mig langar að koma á framfæri mínar bestu þakkir fyrir vel unnin störf og skipulagða sýningu. Ég var áhorfandi á laugardeginum og keppti með 2 chihuahuahunda á sunnudeginum. þessi sýning var létt og skemmtileg. stjórn ÍSHUNDA Á ÞAKKIR SKYLDAR OG ALLT ÞAÐ FÓLK SEM TEKUR ÞÁTT Í AÐ FRAMKVÆMA.meira segja var boðið upp á æfingakvöld og kynnt fyrir nýjum hundaeigendum hvernig allt gengur fyrir sig, einnig nauðsynlegt fyrir hundana að hittast. ´Sérstaklega smáhundar því þeir stóru hittast á hundasvæðum.Ég keppti í fyrra í fyrsta skiptið, og er orðin forfallin, þetta er svo gaman.hef dregið mágkonu mína með sinn silky terrier og hún ætlar galvösk að halda áfram.Semsagt hin besta skemmtun fyrir menn og dýr. kveðja Anna Magga.