Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Vilja fá Ryder til að auglýsa föt...

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er alla vega góð auglýsing að fræga fólkið vilji stela fötunum þeirra :)

Re: Liz Hurley vill ekki meðlagið

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég var ekki að fatta af hverju hún hefði samið um það fyrir dómi að fá þetta meðlag ef hún vildi svo ekki fá það en svo fann ég ensku útgáfuna af þessari frétt og sá þá að það var hann sjálfur sem lögfesti það að hann ætlaði að borga þennan pening en hún bað aldrei um neitt. Það var líka hann sem höfðaði faðernismálið og bað um DNA próf, ekki hún. Alla vega verður peningurinn settur í sjóð fyrir krakkann þannig að hann getur væntanlega tekið við honum sjálfur þegar hann nær lögaldri. Dágóð...

Re: fáranlegt

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef þú nennir ekki á jólaballið, segðu þá bara að þú sért votti jehóva og haldir ekki uppá jólin. Eða bara skrópaðu. Hvað geta þeir svo sem gert við þig? :)

Re: nám í indónesísku

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hmm, af hverju í ósköpunum ætti mig að langa til að læra indónesísku? :)

Re: Skilorð - afplánun

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég held að það sé dómara í sjálfsvald sett. Ef nokkuð er liðið frá fyrra brotinu og þetta er ekki mjög alvarlegt brot gæti hann séð í gegnum fingur sér við viðkomandi og hreyft ekki við skilorðinu við svo búið heldur bara dæmt sekt eða eitthvað fyrir seinna brotið. Hins vegar gæti hann líka dæmt skilorðið og nýja dóminn saman í pakka og þá oft á afsláttarkjörum enda er það þekkt mál að þegar maður gerir eitthvað í miklum mæli fær maður afslátt :)

Re: ÞAÐ útlenda fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Reyndar hefur það verið gagnrýnt með heitið “nýbúi” að það sé bara notað fyrir fólk af öðrum kynþáttum. Fólki finnst t.d. ekki að Englendingur eða Þjóðverji sé nýbúi. Hann er bara Englendingur eða Þjóðverji.

Re: Hundagjald

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég held að það séu engin lög varðandi það að þeir eigi að skaffa nein svæði. Hundagjaldið á að standa straum af kostnaði við hundahald, t.d. vegna hundaeftirlitsmanna. Einhvern tímann var Reykjavík búin að hækka gjöldin svo mikið að þeir voru farnir að stórgræða á þessu og það fór einhver í mál við þá og þeim var bannað það þannig að eins og er, þá mega þeir ekki rukka meira en þeir eyða í hundaeftirlit. Reikningar bæjarfélagsins þíns eiga að vera opinberir þannig að ef þú heldur að þitt...

Re: Hundagjald

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef þú býrð í bæjarfélagi þar sem er skylda að borga hundaleyfisgjald og hundurinn þinn sleppur út, þá geturðu fengið slatta sekt þannig að það er kannski betra að borga bara gjaldið.

Re: Geldingar og fleira

í Kettir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef þú sérð að hann er að fitna þá bara gefurðu honum minna að éta. Einfalt mál :)

Re: orkumikill

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hljóp um á tónleikum? Ég ætla rétt að vona að þú hafir farið með hann út. Mér finnst alveg stórmerkilegt þegar fólk er að draga börn með sér á staði þar sem þau þurfa að gera það sem þau hafa engan þroska til, þ.e. að sitja kyrr í lengri tíma og hlusta á eitthvað sem þau hafa kannski engan áhuga á. Hins vegar hef ég séð foreldra á tónleikum sem voru með krakka sem voru alveg til fyrirmyndar og var greinilega búið að kenna að sitja kyrr og tala lágt ef þau þurftu að segja eitthvað. Ég sá...

Re: bumbubaninn

í Heilsa fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Jú, hann leit út eins og flugvél. Ég fékk aldrei innvortis blæðingar og meiðsl af honum, bara harðsperrur í magavöðvana. Ef eitthvað fólk hefur meitt sig á honum, þá hefur það verið að nota hann eitthvað illilega vitlaust.

Re: ÞAÐ útlenda fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég kíkti ekkert á gömlu lögin en sá alla vega ekkert slíkt ákvæði í þeim nýju. Síðasta greinin sem ég vitnaði í gefur bara 2 ástæður fyrir að hægt sé að afturkalla leyfi, að hann hafi brotið lög hvað varðar a.m.k. 3ja ára fangelsisvist eða það sé nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins.

Re: ÞAÐ útlenda fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér finnst það nú ólíklegt að þeir á útlendingaeftirlitinu séu með eitthvað óhappalottó fyrir hvers dvalar- og atvinnuleyfi þeir eiga að ógilda þann mánuðinn. Þó þeir geti afturkallað leyfið, er það þá ekki bara gert ef viðkomandi brýtur af sér? Til eru lög um atvinnuréttindi útlendinga, 2002 nr. 97 og þar stendur: 11. gr. Óbundið atvinnuleyfi. Heimilt er að veita útlendingi óbundið atvinnuleyfi. Skilyrði þess að atvinnuleyfi megi veita samkvæmt þessari grein eru eftirfarandi: a. að hann...

Re: Réttindi barna fótum troðin.

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það getur líka farið eftir hvort ættingjar sem vilja taka barnið eru í umdæmi sömu barnaverndarnefndar og jafnvel hvort einhver í barnaverndarnefnd hafi handvalið einhverja vini og vandamenn sem eiga að fá barnið. Mikið af smákóngum þarna og ekki beint verið að spá í hvað börnunum er fyrir bestu. Fólk ætti að gera erfðaskrá og láta lögfesta það hver á að taka við börnunum ef illa fer. Bróðir minn býr í Bandaríkjunum og þar veit fólk af því að þetta er svona þannig að þau létu festa það í...

Re: ÞAÐ útlenda fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Veistu hvaða réttindi og veistu hvort það er algengt að þau séu afturkölluð? Í Kanada eru menn ekki einu sinni öruggir þó þeir séu komnir með ríkisborgararétt. Ef þeir brjóta lög er tekinn af þeim ríkisborgararétturinn aftur og sendir heim.

Re: Framkoma starfsmanna bókasafna

í Bækur fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég fór alltaf á Borgarbókasafnið á Laufásvegi og man ekki eftir að neinn hafi verið með nein leiðindi. Ég tók alltaf 10 bækur í einu en það var hámarkið. Var svo kannski kominn aftur 2-3 dögum seinna að skila og fá fleiri.

Re: fáranlegt

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Sama hjá mér. Síðustu prófin eru á morgun og það er einn tími á miðvikudaginn en svo þurfum við að mæta líka fimmtudag og föstudag og gera ekki neitt. Einn kennarinn ætlaði ekki að taka mætingu en hann sagði að sér hefði verið skipað að gera það.

Re: Konfekt fyllt með ógeði

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Sumum finnst það ábyggilega gott. Alla vega framleiðandanum :) Þú verður bara að finna eitthvað konfekt sem þér finnst gott og éta það í staðinn.

Re: ÞAÐ útlenda fólk

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Óbundið dvalar- og atvinnuleyfi er samt það eina sem við höfum sem kemst eitthvað nálægt græna kortinu. Ég veit ekki nákvæmlega hvaða réttindi eru falin í hvoru um sig nema að bæði eru óbundin dvalar- og atvinnuleyfi :) Þú getur kannski frætt okkur um það hvaða réttindi þetta eru sem fylgja (eða fylgja ekki)?

Re: Réttindi barna fótum troðin.

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta með að greiða fyrir forræði þekki ég dæmi um og það er fyrir ca. 20 árum síðan og sú kona var íslensk. Alla vega labbaði hún út frá manni og tveimur ungum börnum og notaði svo tækifærið alltaf þegar hana vantaði pening að hún fór til síns fyrrverandi og hótaði að taka börnin ef hann léti hana ekki hafa hitt og þetta. Þetta gekk svona í nokkur ár þar til hann samdi við hana um lokagreiðslu og sagði svo við hana að hún gæti hætt þessum hótunum, enginn dómari myndi láta hana hafa börnin...

Re: Nokia símar bila mest!

í Farsímar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég átti Panasonic G600 og missti hann í gólfið, hann lenti í rigningu o.s.frv. og alltaf virkaði hann. Ég var búinn að eiga hann í 3 ár þegar ég flutti út og gaf pabba símann sem er búinn að nota hann í eitt ár í viðbót og ekkert vesen. Ég á Motorola 120c núna, búinn að eiga hann í eitt ár og eina sem hefur komið upp er að loftnetið brotnaði af. Svona brothætt útdraganleg loftnet hér í N-Ameríku :(

Re: Þrekhjól

í Heilsa fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Taktu 20-30 mín. fyrir morgunmat. Helst láttu bíða að borða morgunmatinn þar til klukkutími er liðinn frá æfingu. Ef þú nennir þá geturðu líka tekið aðra törn seinna um daginn. Samt ekki sprengja þig með að byrja af of miklum krafti. Byrjaðu þá frekar þrisvar í viku ef þér finnst erfitt og auktu svo fjöldann. Ágætt að æfa 6 daga vikunnar og taka frí á nammidaginn. Auk þess, slepptu öllum sykri og öllu gosi nema á nammidögum, já, líka diet. Slepptu líka fitu og salti eftir því sem þú getur....

Re: Unglingsárin

í Lífsstíll (gamli) fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En þetta er alveg satt. Strákar fá mun seinna brjóst og fara á blæðingar ;) Annars er það nú líka til að stelpur eru komnar með brjóst og byrjaðar á blæðingum 10 ára. Kannski er þetta að aukast með árunum. Gæti kannski verið að krakkar þroskist alltaf fyrr og fyrr og þess vegna séu þau farin að fikta þetta snemma sem við sem erum eldri þykjumst ekki muna eftir? Eða erum við kannski bara orðin gleymin? :)

Re: american cocker spaniel ;)

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef hann glefsar, segja nei og skipta sér ekki af honum í smástund. Ef það gengur ekki, þá bæta við að slá létt á nefið líka. Hundurinn sem ég fékk þegar ég var krakki, ég beit hann sko bara til baka og það svínvirkaði líka. Bara sýna honum hver ræður :)

Re: Réttindi barna fótum troðin.

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þessi dómur í Skotlandi hefði líklega verið eins á Íslandi. Það var einhver þáttur í imbanum um forræðislausar mæður og flestar þeirra höfðu gert þau mistök að labba út án barnanna, t.d. til að koma undir sig fótunum eða redda húsnæði eftir að hafa farið úr sambúð sem þær fengu ekkert út úr. Ætlað svo að taka börnin seinna og þá sagði kallinn bara nei og yfirvöld sögðu bara að þau ættu heima hjá honum og bannað að raska þeirra lífi. Og þetta er náttúrulega aftur það sem kemur fyrir marga...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok