Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Þjóðarauðurinn

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 6 mánuðum
68.841.914.000 deilt með 286.250 yrði 240.495,77 kr. á mann. Samt myndir þú náttúrlega aldrei fá það mikið vegna þess að það kostar líka að veiða fiskinn. Útgerðin verður að borga þér fyrir kvótann, standa í öllum kostnaði við veiðina og gera ráð fyrir að hagnast eitthvað líka. Ef núverandi kerfi eykur brottkast, þá myndi þetta kerfi gera það líka svo um munar. Sá sem ætlar að koma með allan fisk að landi kemur líka með smáfisk að landi sem hann fær ekki eins hátt verð fyrir og getur því...

Re: Lán

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þú ert ekki sjálfráða fyrr en 18. Þeir mega ábyggilega ekki lána börnum peninga. Annars finnst mér að bílpróf, áfengi og allt ætti að miðast við 18.

Re: Fjármálaáætlanir einstaklinga

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég set allt í excel og veit nokkurn veginn hvað fer í föst útgjöld og nokkurn veginn hvað ég ætla að eyða mikið þó ég fari stundum framúr áætlun. Ég sé þá hvað ég á mikinn pening eftir hvern mánuð og það er auðveldara að mæta greiðslum sem koma sjaldan, t.d. LÍN tvisvar á ári. Ég sé líka ef ég er að eyða meira en ég má og get leiðrétt það strax. Ég er ekki með yfirdrátt og nota Visa mjög sparlega. Ég er með áætlun svona ár fram í tímann en það er náttúrulega eins og veðurspáin, því lengra...

Re: Ingibjörg Sólrún lætur ljós sitt skína.

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þú ættir að klaga þessa konu. Ef hún er ekki að svindla neitt þá kemur ekkert fyrir hana en líklega er hún annað hvort að svindla á kerfinu eða er í klíku. Ef henni verður hent þarna út, þá fær einhver þessa íbúð sem þarf meira á henni að halda.

Re: Á að skipta bekkjum eftir þroska?

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef þú getur ekki klárað prófin, þá vantar þig líklega bara góða próftækni. Byrjaðu alltaf á að fletta í gegnum allt prófið og merkja við það sem er létt. Gerðu svo allt sem er létt, ef þú kemst að því að það er ekki eins létt og þú hélst, haltu þá áfram í næsta. Þegar þú ert búin með allt létta, farðu þá í hitt. Geymdu allt sem er erfitt þar til síðast. Það er betra að vera búinn með 95% af prófinu og hafa ekki tíma til að klára eitthvað eitt sem er erfitt heldur en að klára bara 85% af...

Re: SMS sent til vitlausan aðila

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Miðaldra maður sem ég var að vinna með fékk ansi heit skilaboð frá einhverri konu sem hann þekkti ekki neitt. Hann fann eftir símaskrá að hún átti heima fyrir norðan og var að grínast með að mæta með símann á tröppunum hjá henni og sjá hvort það væri eitthvað í boði :) Þó held ég hefði nú ekki orðið vinsælt hjá stelpugreyinu né heldur hjá eiginkonunni hans :)

Re: Jólin eru nánast komin.

í Hátíðir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Snjór. Um leið og það byrjar að snjóa, þó það gerist í September, þá er ég kominn í jólaskap :)

Re: Ingibjörg Sólrún lætur ljós sitt skína.

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það eru nú fleiri en fólk með fyrirtæki sem svindlar á skattinum. Margir iðnaðarmenn vinna að einhverju leyti svart og svo er til að fólk vinni svart þó það sé að vinna hjá öðrum. Ein skólasystir mín vann t.d. svart í sjoppu með skólanum. Hins vegar finnst mér það eiginlega verra mál þegar þetta fólk er farið að troða puttunum í þá aðstoð sem ætluð er þeim er virkilega eru fátækir. Þá t.d. fólk sem er að vinna svart og hefur ágætar tekjur en fer líka og fær aðstoð frá Féló, kemur sér í...

Re: Ingibjörg Sólrún lætur ljós sitt skína.

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“en það sem mér hinsvegar sýnist vera að hjá þér er að þú ert með fyrirlitningar viðhorf sem svo margir stjórnmálamenn hafa sem líta á láglauna fólk sem pakk sem reynir að vinna svart og eða nennir ekki að vinna.” Ha? Af hverju heldurðu það? Ég veit alveg að öryrkjar hafa það ekki sérlega gott í þessu þjóðfélagi en það er vissulega til fólk sem svindlar á kerfinu. Ætlarðu að reyna að segja mér að svo sé ekki?

Re: Hóta að vinna naktar

í Sorp fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvort það er gott eða ekki fer nú eftir því hvort þær eru eitthvað fyrir augað eða ekki :)

Re: Psycho gaur

í Sorp fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Já, að auki fór maðurinn inn á leikskóla í Bandaríkjunum en samt gerðist þetta í Berlín, Þýskalandi?

Re: Með skilríki ??

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér finnst að það ætti nú frekar að vera aldurstakmark á flugeldum heldur en tóbaki. Miklu hættulegri

Re: ADSL í útlöndum...

í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þeir láta bara gemsaeigandann borga gemsagjaldið í staðinn fyrir þann sem hringir í gemsann. Á Íslandi er litið á það þannig að þú veist hvaða símanúmer er gemsanúmer og ef þú hringir í það, þá veistu hvað það kostar, þitt val. Hins vegar ef gemsaeigandinn er staddur erlendis, þá borgar þú samt bara gemsagjald fyrir að hringja í hann en hann borgar restina. Í Bandaríkjunum og Kanada er litið á það þannig að sá sem hringir á ekki að þurfa að spá í hvort hann er að hringja í gemsa eða ekki....

Re: ADSL í útlöndum...

í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég bý í Kanada og er ekki með DSL heldur kapal. Hann er mjög mishraður. Getur verið frá 600 - 1200k. Ég borgaði 3400 ISK fyrir módemið, ekkert fyrir uppsetningu og borga 1700 ISK á mánuði í hálft ár og eftir það 2200. Ekkert download gjald.

Re: Ingibjörg Sólrún lætur ljós sitt skína.

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ástæðan fyrir öllum hækkununum er að ef allir fá 3% launahækkun, þá gildir það líka um starfsfólk hjá þjónustufyrirtækjum og verslunum og það fer náttúrulega útí verðlagið. Þeir sem eiga íbúðir og leigja þær út verða þá líka fyrir því eins og aðrir að þeirra kostnaður hefur hækkað og verða því að hækka leiguna. Annars er galli við þetta félagslega íbúðakerfi að það hefur alltaf verið biðlisti eftir íbúðum og fólk sem þarf að komast þarna inn kemst ekki meðan eitthvað af því fólki sem býr...

Re: Farsímabann á Bensínstöðvum

í Farsímar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér finnst það nú eiginlega bara nokkuð ljóst að ef næsti kúnninn í röðinni er að tala í símann þá hleypirðu næstnæsta fram fyrir. Þið ættuð bara að setja upp skilti: “Ef þú ert að tala í símann þegar röðin kemur að þér, þá verður sá sem er næstur í röðinni tekinn fram fyrir þig.”

Re: LOL

í Húmor fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hér eru flestir af hinum: 1. home is where you hang your hat (@ = at) 2. the female of the species is more deadly than the male 4. you can't teach an old dog new tricks 5. great oaks from little acorns grow 6. speak softly and carry a big stick 7. money is the root of all evil 8. don't put all your eggs in one basket 9. penny wise, pound foolish 10. the medium is the message 11. too many cooks spoil the broth 12. the meek shall inherit the earth 13. a cat has nine lives 14. don't bite off...

Re: Hann Skundi kvennagull...

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Bara gott á ykkur með mottuna. Þið áttuð það alveg skilið fyrir að leyfa honum að fara í aðra garða að létta á sér :P :)

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er nú ekki alveg svo einfalt að Palestínumenn hafi bara allir farið að heiman sjálfir þegar þetta byrjaði heldur voru á þeim tíma Ísraelskir skæruliðahópar sem beinlínis ráku þá í burtu.

Re: Dómarar ættu að skammast sín!

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Meira að segja sjúkraflutningamaður var dæmdur í 9 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa þuklað á konu og sleikt á henni brjóstin. Greinilega miklu alvarlegra mál en að putta og nauðga nokkrum smástelpum.

Re: Nýjar auglýsingar

í Apple fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er í Kanada og þar er alltaf verið að sýna svona auglýsingar í imbanum. Ég man ekki eftir að hafa séð neinn frægan. Bara fólk í ýmsum störfum og jafnvel einn náungi sem titlaði sig bara heimilisföður og sagðist vera þreyttur á að laga PC vandamál á miðri nóttu svo krakkarnir hans gætu prentað út ritgerðirnar sínar.

Re: Af hverju

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þó það sé ekki nema ein ástæða, þá er það að láta ykkur hafa eitthvað að gera. Ef þú ættir bara að liggja heima í leti að 18 ára aldri og aldrei gera neitt nema sem þér finnst skemmtilegt, hvernig heldurðu að það yrði þá fyrir þig að þurfa allt í einu að byrja að vinna?

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það var svoleiðis en ég held að því hafi verið breytt fyrir nokkrum árum þannig að fórnarlömb glæpa fá skaðabæturnar borgaðar frá ríkinu og ríkið rukkar þann seka.

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er líka ekki að vita hvort hann borgar nokkurn tímann þessa sekt þó hann hafi verið dæmdur til þess. T.d. ef hann er ekki borgunarmaður fyrir því. Vonandi þyngir hæstiréttur dóminn. Hins vegar er ekki alveg hægt að bera þetta saman við hinn sem fékk ár fyrir að stela vegna þess að hann rauf skilorð þannig að 260 dagar af þeim 365 sem hann á að sitja inni eru í rauninni fyrir eitthvað annað brot sem var framið áður (skilorðið) en 105 dagar er það sem hann fær fyrir það sem hann gerði í...

Re: Getur einhver hjálpað mér!

í Kettir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Kannski er hún að mótmæla því að kassinn hennar er ekki hreinn, henni líkar ekki við sandinn eða eitthvað. Prófaðu að setja annan kassa líka svo það séu meiri líkur á að annar sé hreinn þegar hún þarf. Þú getur líka prófað að setja mismunandi sand og tékka hvort hún notar annan frekar. Settu líka kattafælusprey í blómapottana.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok