Tekið af mbl.is

Með mannabein á eldhúsgólfinu
Mannabein, líkkistur og krossar komu inn um eldhúsvegginn hjá brasilískri fjölskyldu um helgina þegar úrhellisrigningar skoluðu burt hluta kirkjugarðs.
Þetta gerðist í rigningunni á laugardagskvöld. Hluti veggjarins utan um kirkjugarðinn brast og jarðvegur, líkamsleifar, kistur og brot úr legsteinum féllu á húsvegg neðar á hæðinni með þeim afleiðingum að hann brotnaði, að því er embættismaður Rio de Janeiro greindi frá.

Yfirvöld kirkjugarðsins segja að íbúarnir í húsinu hafi þurft að þola líkamsleifarnar í eldhúsinu um helgina en til stóð að hreinsa þær upp í dag.

Dagblaðið Extra í Brasilíu birti mynd af konu, búsettri í húsinu, þar sem hún hélt á mjaðmabeini og hluta hauskúpu en moldarhaugur og risastórt gat á vegg blasti við í bakgrunninum.

Þetta hlítur að vera það furðulegasta sem getur komið fyrir mann