Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Rugl og Þvæla?

í Deiglan fyrir 23 árum
Margir feministar eru ekki lengur að berjast fyrir jafnrétti kynjanna heldur fyrir sérréttindum kvenna og það er væntanlega það sem margir eru á móti. Og kyssirðu móður þína virkilega góða nótt? Hvað ertu eiginlega gamall?

Re: Forsetagifting

í Deiglan fyrir 23 árum
Þetta er í lögum um mannanöfn, 1996 nr. 45: 12. gr. Erlendur ríkisborgari, sem stofnar til hjúskapar við Íslending, má taka upp kenninafn maka síns. Enn fremur má hann kenna sig til föður maka síns eða móður þannig að við eignarfallsmynd eiginnafns komi dóttir ef kvenmaður á í hlut en son ef um karlmann er að ræða. Kenninafn er skilgreint í sömu lögum sem: 8. gr. Kenninöfn eru tvenns konar, föður- eða móðurnöfn og ættarnöfn. Hún má sem sagt heita Grímsson, Grímsdóttir,...

Re: Mási varð fyrir fordómum

í Kettir fyrir 23 árum
Af hverju ættirðu að þurfa að fara með köttinn þinn í búð?

Re: stelpa og strákur

í The Sims fyrir 23 árum
Þegar annað býður hinu í heimsókn, þá er gott að elda mat fyrst þannig að þau geti borðað saman og svo gera eitthvað skemmtilegt, dansa, sitja í heitum potti eða horfa saman á imbann. Svo propose.

Re: Skotið á kött !

í Kettir fyrir 23 árum
Ef þú sigar hundinum þínum á eitthvað, hvort sem er maður eða dýr að gamni þínu, þá er líklegast að hundurinn væri tekinn af þér og svæfður. Hundur sem ræðst á ketti gæti líka ráðist á lítil börn.

Re: Topp 10 listinn yfir heimskar stofnanir

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Já, það er ekkert ódýrara að lifa þó maður nái ekki öllum prófunum :( Mig minnir að þeir hafi árangurstengt upphæðirnar þegar þeir breyttu kerfinu '92 og á sama tíma byrjuðu þeir að borga ekki fyrr en eftir önnina. Fyrir þann tíma var borgað eftir fyrstu önnina og svo mánaðarlega eftir það.

Re: "klikker"

í Hundar fyrir 23 árum
Ég hef bara séð þetta í imbanum. Þá ertu með eitthvað tæki sem smellur í og alltaf þegar hundurinn gerir rétt, þá smellirðu með tækinu til að merkja nákvæmlega hvað hann var að gera. Til að byrja með kennirðu hundinum að smellirnir séu góðir með því að hrósa og gefa nammi líka en eftir að hann er farinn að tengja smellina við eitthvað gott er hægt að draga úr namminu þar til það er alveg farið og bara nóg að smella.

Re: Adobe Photoshop=> Pixels

í Hugi fyrir 23 árum
Þeir geta kannski lagað myndir eitthvað smá en engan veginn eins mikið og sést í bíó. Það var t.d. í CSI þar sem þeir voru með óskýra mynd af stelpu og skýrðu upp þumalputta sem var fyrir linsunni til að fá fingrafar og skýrðu svo upp augun hennar svo hægt væri að sjá hvað speglaðist í þeim. Frekar fyndið :)

Re: Forsetagifting

í Deiglan fyrir 23 árum
Ég er nú viss um að ættingjar hennar hefðu haft efni á að borga undir sig flugfarið sjálfir en þau hefðu kannski þurft að redda gistingu. Líklega líka fyrir það kóngafólk sem hefði komið.

Re: Topp 10 listinn yfir heimskar stofnanir

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Ég veit að námslánin eru tekjutengd en fólk er alltaf að væla um að það eigi að hætta því. LÍN hefur líka verið að láta undan þessum kröfum og minnka tekjutenginguna á lánunum. Held að skerðingin sé komin niður í 35% af umframtekjum. Ég bara sé hins vegar enga ástæðu til að hafa ekki tekjutengingu á þessum lánum. Ég man ekki nákvæmlega hvernig reglurnar voru þegar ég var á þeim en minnir mig að frítekjumarkið hafi ekki verið nema 3xframfærsla og skerðingin hafi verið alla vega 50%

Re: Forsetagifting

í Deiglan fyrir 23 árum
Eiginmenn á Íslandi mega líka taka upp nöfn maka sinna. Vissirðu það? Annars er engin regla á þessu í flestum löndum. Stundum er báðum nöfnum skeytt saman og stundum halda bæði sínu, þá kannski sérstaklega þegar frægt fólk eða feministar gifta sig :)

Re: Hver er bestur..

í Farsímar fyrir 23 árum
Síminn sem hentar þér best er náttúrulega bestur fyrir þig. Ég á núna Motorola sem mér líkar ágætlega við. Reyndar brotnaði af honum loftnetið en það virðist ekki hafa neitt að segja. Áður átti ég Panasonic sem var líka fínn.

Re: Langloku-rist

í Tilveran fyrir 23 árum
Hva, lastu ekki á miðann á henni? Annars finnst mér ananas góður :D

Re: ER KOMMÚNISMI VONDUR ?

í Deiglan fyrir 23 árum
Þetta getur virkað vel fyrir lítinn hóp en virkar það eins vel fyrir heila þjóð? Það eru alltaf einhverjir sem nenna ekki og í kerfi þar sem allir fá það sem þeir þurfa, þá þurfa þeir ekki að gera neitt. Með því verður meira álag á þá sem nenna og þeir verða óánægðir. Í litlum hópi fá þeir að finna fyrir því sem hjálpa ekki til, alla vega illt auga. Í þjóðfélagi getur enginn vitað hver það er sem nennir ekki að vinna nema kannski félagsmálayfirvöld, hans vinir og jafnvel nágrannar en ekki...

Re: Perla

í Hundar fyrir 23 árum
Skamma hana þegar hún gerir þetta. Verður að gera það þegar þú stendur hana að verki, ekki sekúndu seinna.

Re: Karlmenn með börn á brjósti...

í Deiglan fyrir 23 árum
Sumir karlmenn eru reyndar með brjóst og sumir svo rosaleg að þeir ættu helst ekki að láta sjá sig á almannafæri nema með haldara :) Ég hugsa samt að húðin myndi dragast saman ef það væri bara skinn en ef það væri meira þyrfti kannski fitusog eða eitthvað. Spáðu bara í óléttar konur. Húðin á maganum dregst saman, hún lafir ekki bara eins og poki.

Re: drasl

í Tilveran fyrir 23 árum
Já, maður verður að plana sín veikindi fyrirfram á virkum dögum og helst batna um helgar. Besta veiki sem ég hef fengið var vírus í augun. Ég var þá að vinna við tölvur og gat ekki unnið í 5-6 vikur vegna þess að ég gat ekki horft á skjáinn, of bjart en hins vegar gat ég gert allt annað. Náttúrulega ekki verið á netinu mikið en bara skroppið út að labba og haft það gott, náttúrulega allt á fullum launum :)

Re: Er áfallahjálp tískufyrirbæri ?

í Deiglan fyrir 23 árum
Auðvitað ættu þeir að gera það. Þeir hafa jú líka biðlaun. Ættu að geta fengið vinnu fljótlega og eru þá á tvöföldum launum þar til biðlaunin eru búin. Nógur peningur í sála.

Re: Topp 10 listinn yfir heimskar stofnanir

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Þar sem lánin eru mjög hagstæð, 1% vextir, lánað til 40 ára, fellur niður ef þú klárar ekki að borga eða ef þú deyrð, þá eru þetta ekki bara lán heldur líka styrkur. Mér finnst bara engin ástæða til að styrkja þá sem hafa góðar tekjur. Finnst þér það? Á fólk að geta fengið námslán á góðum kjörum þegar það þarf ekki á þeim að halda, svo það geti fjárfest þau á betri vöxtum?

Re: Aldurinn til að komast inná þing !

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Mér finnst sjálfræðisaldur alveg nóg til að fara inná þing en manneskjan þyrfti náttúrulega að hafa þroska til að takast á við starfið og það er bara misjafnt milli einstaklinga.

Re: stúdentspróf á 2 árum

í Skóli fyrir 23 árum
Mér finnst þetta ekkert vitlaust fyrir góða námsmenn. Sparar 2 ár.

Re: útivistartími barna

í Börnin okkar fyrir 23 árum
Það er ekki 16 til að stunda kynlíf heldur 14. Það er alltaf verið að spyrja að þessu inni á kynlíf og hefur margoft komið fram. Lögin eru þannig að undir 14 en alveg bannað, 14-15 má ekki tæla með gjöfum eða blekkingum en annars leyft og undir 18 má ekki borga fyrir greiðann. Annars láta krakkar ekkert stoppa sig að gera það ef þeir vilja. Það eru engin viðurlög við því að stunda kynlíf fyrir barn sem er innan þessara aldursmarka og maður verður heldur ekki sakhæfur fyrr en 15.

Re: Er áfallahjálp tískufyrirbæri ?

í Deiglan fyrir 23 árum
Ætli það sé ekki áfall ef þú ert í vinnunni að dúlla þér og einhver kemur og ógnar þér eða ástkærum vinnufélögum þínum með hníf? Kannski fær fólkið martraðir um þetta á hverri nóttu eða kannski fær það bara martraðir um sála með áfallahjálpina. Alla vega þá held ég að það veiti ekki af að veita áfallahjálp þessu liði sem er verið að lemja niðrí bæ um hverja helgi. Ég þekki strák sem var laminn illa og hann fékk sko enga áfallahjálp. Þegar hann ætlaði að kæra hjá löggunni, þá var meira að...

Re: Ericsson Serial Code?

í Farsímar fyrir 23 árum
Þú getur séð Ericsson cheat codes á <a href="http://admiral.narod.ru/a3_ericsson.htm">http://admiral.narod.ru/a3_ericsson.htm</a> Virðast vera örvar og stjörnur aðallega til að sjá framleiðsludag.

Re: útivistartími barna

í Börnin okkar fyrir 23 árum
SnaeWar: Þú getur fundið útivistarreglurnar í barnaverndarlögum, 92. grein. Lögin eru á: http://www.althingi.is/lagas/128a/2002080.html
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok