Ég efast ekki um það að margir séu sammála mér þegar ég segi að það býr viðbjóðslegt fólk í heiminum í dag.

Nýjustu fréttir í máli stúlknanna tveggja sem týndust segja okkur að þær séu látnar að og að líklegast sé afbrotafólkið par sem vann í skóla þeirra.

Ekki nóg með að þetta mál hafi endað í harmleik (þó svo það sé í raun ekki ennþá búið - ég efast ekki um það að nánari lýsingar á þessum hryllingi eigi eftir að valda frekari óhug) heldur eru mörg önnur svona mál í gangi í heiminum, m.a. eitt sérstaklega ógeðslegt mál þar sem lítilli stelpu í Bandaríkjunum var rænt eftir að foreldrar hennar voru skotnir í höfuðið á heimili þeirra fyrir nokkrum dögum.

Hægt er að lesa nánar um þessi mál á bæði CNN.com og BBC.co.uk …

en það sem ég er að spá í er hvernig geta svona hlutir átt sér stað? Að drepa varnarlausar litlar stelpur er eitthvað sem mér finnst bæði viðbjóðslegt og óhugsandi. Ég get ekki einu sinni reynt að ímynda mér hvers konar martraðir þær hafa gengið í gegnum, og vil það helst ekki. Mér finnst það ótrúlegt að svona hlutir skuli eiga sér stað í heiminum í dag. Enn ótrúlegra finnst mér að manneskjur skuli geta framið þessi hryllilegu voðaverk.

Hvað er í gangi?!