Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Hundar í bandi

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fever var reyndar ekki að kvarta yfir því að þurfa að hafa hundinn sinn í bandi heldur vegna annarra hunda sem eru lausir og vaða í hann þannig að hann verður illur og bítur. Ég segi bara láta múl á kvikindið, kannski má prófa hlýðninámskeið líka. En hann bítur alla vega engan ef hann er með múl.

Re: Kennitölu hreinsanir.

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ja þú getur náttúrulega prófað að lita á þér hárið og sjá hvort þú fattar þetta betur en ég er ekki ljóshærður og er því ekki við bjargandi :)

Re: 150 000 manns brenndir

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Reyndar sprengdu þeir líka upp 4 Kanadíska hermenn sem voru á æfingu í Afganistan. Héldu þá vera að skjóta á sig sem var ábyggilega rétt. Kanadamenn eru lúmsk kvikindi. Líklega komst þetta þó hvergi í fréttir nema í Kanada.

Re: Kennitölu hreinsanir.

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér þætti gaman að vita hvernig þeir ætla að fara að því að athuga það.

Re: Kennitölu hreinsanir.

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég fatta þetta nú ekki alveg. Þeim sem hafa ekki innskráð í 3 mánuði verður eytt. Gott og vel. En þeim sem eru yfir 50 verður sérstaklega mikið eytt? Ég meina, ef notanda er eytt, þá er honum eytt. Það er bara annað hvort eða. Hvernig ætla þeir líka að vita hver er að stela kennitölu og hver ekki? Ætla þeir að lesa alla pósta viðkomandi og tékka hvort hann segist vera eitthvað annað gamall en kennitalan segir til um?

Re: Sekt og sakleysi.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Helico, þekkirðu þennan mann eitthvað? :) Annars held ég að það sé alveg löglegt að birta myndir af fólki og ásaka það um hitt og annað, enda málfrelsi á Íslandi. Hins vegar er hver maður ábyrgur orða sinna og spurning hvort Hugi sé það fyrir sína notendur þar sem þú getur í rauninni skráð þig á hvaða kennitölu sem þér sýnist og væntanlega ekki hægt að sanna að sá sem á kennitöluna hafi í raun skráð viðkomandi notanda og skrifað undir hans nafni. Væntanlega er einhver sem þekkir þennan mann...

Re: Sekt og sakleysi.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er líka alveg ótrúlegt hvað fólk getur komist upp með að labba út með ef það er öruggt með sig. Nemendur í HÍ tékkuðu einhvern tímann á öryggismálum með því að senda einhvern náunga með skrúfjárn inn í eitt tölvuherbergið og hann potaði eitthvað smá í eina vélina og sagði svo við næsta mann að hann yrði að taka hana og labbaði svo út með vélina án þess að neinn blikkaði auga. Öryggið þar var bætt eftir þetta.

Re: Umskurður sveinbarna

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er líka notað sem rök að þetta minnki líkur á þvagfærasýkingum hjá strákum en líkurnar á að strákur fái þvagfærasýkingu, jafnvel þó hann sé ekki umskorinn eru svoleiðis miklu minni en líkurnar á að stelpa fái hana þannig að þetta eru engin rök. Svo er líka alltaf hætta á að eitthvað fari úrskeiðis við aðgerðina. Hefur einhver hérna t.d. heyrt um John/Joan? http://www.pfc.org.uk/news/1998/johnjoan.htm

Re: Hundar í bandi

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Settu múl á hann, þá bítur hann ekki neinn.

Re: Rusl á Íslandi, er það of mikið ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér finnst að ætti frekar að hýða þá á Ingólfstorgi á laugardögum, öðrum til viðvörunar ;)

Re: Að búa í Danmörk.

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Miðað við það sem ég hef séð þarna úti og hef heyrt af fólki sem hefur flutt, þá er málið ekki eins og þú segir að fólk græði eitthvað rosalega á að vera þarna heldur að það er minna lífsgæðakapphlaup. Fólk lætur sér nægja útsöluföt og reiðhjól/strætó/gamlan bíl frekar en á Íslandi þar sem allir þurfa að vera í stælnum.

Re: Re Álit mitt á frábæru grein GlingGló

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Margt fólk í Bandaríkjunum hefur aldrei séð óumskorið typpi. Ég var t.d. í skóla þar úti og bekkjarsystir mín eignaðist barn fyrir tímann og þurfti strákurinn að vera á fyrirburadeild í 2 vikur. Það sem henni fannst leiðinlegast var að hann var of veikburða til að hægt væri að umskera hann strax og henni hraus hugur við að díla við þessa forhúð, vissi bara ekkert hvað hún átti að gera við þetta. Það er líka til í dæminu að fólk þarna úti ákveður að láta ekki umskera og er svo að þvinga upp...

Re: No offense, en þessi grein er þrugl og vitleysa.

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þessi aðgerð sem GlingGlo er að lýsa sem er gerð á dagsgömlum börnum án deyfingar er hvorki það sama sem gyðingar gera eða þá múslimar, hvorki hér á landi né annars staðar. Gyðingar gera oft sínar í heimahúsum og fær þá barnið smá vín eða notað er deyfikrem. Múslimar gera sínar oft seinna, oft við 4-6 ára aldurinn og þá er nokkuð víst að það yrði deyft, alla vega ef það væri gert hér á landi. Hins vegar er forhúðin þá yfirleitt orðin laus frá kóngnum og það þarf ekki að plokka hana af eins...

Re: Kappakstur í Kópavogi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Góður punktur. Kannski það ætti bara að mega keyra druslur fyrstu 2 árin. Eitthvað sem kemst ekki nema uppí 90 í mesta lagi. Mig minnir að ég hafi heyrt um eitthvað Evrópuland sem var með svoleiðis reglur. Annars held ég að það verði varla langt þangað til þeir verða komnir með skyldubúnað í alla bíla sem tekur merki frá sendum í nágrenninu og þú kemst ekkert hraðar en hámarkið.

Re: No offense, en þessi grein er þrugl og vitleysa.

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvar segir GlingGlo að bara gyðingar láti umskera? Það eina sem hún sagði að hún hafði ekki hugmynd um hversu algengt þetta væri fyrr en hún fór að lesa sér til um það. Hvernig væri svo að lesa alla greinina áður en þú svarar? Svona í framhjáhlaupi, þá er fólk byrjað að verða upplýstara um þessi mál í Bandaríkjunum og tala þeirra sveinbarna sem eru umskorin er komin niður í 60%. Auðvitað eru einhverjir sem láta umskera sig síðar en það eru líka aðrir sem leggja mikið á sig til að teygja...

Re: Busavíxla uppí unglingadeild

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það var í þeim skóla sem ég var í þegar ég var þar en samt ekkert skipulagt. Kennararnir höfðu bannað busavígslur en það voru samt allir busarnir hrekktir smá fyrstu vikuna. Öllum strákunum var dýft í drullupoll á fyrsta skóladaginn og næstu daga var m.a. farið í skógeymslu busanna og bundnar saman allar reimarnar okkar auk þess sem það var ráðist á einn og einn og dýft í vask eða hengdir uppá snaga. Það var líka einn sem lenti í að fá hellt úr rakspíraflösku yfir sig og annar sem var...

Re: Hraði ljóssins?

í Hugi fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég nota nú yfirleitt bara pí-ið sem er innbyggt í vasatölvuna mína :)

Re: Hraði ljóssins?

í Hugi fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hann er yfirleitt rúnnaður uppí 300.000 km/sek vegna þess að það er auðveldara að muna heldur en 299.792,458 :) Svona álíka og það dugar yfirleitt reikna með að pí sé 3,14 þó það sé í rauninni 3,1415926535897932… o.s.frv.

Re: Að búa í Danmörk.

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ok, en þá er heldur ekki réttlátt að þegar börnin eru orðin eldri og þú þarft ekki lengur á þessari aðstoð að halda að þú segir þá “Hey, ég borga minni skatta ef ég flyt aftur heim”. Það er annað vandamál við svona kerfi, þ.e. fólkið sem þarf á aðstoð að halda vill búa í landinu með velferðarkerfið en allir aðrir vilja búa einhvers staðar annars staðar. Það er svona álíka og sumir Íslendingar sem búa í Bandaríkjunum og dásama allt kerfið þar og hvað skattar eru lágir en koma síðan til...

Re: Að búa í Danmörk.

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Vandamálið við svona rosalegt velferðarþjóðfélag er að það drepur niður allt frumkvæði og sjálfbjargarviðleitni. T.d. bjuggu systir mín og mágur í Svíþjóð fyrir nokkrum árum og þau bjuggu við hliðina á manni sem var búinn að vera atvinnulaus í 5 ár. Konan hans var heimavinnandi húsmóðir og þau áttu 4 börn. Þau lifðu svo góðu lífi á bótunum að þau gátu farið til útlanda í frí á hverju ári. Á meðan voru þau harðduglegir íslendingarnir að reyna að vinna sér inn aukapening og komust að því að...

Re: Hraði ljóssins?

í Hugi fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hann er 3*10^8 m/s sama og 300.000.000 m/s sama og 300.000 km/s <a href="http://www.what-is-the-speed-of-light.com/">http://www.what-is-the-speed-of-light.com/</a

Re: Umskurður sveinbarna

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Upphaflega ástæðan fyrir að umskera er að það gerir mönnum aðeins erfiðara fyrir að fróa sér þar sem það er ekki eins mikið laust skinn og eins og við vitum þá var sjálfsfróun talin valda geðveiki, flogaveiki og um það bil öllum öðrum veikjum hér í gamla daga. Umskurn í Bretlandi var mjög algeng fram að seinni heimsstyrjöld. Þá sáu þeir að sér og ákváðu að sjúkrasamlagið hætti að borga fyrir þetta og fólk bara snarhætti þessu. Í Bandaríkjunum hefur fólk haldið fastar í þetta og oft bara...

Re: Læknar

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Símadömur hjá læknum eru nú líka alveg sér kafli. Ég hef oft lent í því að þær verja lækninn sinn fyrir ágangi sjúklinga með kjafti og klóm, jafnvel þó læknirinn hafi sagt manni að hringja eða koma einhvern dag, þá veit símadaman sko betur og liggur við að maður þurfi að snúa upp á nefið á þeim til að þær a.m.k. taki skilaboð. Ég veit ekki alveg hvað er sambandið á milli símadama og lækna en þær virðast hver og ein álíta að læknirinn sinn sé guð sjálfur.

Re: Af hverju er enn rukkað mínútugjald í símkerfinu?

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Vissulega gætu þeir boðið upp á þann pakka að þú borgar hærra mánaðargjald og getur legið í símanum frítt allan sólarhringinn en af einhverjum ástæðum hefur þeim ekki dottið það í hug. Kannski ættirðu bara að spyrja þá. Annars virðast þeir bjóða upp á áskriftarleið sem er með sama mánaðargjaldi en lægra mínútugjaldi (magnáskrift). Það eru líka alls konar sparnaðarleiðir sem þú getur skráð þig í frítt, fengið smá afslátt. Annars bý ég í Kanada og síminn kostar þar um 2600 ISK á mánuði, öll...

Re: Fyrir þá sem kunna ekkert í The Sims!!

í The Sims fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég prófaði að eyða póstkassanum einu sinni og þá gat enginn lengur heimsótt fólkið í húsinu. Það var líka eitthvað vandamál með lóðina svo ég þurfti að kópera auða lóð úr öðru hverfi inní möppuna til að fá póstkassann aftur. Hins vegar geturðu látið fólkið taka reikningana úr póstkassanum og fara með þá inn og svo getur þú eytt reikningunum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok