HÆ HÆ hugarar!!
Ég er með tvær innikisur!! Önnur er ný orðin eins árs og hin er að verða þriggja ára:-)
En málið er að þessi sem að er ný orðin eins árs (Atína) er farin að míga alltaf og skíta í blómapottana hennar mömmu, allir eru að verða brjálaðir á henni (nema ég) og mamma er fain að tala um að þetta gengi ekki lengur og að við verðum kannski að lóga henni út af þessu:( :(
Atína fæddist í fjósi og átti heima úti í hesthúsi þangað til síðasta sumar þá þurfti ég að taka hena heim. En hún gerði þetta aldrei fyrst og er bara nýfarin að gera þetta!! Ég veit ekkert hvað ég á að gera… ég er búin að reyna að gera allt sem að mér dettur í hug:(
En endilega ef að þið eruð með bara einhver ráð viljið þið þá láta mig vita!!!!!
Kveðja
ASJ:o)