Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Um flóttamannamynd...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Systir mín bjó í Svíþjóð og sagði mér hvernig flóttamannamálum væri þar háttað. Þeir eru vistaðir í félagslegum íbúðum, kannski þar sem öll blokkin eru flóttamenn, meðan verið er að athuga þeirra mál. Þeir fá kannski ekki atvinnuleyfi fyrr en eftir 1-2 ár og þegar fólk er búið að vera það lengi atvinnulaust, þá vissulega hefur það einhver áhrif. Það er varla til áhrifaríkari leið til að drepa mann niður en að borga honum fyrir að gera ekki neitt. Þegar við erum að taka inn flóttamenn, þá...

Re: saklaust fólk deyr í stríði, einfalt

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Humm, ég heyrði að það væri einhver þingmaður í Kanada sem vill senda UN rannsóknamenn að leita að gereyðingavopnum í Bandaríkjunum :)

Re: Icelandair eða Iceland Express?

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þetta með samkeppnina virkar jú þannig að ef nýtt flugfélag kemur á markaðinn þá lækka fargjöldin hjá öllum. Ef enginn flýgur síðan með þessu nýja félagi vegna þess að fólk getur jú fengið góðu þjónustu Flugleiða á sama verði, betri mat, betra bíó, betra útvarp eða hvað það nú er, þá hættir nýja flugfélagið að fljúga og Flugleiðir geta hækkað fargjaldið aftur. Þess vegna myndi ég frekar fljúga með Iceland Express til að viðhalda samkeppni.

Re: Tungumál

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það væri líklega erfiðara að læra japönsku þar sem danska er líkari íslensku. Annars er fínt að læra dönsku. Það er gott fyrir Íslendinga að geta farið í nám til norðurlandanna vegna þess að það er svo margt sem ekki er kennt á Íslandi vegna mannfæðar. Líka ódýrt að fara þar í skóla. Þeir sem fara í nám í Bretlandi þurfa oft að borga há skólagjöld og líka þeir sem fara til Bandaríkjanna nema þeir fái TA eða RA.

Re: Í hvaða HELV*** skóla get ég farið?!?

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég myndi halda að listasvið FB eða hönnun í IR eða IH sé góður undirbúningur. Annars er Listaháskóli Íslands (http://www.lhi.is/) nýbyrjaður að kenna arkitektúr þannig að þú getur bara spurt þar hvaða undirbúning er best að hafa. Ég veit hins vegar ekki hvort þeir kenna innanhússarkitektúr eitthvað sérstaklega þar. Það gæti verið að þú þyrftir að fara út í nám. Ég tel nokkuð víst að innanhússarkitektar vinni almennt á arkitektastofum :)

Re: Í hvaða HELV*** skóla get ég farið?!?

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þetta er ekki einhver maður þekkir mann sem þekkir mann saga. Það vill svo til að amma stelpunnar er mamma mín og ég var á staðnum þegar hún hringdi þetta afdrifaríka símtal. Fyrst var henni sagt að stelpan hefði ekki komist inn í skólann, sorrý. Þá sagði hún eitthvað á þessa leið “En pabbi hennar er nú læknir og nýbúinn að fá yfirlæknisstöðu á Landsspítalanum” og viðbrögðin voru eins og ég sagði “…ó… bíddu aðeins”. Síðan kom manneskjan aftur í símann eftir smástund og sagði að þetta hefðu...

Re: eiga kettir og ljón eitthvað sameiginlegt?

í Kettir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er kannski smá eðlismunur á veiðum ljóna og katta vegna þess að ljónynjur veiða almennt saman í hóp og veiða dýr sem eru álíka stór og þær sjálfar en kettir veiða aðallega einir og þá smádýr. Ef ljón hefðu nóg að éta, þá gæti vel verið að þau veiddu sér til skemmtunar eins og kettir. Annars eru kettir mjög vel hannaðir af náttúrunni. Þeir eru góð veiðidýr, fjölga sér eins og kanínur og nógu litlir til að fólki finnst þeir bara sætir, jafnvel þó þeir hagi sér eins og villidýr. Hins vegar...

Re: Í hvaða HELV*** skóla get ég farið?!?

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Sagan um stelpuna, ömmuna og pabbann sem er læknir er 100% sönn. Þetta fólk er nefnilega mjög skylt mér :) Samt ekki þannig að henni hafi verið bjargað frá falli heldur átti hún ekki að fá skólavist sem breyttist allt á undursamlegan hátt þegar pabbi hennar reyndist vera læknir. Þá var greinilega ekki málið að fara inní geymslu og sækja eitt auka borð til að bæta í skólastofuna. Eða kannski var bara einhverjum öðrum neitað af því pabbi hans var bara smiður eða eitthvað. Skólafélagar mínir í...

Re: Framhaldsskólar

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er ekki HÍ sem byggir námið sitt á MR heldur MR sem stendur sig svona vel í að undirbúa nemendur sína fyrir HÍ. T.d. þegar ég var í Verk & Raun, þá voru krakkarnir úr MR miklu betur undirbúnir og höfðu verið að nota fyrsta árs bækurnar úr HÍ í stærðfræði og eðlisfræði á síðasta árinu sínu í MR. Krakkarnir úr MS virtust líka vera með nokkuð góðan undirbúning. MH og Versló sæmilegan. Aðrir skólar voru ekki með það marga nemendur þarna að það væri marktækt en hins vegar virtust nemendur úr...

Re: Óska eftir Ericsson T39

í Farsímar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Fylgstu með líka á kassi.is því ég sá T39 þar um daginn.

Re: Weather in Iceland

í Húmor fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þú sagðir að “Útlendingar þola ekki smá kulda” en hins vegar er það sanna að útlendingar þola kulda greinilega mun betur en Íslendingar :P Það er heldur ekkert skrítið að fólk í Evrópu sé nískt á kyndinguna því hún er mjög dýr hjá þeim.

Re: Í hvaða HELV*** skóla get ég farið?!?

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég veit ekki hvaða skóli kennir jólasveinum en í sambandi við tímalengd náms, þá líður þetta mjög hratt þegar þar að kemur. Langt að hugsa til þess núna en þegar þú ert komin að því að klára menntó, þá þykir þér ekkert langt að bæta nokkrum árum við. Það er mjög margt sem þú getur starfað við sem maður veit oft ekki mikið um vegna þess að maður þekkir engan í þeirri stétt. Ég þekkti strák sem vann við vatnamælingar hjá Orkustofnun á sumrin og var starfið hans að vaða út í straumharðar ár með...

Re: Í hvaða HELV*** skóla get ég farið?!?

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
MR *er* snobbskóli. Skólafélagar mínir í HÍ sem voru úr MR sögðu að það væri algengt að börnum fyrirmanna í þjóðfélaginu væri bjargað frá falli á ótrúlegan hátt. Ég veit líka dæmi um stelpu sem átti ekki að komast inn fyrr en amma hennar sagði skrifstofunni að pabbi hennar væri læknir. Þá var þetta bara “Ó, bíddu aðeins, þetta hljóta að vera einhver mistök”. Segðu mér svo að MR sé ekki snobbskóli :)

Re: Afhverju vilja þeir setja samræmd stúdenst próf

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
En þú getur áfram valið þannig framhaldsskóla. Það eru mörg fleiri fög kennd en þessi 3 (og þú þarft bara að taka samræmd próf úr tveimur þeirra). Þú getur áfram tekið sjúkraliðabraut, fiskvinnslubraut, bætt stúdent ofan á iðnnám og hvað sem þér dettur í hug. Mér finnst að stúdentinn eigi að innihalda einhvern grunn, ekki að fólk geti verið 4 ár í skóla og lært bara bastkörfugerð og stillingar umferðarljósa eða whatever og fengið stúdent út á það. Mér finnst þessi 3 samræmdu próf í rauninni...

Re: Ívar frændi minn á hund

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
En það er varla hægt að banna ef fólk er með inniketti?

Re: Dominos..

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég var búinn að heyra svo mikið um Eldsmiðjuna og fór þangað að prófa en pizzan sem ég fékk var ógeð. Held ég hafi ekki smakkað neitt álíka ef frátaldar eru svokallaðar pizzur sem seldar eru í mötuneyti í skólanum mínum en eru í raun pappi með tómatsósu á.

Re: Þessi ummæli dæma sig sjálf. (ET)

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er ekki atvinna að hafa þjóðgarð nema það mæti einhver þangað. Annars skil ég ekki af hverju þetta fer ekki saman. Nú er LV búin að leggja vegi og þá geta allir farið þarna uppeftir að njóta útsýnis yfir fagra náttúru vora, alla vega ef það horfir í aðra átt en virkjunin er. Hins vegar er oft eins og fólk vilji bara hafa landið í krukku. Ef við ætlum að búa á þessu landi, þá getur ekki allt verið ósnert. Þar að auki virðist það fólk sem mótmælir þessu hvað mest vera þessar...

Re: Hanndklæði

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Jú, frekar pirrandi en mér finnst samt meira pirrandi þegar maður fær sér sæti til að gera þarfir sínar og fattar svo þegar maður er búinn að það er enginn klósetpappír.

Re: Er ég hóra???

í Rómantík fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ef þú tókst ekki pening fyrir, þá ertu ekki hóra. Hins vegar ertu ómerkileg að halda framhjá, tala nú ekki um með vini kærastans. Ef þú hélst að hann væri að halda framhjá þér, þá hefðirðu bara átt að hætta með honum. Þar að auki ertu ekki lögríða fyrr en 14 ára þannig að ef foreldrar þínir komast að þessu og er ekki nákvæmlega sama, þá gætu þau kært báða strákana fyrir að vera barnaperrar. Hvort sem þeir eru 15 eða orðnir 16, þá eru þeir orðnir sakhæfir og að ríða stelpu yngri en 14 er...

Re: Weather in Iceland

í Húmor fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er nú ekki einu sinni sérlega kalt á Íslandi. Ég bý í Kanada og það er búið að fara niður í 37 gráðu frost í vetur og ég man aldrei eftir því að hafi farið niður fyrir -14 í Reykjavík. Það er líka mjög algengt að það sé kalt í húsum í Evrópu vegna þess að fólk er að spara kyndinguna. T.d. er í mörgum löndum ekki byrjað að kynda fyrr en ákveðinn mánaðardag, jafnvel þó það sé farið niður í 10 gráða hita inni. Ég hef heyrt fólk tala um það bæði sem hefur verið í námi í Frakklandi og í...

Re: Mjög fyndið :)

í Farsímar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Voru þeir keyptir á sama stað? Kannski var hans fluttur inn frá Bretlandi eða eitthvað svoleiðis. Annars ætti að vera hægt að laga þetta með því að uppfæra hugbúnað í símanum þannig að hann gæti líklega látið laga þetta á verkstæði fyrir lítinn pening ef hann hefur áhuga.

Re: 6210 - mjög góðir símar!

í Farsímar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Bróðir minn missti sinn 5110 í innkeyrsluna og keyrði óvart yfir hann. Skjárinn hætti að virka en síminn virkaði fínt til að hringja og taka við símtölum þannig að hann gaf bara kærustunni sinni hann :)

Re: Ívar frændi minn á hund

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er ekkert að því að eiga bæði hund og kött. Eina sem mér finnst um hann frænda þinn að hann ætti að taka ábyrgð á þeim dýrum sem hann fær sér. Maður fær sér ekki bara dýr og gefur það svo þegar maður er orðinn leiður á því. Það er líka eitt vandamál við að eiga engan pening. Það kostar nefnilega að eiga dýr. Þau þurfa að éta og þau þurfa að fara til dýralæknis af og til. Af hverju geturðu annars ekki haft köttinn? Er bannað að eiga ketti í Áslandinu?

Re: Siberian Husky ?

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Held að þessi maður hafi verið eitthvað ruglaður. Það er hægt að sjá upplýsingar um Siberian Husky á http://www.dogbreedinfo.com/siberianhusky.htm og þar er sagt að þeir séu mjög góðir með börnum, vinalegir við ókunnuga og elskir að fjölskyldu sinni. Ég bjó í Bandaríkjunum á tímabili og þá bjuggu í næstu íbúð við mig par með 3 stóra hunda og einn þeirra var einmitt Husky. Ég tók ekki eftir að það vantaði á þau neina líkamshluta og ekki annað að sjá en að hundurinn væri mesta gæðablóð.

Re: Jasmín og Kókómjólk

í Kettir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er náttúrulega ekki gott fyrir ketti að úða í sig sykri sem kókómjólk er stútfull af. Það gæti ruglað insúlín framleiðsluna og hún gæti orðið sykursjúk. Fyrir utan það þá þola margir kettir illa laktósa og þó þeir séu vitlausir í mjólk þá getur þeim liðið illa af henni. Annars er þetta líklega í lagi í hófi en kannski best að spyrja bara dýralækni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok