BAxon, ef þú ætlar að hafa eitur aðgengilegt úti, þá verður þú að passa vel að hundurinn þinn komist ekki í það. Þegar ég átti hund, þá var eitrað fyrir músum í bílskúrnum hjá okkur og hundurinn komst næstum því í eitrið, hélt að það væri hundakex eða eitthvað. Við rétt náðum í skottið á honum þar sem hann stóð með galopinn kjaftinn yfir eiturdallinum og ætlaði að fá sér góðan bita.