Ég ætla hérna aðeins að segja frá atviki sem ég og tveir félagar mínir lentum í núna síðastliðna nótt, við vorum að keyra frá grandanum og stoppuðum á ljósunum hliðina á kolaportinu. Og það eru eru tvær mótorhjóla löggur við hliðina á okkur og svo leggjum við af stað og þá stoppa þessar löggur okkur og við keyrum þarna áfram og tökum U beygju og förum inn á Esso planið og stoppum þar og annar lögregluþjónnin kemur upp að glugganum og fer að tala eitthvað við félaga minn sem var að keyra og átti bílin á meðan annar lögregluþjónnin labbar í kringum bílin og er eitthvað að skoða hann á meðan hann er að því spyr hin löggan félaga minn hvað lögheimilið hans og dvalarstaður er og svoleiðis spurningar og biður þá félaga minn að tala hærra sem hann og gerir en þá fer lögregluþjónnin að saka hann um einhver hortugheit eins og hann orðaði það sjálfur þá kemur hinn lögregluþjónnin og segir að það eigi að vera búið að skoða bílin, bæði afturdekkin séu ónýt væru slétt og hann sé komin yfir á endurskoðun og spyr hvað sé að bílnum og félagi minn segir að það séu smá göt í gólfinu aftur í (þetta var Bmw 735 84módel) og segir svo við félaga minn í smá djóki sem sat aftur í að hann gæti hlaupið með bílnum sem var bara smá grín því götin voru alls ekki það stór þá segir löggan “finnst þér þetta svona fyndið” og með soldið hárri rödd og segir svo “ætlaru að keyra bílnum þarna út í horn við ætlum að klippa af honum” eftir að þeir voru búnir að skella boðun í skoðun á bílin og gáfu honum 4 daga sem er yfirleitt vika sem þeir eiga að gefa og tek það fram að það eru 2 virkir dagar sem hann semsagt hefur því þetta var á aðfararnótt laugardags þegar þeir segjast ætla að klippa af bílnum sem þeir höfðu reyndar enga ástæðu til þá segir vinur minn bara nei ég þarf að komast heim til mín þá rífur annar lögregluþjónnin upp hurðina og segir honum orðrétt “drullaðu þér út úr bílnum og farðu fyrir aftan hann” og í því ætlum ég og félagi minn sem sat aftur í að standa upp úr bílnum þá öskra þeir á okkur “drullið ykkurinn í helvítis bílinn” og svo tekst félaga mínum að telja þá til að klippa ekki af bílnum og við keyrum síðan í burtu en soldið greitt en ekkert yfir hámarkshraða þá stoppa þeir okkur aftur og segja honum að “drulla sér út úr bílnum” og núna ætli þeir að klippa af bílnum en fyrst byrja þeir að ausa yfir honum skömmunum og segja “afhverju varstu að keyra svona helvítis fíflið þitt” og “þú ert bara helvítis aumingi” og vinur minn kemur ekkert upp neinu orði því þeir standa alveg upp við hann og hætta ekkert að öskra á hann og eina sem honum tekst að segja er “bara” og þá kom önnur löggan og sagði “strákurin minn hætti að svara með bara þegar hann var tíu ára” og spyr aftur afhverju hann væri að keyra svona eins og hálfviti sem hann gerði alls ekki enda með þá báða fyrir aftan sig og sögðu að hann hefði verið að stofna lífi fólks í hættu og svona
og öskra ennþá meira á hann og ennþá kemur félagi minn ekki upp neinu orði og þá lemur önnur löggan svona í öxlina á honum það fast að maður fann höggið því félagi minn hallaði sér upp að bílnum og félagi minn öskraði þá svona á lögguna “heyrðu” þá bökkuðu þeir eitthvað aðeins frá honum og sögðu honum að keyra bílnum inn á bílastæðið sem var við hliðina á eða þeir skyldu gera það fyrir hann þannig að félagi minn gerði það og svo ætluðu þeir að klippa af bílnum en það endaði með að ég fór út úr bílnum ásamt hinum stráknum sem var með okkur og við rifumst eitthvað í þeim og það endaði með að þeir hættu við að klippa af bílnum en bönnuðu félaga mínunm að keyra í burtu þannig að ég varð að keyra bílin í burtu finnst ykkur þetta ekki soldið aðeins of langt gengið??