Ég var að spá í hvar væri hægt að fá svona hengi - þessar hippalegu kúlur í bandi sem hægt er að hengja í dyragættir í staðin fyrri hurð og ganga svo í gegnum með tilheyrandi látum. Ég er nefnileg með pínulítið eldhús sem er í sérherbergi en er eiginlega of lítið til að hægt sé að hafa hurð með góðu móti. Mig langar samt að loka því aðeins. Það er venjulegt dyragætt því það var hurð þarna einhvern tímann í fyrndinni. Ég hef verið að spyrja vini og fjölskyldumeðlimi út í þetta en enginn veit hvar svona item er að finna. Ég sá ekkert í Ikea eða Húsasmiðjunni og Byko starfsmaður sem ég talaði við sagði að þetta væri “voðalega mikið að koma aftur” en vissi ekkert hvert ég ætti að fara.

Stóra spurningin er því: hefur einhver rekist á svona dót?<br><br>—————–
*Evil things have plans. They have things to do!*
——————