Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: gott að vita áður en að maður fer í sims

í The Sims fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þegar ég vil að fólk gifti sig þá fer ég í húsið þar sem ég vil að þau búi og læt það sem á heima þar hringja í hitt. Ef hitt afsakar sig og vill ekki koma í heimsókn, þá hringir maður bara aftur og aftur þangað til það vill. Þá elda ég mat, gott er að hafa matvinnsluvél og örbylgjuofn til þess að það sé örugglega búið þegar hitt kemur í heimsókn. Svo éta þau matinn og tala saman. Þá læt ég þau tala saman meðan þau eru að kynnast. Mér gefst best að nota bara talk. Þar sem maður getur ekki...

Re: gott að vita áður en að maður fer í sims

í The Sims fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þú verður að seiva áður en þú hendir kallinum, annars fer hann niður á síðasta seiv. Ef þú ert óvart rekinn úr vinnu sem þú vilt ekki missa, þá geturðu líka ekki seivað og hent kallinum og þegar hann kemur aftur er ekki búið að reka hann.

Re: Sjónvarpstöðvar

í Sjónvarpsefni fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Stöð 2 þegar hún byrjaði var ekki ósvipuð og Skjár 1. Byrjaði með fullt af góðum þáttum síns tíma og var að framleiða ódýrt íslenskt efni. Það voru nú góðir dagar :)

Re: einar

í Farsímar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ef símarnir sem Síminn var að lána voru að hverfa, ég meina nú vita þeir nöfnin á fólkinu sem kom með sinn í viðgerð og það hlýtur að hafa kvittað fyrir lánssímanum, trúi ekki að þeir hafi verið svo vitlausir að gera það ekki, þá hlýtur nú að vera einfalt að senda viðkomandi bara reikning ef hann skilar ekki.

Re: óviðeigandi framkoma formanns asparinnar

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ef einhver er að bögga þig fyrir að vera feitur þá áttu bara að segja að hann sé helvítis dóni og það komi honum andskotann ekkert við.

Re: hvolpa-svefn

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hundurinn er hópdýr og þegar þú lokar hann inni í þvottahúsi, þá lítur hann svo á að það sé verið að refsa honum. Hafðu búrið frekar inni hjá ykkur.

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
En ef læðan lifir í 10 ár, þá ertu búin að kaupa pilluna 26 sinnum og búin að eyða 13 þús. kr. þannig að þú getur alveg eins bara látið gelda hana strax og þá þarftu heldur aldrei að muna eftir að gefa henni neina pillu. Ég hef líka heyrt að það sé algengara að læður sem eru að pillunni fái krabbamein.

Re: Atvinnuleysi hámenntaðra

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Skólinn er alltaf smá á eftir vegna þess að markaðurinn breytist meðan fólk er í námi. Fyrir ca. 3 árum var ennþá mjög auðvelt að fá vinnu við tölvur og þá voru ábyggilega margir sem fóru í tölvunarfræði og héldu að þeir myndu græða rosa pening. Þetta fólk er að klára núna og kemur útá markað þar sem það fær mjög lítið að gera. Það eru ábyggilega frekar fáir sem eru að fara í tölvunarfræði í dag vegna kreppunnar en fólk ætti ekki að láta það aftra sér vegna þess að eftir 3 ár þegar það klára...

Re: Áfengisaldurinn... ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er líka mjög dýrt að búa í London. Hins vegar ef England heillar, þá eru margar fleiri borgir. Ég fór t.d. að heimsækja nokkra félaga mína af netinu fyrir nokkrum árum sem voru í háskóla í Sheffield og það var mikið stuð en reyndar borgin sjálf frekar grá eitthvað. Þú gætir líka búið í Torquay og spókað þig á ströndinni :)

Re: Atvinnuleysi hámenntaðra

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Tölvubransinn er bara svona upp og niður og þetta er ekki í fyrsta skiptið sem verður þensla og svo aftur kreppa í þessum geira. Ég var að vinna við þetta í 5 ár svo ég þekki smá til. Það er frekar illt fyrir þá sem verða atvinnulausir en það er um að gera að hafa eitthvað í bakhöndinni til að taka sér fyrir hendur. Ef fólk er of menntað til að fá vinnu við eitthvað annað, þá er ekki mikið mál að skala niður umsóknina sína. Láta bara líta út fyrir að maður hafi kannski farið í skóla en ekki...

Re: Áfengisaldurinn... ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það sem ég þekki af Bretum þá fara þeir mikið á pöbbinn að fá sér öllara. Þetta gera margir á hverju kvöldi, sumir verða blindfullir meðan aðrir fá sér bara 1 eða 2 til að vera með. Á virkum dögum loka pöbbarnir kl. 11 svo allir geti farið heim að sofa og vaknað í vinnuna daginn eftir. Ég held að það sé 18 ára aldurstakmark og þeir klára einmitt stúdentinn 18 og fara þá flestir í háskóla þar sem þeir leigja kannski nokkrir saman hús og fara á stúdentapöbbinn flest kvöld og kannski klúbba um helgar.

Re: Karlkyn og kvenkyn

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Kisan mín er alveg til í að láta klappa sér og hoppar uppí fangið á öllum sem koma í heimsókn en hún er kannski bara undantekning. Ég hef þekkt aðrar læður sem hafa ekki verið svona.

Re: Mig vantar ráð til að losna við kóngulær.

í Heimilið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Eru ekki til einhver dýr sem éta þær? :)

Re: barnaöryggi í eldhúsum

í Heimilið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Bróðir minn setti nú bara teygju á höldurnar og virkaði vel heima hjá þeim.

Re: Unglinga

í Djammið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þú getur í rauninni aldrei verið viss um að þú verðir ekki alki en ef þú fylgist með drykkjunni, þá geturðu tekið á því áður en það er búið að rústa lífinu hjá þér. Pabbi minn er alki og 2 bræður mínir þannig að ég þekki þetta nokkuð vel. Það versta sem þú getur gert er að ákveða fyrirfram að þetta geti ekki komið fyrir þig því ef þú lendir síðan í þessu, þá ertu bara í afneitun kannski heillengi meðan þú ert að drekka þig út úr vinnu og húsi. Í sambandi við sjúkdómseinkenni, þá sagði ég...

Re: Tvær brautir

í Skóli fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Skv. heimasíðunni þeirra, þá er slatti í kjarnanum og öðru sameiginlegt og þú getur tekið valið af einni brautinni úr skyldunni á hinni þannig að þú ættir að geta klárað báðar á 5 árum ef þú skipuleggur námið vel.

Re: MP3 GSM?

í Farsímar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég er með útvarp í mínum síma en þarf einhver sérstök heyrnartól til að geta notað það og hef aldrei nennt að kaupa þau.

Re: að fara að kaupa síma og vantar smá hjálp:)

í Farsímar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hringdu í Hátækni og spurðu hver af þessum týpum bilar minnst.

Re: MP3 GSM?

í Farsímar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nokia 5100, 6510, 6610, 6800 og 8310 eru með útvarpi og 5510 er með útvarpi, MP3 og lyklaborði. SonyEricsson P800 er með MP3

Re: Tvær brautir

í Skóli fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta er ekkert mál en það er líklegt að skólinn sé með eitthvað hámark einingafjölda sem má taka á önn þannig að þú klárar ekki á 4 árum, það er nokkuð víst. Þú getur fengið námsráðgjafa til að hjálpa þér að raða áföngum niður á annir og það eru ábyggilega einhverjir áfangar sem eru sameiginlegir á milli brautanna. Hvaða skóla ætlarðu í? Af hverju ferðu ekki bara í IR eða IH og tekur hönnun ef þú ætlar að læra hönnun? Þú getur tekið stúdent þar líka.

Re: Mitt vandamál..

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hafðu það í huga að þú ert ekkert verri en hver annar hvað sem hver segir sem eru að stríða þér. Þú átt eftir að lenda í góðum hópi í skóla eða á vinnustað þar sem þú ert tekinn í sátt og þér er ekki strítt og sjálfsálitið lagast með tímanum. Þangað til getur þú prófað að æfa samræður fyrir framan spegil eða í huganum og svo skaltu bara deita stelpur af ircinu :)

Re: Tímar breytast!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég held að þetta séu bara þínir foreldrar. Ég er 33 og þegar ég var lítill fékk ég næstum eins mikið nammi og ég vildi. Það var oftast til kókómalt og ef það var til mátti maður háma það. Ég setti yfirleitt hálft glas og svo smá mjólk útá. Ég fékk kókómjólk í nesti á róló. Nammidagar voru ekki komnir í tísku þá en við fengum reyndar yfirleitt ekki gos nema um helgar. Ég held að krakkar séu orðnir feitari vegna tölvuleikja, netsins og meira sjónvarpsgláps. Þegar ég var lítill, þá var ekki til...

Re: Nupo létt.

í Heilsa fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Farðu bara eftir leiðbeiningum og þá mun þetta virka. Mamma mín er búin að prófa alla megrunarkúra sem til eru og þeir virka alltaf ef það er farið eftir þeim en hennar vandamál er að hún heldur þá aldrei út. Annars væri sniðugra fyrir þig að hreyfa þig bara og éta minna og sleppa alveg fitu og sykri og drekka 2 lítra af vatni á dag en það er kannski ágætt fyrir þig að byrja í einhverjum strúktúr eins og Nupo létt. Þá hefurðu reglur til að fylgja.

Re: Klámlaust ísland!

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hættu að skrá email addressuna þína á síður á netinu, í gestabækur, keppnir, á spjall o.s.frv. Ef þú þarft að láta email til að skrá forrit, láttu þá falsaðan email eða einnota hotmail addressu. Fáðu þér yahoo addressu. Þeir eru með spam filter sem nær flestum þessum skeytum og setur þau beint í spam möppuna fyrir þig.

Re: 10 leðir til að spara

í Fjármál og viðskipti fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Maður á alla vega ekki að gera við rafmagnið eða rafmagnstæki nema maður viti hvað maður er að gera en hins vegar er allt í lagi að laga stíflaða vaska og svoleiðis. Það er ekkert mál.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok