Ég er ein af þessu mjög svo gleymna fólki og eitt sem fylgir því er að ég á í þvílíkum vandræðum með að muna að taka pilluna mína á hverjum degi.
Einhvern tíman rakst ég á þessa <a href="http://www.p.molar.is/“>síðu</a> sem hefur verið að veita ókeypis pilluáminningu í gegnum SMS fyrir hvern sem þarf á að halda síðan í nóvember 2001 að mér sýnist.

Núna fyrir einhverju síðan var ég inn á doktor.is og sá þar að þeir eru komnir með svona líka sem þeir kalla <a href=”http://www.doktor.is/pilluvakinn/pilluvakinn.asp “>pilluvakann</a>

Eini munurinn sem ég sé í fljótu bragði er að hjá doktor.is kostar þjónustan 19 krónur fyrir hvert SMS.

*Kveikj á calculator og reikna*… Ef maður fær á hverjum degi frá pilluvakanum kostar það mann 6935 krónur á ársgrundvelli. En ekki krónu á hinum staðnum !!

<a href=”http://bre.klaki.net/dagbok/faerslur/1028807639. shtml“>Umræður</a> um þetta hafa verið á síðu pilluáminningarinnar.

Ef einhver þarna úti er að borga 19 kr fyrir hvert SMS frá pilluvakanum á doktor.is þá mæli ég tvímælalaust með að sá aðili færi sig yfir á <a href=”http://www.p.molar.is/">pilluáminninguna</a> og spari sér tæpar 7 þúsund krónur á ári.

Kv. catgirl