Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Framkoma Lögreglunar í reykjavík

í Bílar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þá hafa þeir stoppað þig vegna undarlegs aksturslags eða þá að þeir sáu að þú sást ekki yfir húddið :)

Re: Schindler´s list

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég sá einhverja heimildamynd um Schindler og það var talað við sumt af fólkinu sem hafði unnið fyrir hann. Hann var greinilega mjög umdeildur. Sumt af fólkinu sem vann fyrir hann sagði að hann hefði ekkert verið neitt öðruvísi en aðrir verksmiðjueigendur á þessum tíma sem notuðu gyðinga sem ódýrt vinnuafl. Ég held að VW verksmiðjurnar hafi gert þetta líka og fleiri. Hins vegar var hann greinilega hetja hjá mörgum, var gerður að heiðursborgara í Ísrael o.s.frv. en það er spurning hvort hann...

Re: Framkoma Lögreglunar í reykjavík

í Bílar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er náttúrulega óþarfi hjá löggunni að vera með einhvern dónaskap og leiðindi en hins vegar voru þeir í fullum rétti að klippa af bílnum ef það var ekki búið að skoða hann. Líka að stoppa náungann fyrir hraðakstur. Það er eins og fólk gleymi því stundum að ef það gerir ekkert af sér, þá hefur löggan enga ástæðu til að skipta sér af því. Ég hef t.d. aldrei lent í neinum samskiptum við löggur. Þið getið náttúrulega alveg kært þetta en ég efast um að það fari langt. Þið væruð þá bara að eyða...

Re: Harmleikur

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hún var með forræði barnanna, barnsfaðirinn ekki inni í myndinni. Nýi kærastinn hefur líklegast ekki vitað að hún hafi skilið börnin ein eftir því hún hafði alla vega sagt einhverjum vini sínum að þau væru í pössun. Hún var alveg að gefast upp á að vera ein með börnin og hafði oftar en einu sinni sett þau í neyðardagvistun á vegum borgarinnar, allt upp í 3 daga í einu. Af hverju hún setti þau ekki þangað í þetta skipti í staðinn fyrir að skilja þau ein eftir fatta ég ekki.

Re: Íslensk nöfn?

í Hestar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er enginn skortur á hrossakjöti á Íslandi og margt hestafólk sér ekkert að því að éta þá. Eða eins og ein hestakona sem ég þekki orðaði það: “Sumir hestar eiga bara best heima í saltkjötstunnu” :)

Re: 11. sept hvað?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Sem kemur hvaðan? Úr fréttatilkynningum frá Ísraelsku ríkisstjórninni? Auðvitað segjast þeir hafa farið og skotið byssumenn. Ekki færu þeir að tilkynna það að þeir hafi farið að skjóta óbreytta borgara þó þeir virðist nú alltaf taka nokkra í leiðinni svona óvart ;)

Re: Nám á Íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jú, það er vegna þess að þeir Íslendingar sem eru svona innréttaðir fara til Danmerkur gagngert til að lifa á sósíalnum enda fá þeir miklu meiri pening þar heldur en hér. Danmörk er með rosafínt kerfi fyrir letingja :)

Re: Nám á Íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þvílíkt sammála. Svo eyðir það öllum þessum pening frá Danska ríkinu í að mennta sig í greinum sem er lífsins ómögulegt að fá vinnu við. Ég þekkti danskan strák sem var með 2 háskólagráður og var að vinna sem leiðbeinandi á leikskóla. Svo fékk hann nýja vinnu sem aerobic kennari :) Og það eru ekki einu sinni allir svo duglegir að bjarga sér. Kona sem ég þekki sem var atvinnulaus í Danmörku í smá tíma eftir nám sagði að hitt fólkið sem hún hitti á atvinnuleysisnámskeiðum, infæddir danir, voru...

Re: 11. sept hvað?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvaðan hefurðu það að meirihlutinn af þeim Palestínumönnum sem voru drepnir hafi verið byssumenn?

Re: Nú og þá

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Af hverju væri hann í verri aðstöðu? Þegar ég og bróðir minn hættum í skóla og vorum reknir út að vinna, þá fattaði ég alla vega hvað mig langaði ekki að gera og skildi hvað menntun er mikilvæg. Ég lærði líka að meta gildi peninga þar sem ég var látinn borga heim og þrátt fyrir það gat ég safnað alveg heilmiklu á þessum 2 árum sem ég var að vinna sem nýttist mér aftur vel þegar ég fór aftur í skóla. Það að leyfa krökkum að liggja uppí sófa allan daginn gerir þeim sko ekkert gott. Þau verða...

Re: Dauðarefsingar og Lífstíðardómar

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Án þess að ég sé nokkuð viss um þetta, þá held ég að ef hann er alríkisfangi og fer fyrir alríkisdómstól, þá megi þeir dæma hann hvað sem þeir vilja. Þeir hefðu hins vegar kannski ekki getað tekið hann af lífi í Vermont, heldur þurft að flytja hann eitthvert annað.

Re: Nám á Íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
“Samkvæmt nýlegri rannsókn á ástæðum þess að fólk hröklast úr námi þá er stærsta ástæðan ”fjárhagur“, þ.e. peningaleysi, fólki býðst starf, fólk er komið með barn o.fl. Allt snýr þetta að fjárhagi fólks.” Jú en það er líka spurning hvað af þessu er persónulegt val. Ég þurfti að þola blankheit meðan ég var í skóla en mig langaði í skóla þannig að ég þraukaði. Hins vegar þekkti ég fólk sem hætti í skóla til dæmis til þess að geta keypt sér bíl. Ég átti ekki bíl fyrr ef eftir að ég var búinn...

Re: Nám á Íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Eftir að hafa verið í framhaldsskóla, þá held ég alls ekki að fólk sé almennt að hrökklast úr námi vegna peningaleysis heldur frekar áhugaleysis. Nú er það bara oft þannig að fólk á menntaskólaaldri er ekki búið að ákveða hvað það langar að gera og hefur ekkert að stefna að. Það er þess vegna oft að fara í menntó til að gera eitthvað, elta vinina eða fyrir pabba og mömmu en ekki fyrir sjálft sig. Árangurinn er svo eftir því. Ef þú sérð fram á að hrökklast úr námi vegna þess að þú eigir ekki...

Re: Nám á Íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Eða í harðgerðum jarðvegi spretta fáar og harðgerðar plöntur því þær veikustu deyja ;) Annars hef ég aldrei fattað þetta “framhaldsskóli fyrir alla” slagorð. Einhverjir verða líka að vinna í fiski og skúra gólf. Ef þig langar nógu mikið í skóla þá finnurðu leið. Ég þekki t.d. fólk sem hefur tekið stúdentinn í öldungadeild með vinnu, jafnvel fullri vinnu. Það er sko harka.

Re: Nám á Íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég myndi nú frekar vilja sjá 2,4 milljarða á ári fara í eitthvað annað en styrk til menntaskólanema. Kannski segi ég þetta bara vegna þess að ég er búinn með menntaskólann :) Vissulega fá danskir stúdentar styrki en ég veit ekki hvort þeir fái þá nokkuð niðrí menntaskólaaldur? Í Svíþjóð þarftu líka að borga öll þessi námslán til baka og lánskjör eru mun verri en hjá LÍN ef ég man rétt. Ég skoðaði þetta einhvern tímann. Hvað varstu annars að gera öll þessi ár sem þú varst ekki í skóla?...

Re: Harmleikur

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Dómurinn yrði ábyggilega miklu léttari ef svipað gerðist á Íslandi. Einhvern veginn er litið á það sem minna mál ef foreldrar eru valdir að dauða barna sinna en óviðkomandi. Sama með misnotkun. Alla vega kíkti ég á hegningarlögin: http://www.althingi.is/lagasofn/127b/1940019.html og sýnist að þetta myndi líklega falla undir grein 220, sem sagt í mesta lagi 8 ára fangelsi. Það er annars sagt frá þessu máli á http://www.canoe.ca/CNEWSLaw0206/20_babies-cp.html og á...

Re: Hvers vegna má selja tóbak en ekki reykja það ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Persónulega finnst mér að ætti að leyfa það en hins vegar finnst mér mjög ólíklegt að það gerist. Einhver kona hjá Hollustuvernd var í viðtali einhvern tímann í sambandi við orkudrykki sem var verið að banna. Kom í ljós að þeir innihéldu minna koffín en kaffi. Hún sagði þá að ef kaffi væri á borðinu hjá þeim í dag yrði það ekki leyft! :)

Re: Skrifaðu undir og bjargaðu lífum hvítra bænda !

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það var gert þó nokkuð af því í S-Afríku að flytja heilu þjóðflokkana nauðungarflutningum af landssvæðum sem voru góðar bújarðir yfir á rýrari landssvæði til að hægt væri að láta hvíta bændur hafa landið. Þeir hafa síðan verið að vinna úr þessum málum og held ég tekið eitthvað af landi af bændunum til að leyfa þjóðflokkunum að flytja heim aftur. Ef einhver þjóð býr á einhverju landi, sama þó það sé ekki verið að rækta það, þá þýðir það ekki að landið sé bara “for the taking” og það sé bara...

Re: Kvörtun til Reykjavíkurborgar

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ertu að meina að Reykvíkingar hafi einhverja fordóma gagnvart þeim sem eru utan af landi? Gerir þú þér grein fyrir að langflestir Reykvíkingar eru utan af landi eða alla vega eiga foreldra sem koma utan af landi? Það er ekkert auðveldara fyrir suma Reykvíkinga að fá vinnu. Ekki eins og skítastörfin séu öll frátekin fyrir aðflutta Akureyringa :) Annars fer þetta allt eftir því hvað fólk hefur menntað sig og hvort það vantar fólk í þá stétt. Ég myndi alla vega ráðleggja fólki áður en það...

Re: Dauðarefsingar og Lífstíðardómar

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég hef reyndar talað við bandaríkjamenn sem fannst það bara allt í lagi að einn og einn saklaus væri óvart tekinn af lífi :-/

Re: Skrifaðu undir og bjargaðu lífum hvítra bænda !

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held bara því miður að það geri lítið gagn að vera að skrifa undir hjá Amnesty. Ég held að þessum gæjum sé alveg sama hversu margir hvítingjar skrifa uppá stuðning við bændurna. Hins vegar held ég að það væri best fyrir þessa bændur (og börn þeirra náttúrulega líka) að þeir bara kæmu sér úr landi sem fyrst. Ég myndi alla vega gera það ef ég væri í þeirri aðstöðu að búa í þjóðfélagi þar sem ég og mín fjölskylda væru ofsótt vegna litarháttar. Þó svo forfeður þeirra hafi numið þarna land og...

Re: Skrifaðu undir og bjargaðu lífum hvítra bænda !

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Má þá ekki alveg eins vorkenna litlu svörtu börnum landlitlu svörtu bændanna sem hafa varla í sig og á meðan hvíti bóndinn er einn með land á við ca. 20 þeirra? :)

Re: Skrifaðu undir og bjargaðu lífum hvítra bænda !

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvað kemur þetta einhverjum börnum við? Er þessum árásum eitthvað sérstaklega beint gegn börnum? Væri það allt í lagi að stúta þessum bændum ef þeir ættu ekki börn? Mér finnst það bara skrítið að það er alltaf verið að bera börn fyrir sig eins og það sé allt í lagi að níðast á fullorðnum.

Re: Dauðarefsingar og Lífstíðardómar

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Dauðarefsingar draga ekki úr glæpum. Þeir sem eru fylgjandi þeim hafa barið sér á brjóst og stært sig af að glæpum hefur fækkað í Texas þar sem þeir hafa nú aldeilis sett í gír við að lífláta sem flesta en hins vegar nefna þeir ekki að glæpum hefur fækkað alveg jafn mikið annars staðar í Bandaríkjunum, líka í fylkjum þar sem eru ekki dauðarefsingar. Ég sé það heldur ekki fyrir mér að glæpamenn séu almennt að spá í hvaða refsingu þeir fái áður en þeir fremja glæpinn. Það ætlar sér náttúrulega...

Re: Gelding

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég átti hund sem var ekki geldur og þegar hann varð kynþroska þá var hann alltaf strjúkandi, alltaf að leita að tíkum og alltaf í slag. Hann kom oftar en einu sinni bitinn heim. Einn af leikfélögum hans í götunni var geldur og hann var heimakær og strauk ekki neitt en ekkert grimmur eða frekur með sitt svæði. Það eru frekar ógeldir hundar sem eru að passa upp á svæði og merkja sitt og reka aðra burt. Þetta með að þeir verði feitir þá er það náttúrulega bara ef þeir hafa verið mikið...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok