Tarsan, í eða úr tísku? Ég var að lesa grein í blaðinu Nýtt líf um daginn og þar var grein sem kallast “Tarsan kominn úr tísku?”. Þar er meðal annars talað um að nútímakarlmenn plokki á sér augabrúnirnar, liti þær, fari í vaxmeðferðir (fótum, undir höndum og á bringu), gangi í pilsum, máli sig og jafnvel naglalakki sig. Í greininni er reynt að útskýra hver ástæðan gæti verið á þessari breytingu á karlmönnum og niðurstaðan er sú að að meðan konur verði sjálfstæðari og “karlmannlegri” kjósi þær kvenlegri karlmenn. Gott dæmi um kvenlegan karlmenn eru talin upp og fremstur fer þar David Beckham en hann er alltaf vel snyrtur, lakkar jafnvel á sér neglunar, er ófeiminn við að klæðast áberandi fatnaði, skiptir mjög reglulega um hárgreiðslu, hefur ósjaldan sést í pilsi og heyrst hefur af hann fái nærbuxur frúarinnar stundum lánaðar.

Í þessari sömu grein er viðtal við Jón Jósep (Jónsa) söngvara hljómsveitarinnar Í svörtum fötum og hann segist reglulega lita á sér augabrúnir og augnhár með létt brúnum lit og bera á sig rakakrem daglega og svo horfði ég á myndband með honum áðan þar sem hann var með mjög áberandi bláan augnskugga.

Er þetta virkilega það sem konur vilja í dag? Ef ég svara fyrir sjálfan mig þá þá er svarið Nei! Ég kæri mig ekkert um að karlmann sem eyðir meiri tíma og peningum í útlitið heldur en ég og þó ég sé tilbúin í að deila með karlmönnum hlutum eins og rakakremi, ljósabekkjum og hárlitun þá finnst mér hlutir eins og andlitsfarði einkaeign konunar! Ég kæri mig bara ekkert við framtíð þar sem ég og minn maki sláumst um meikið á morgnana og ég vill hafa mína menn með hár á líkamanum.

Hvaða skoðun hefur þú á þessum málum, er ég bara gamaldags?

Kv. EstHe
Kv. EstHer