Og ég spurði bara hvort karlar vinni eitthvað meira þó þeir vinni meiri yfirvinnu. Ég ætla að minna á það aftur að það er líka vinna að sækja krakkann á leikskólann, kaupa í matinn, elda, vaska upp, baða börnin og svæfa og annað sem konan gerir á meðan maðurinn er að vinna yfirvinnu. Og svo vil ég bara benda á það aftur að ef karlmaður heimtar jafnrétti á sínu heimili, þ.e. að hann komi til með að gera þessa hluti jafnt og eiginkonan, þá minnkar hans svigrúm til að vinna yfirvinnu og hennar...