimilinu jafnt þá geta þau bæði unnið yfirvinnu. Ég bara fatta ekki hvað þú þykist eiga bágt. Þú ert í rauninni alveg eins og kellingarnar á briet.is, bara í hina áttina. Björk, hin eina sanna, hafði þetta að segja þegar hún var spurð hvort það væri ekki erfitt fyrir konu að koma sér áfram í tónlistarbransanum: “Þessar kvenréttindakonur eru bara eins og fugl í búri. Fuglinn rosalega pirraður...

Re: vírusvarnir

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er frekar auðvelt. Þú getur bara keypt vírusvarnarforrit í tölvubúðum. Eða leitað á kazaa sem er náttúrulega ólöglegt o.s.frv. :)

Re: Dalsmynis ógeðið

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Dalsmynni er hundaræktarbú á Kjalarnesi þar sem aðstaða er ekki talin til fyrirmyndar. Kíktu á síðuna <a href="http://frontpage.simnet.is/jv1/">http://frontpage.simnet.is/jv1/</a> ef þú hefur áhuga.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok