Hér er smá lýsing á vandamáli mínu:
Ég get verið mjög sjarmerandi þegar ég er að tala við stelpur, alla vega hef ég heyrt eitthvað svipað því hjá nokkrum þeirra, en málið er að ég get bara fengið mig til að tala við stelpur á ircinu eða msn. Í hinum raunverulega heimi get ég varla fengið mig til að horfa augliti til auglitis við stelpu án þess að fara að líða óþægilega, eins og ég eigi eftir að lenda í vandræðum ef einhver tekur eftir því. Síðastliðin ár hafa nefnilega verið þannig að mér hefur verið strítt fyrir næstum hvert einasta smáatriði sem ég hef gert. Þess vegna get ég eiginlega bara talað almennilega við stelpu þegar enginn getur fylgst með. Þetta er samt verulega mikið klandur í mínum augum.
Hefur einhver hugmynd um hvernig ég gæti breytt þessu?<br><br><font color=“#FF0000”><b>Est Sularus oth Mithas - My honor is my life</b></font>
<font color=“#0066FF”><b>Í heiminum gildir survival of the frekest og ég er í útrýmingarhættu</b></font>
Kíkið endilega á <a href="http://kasmir.hugi.is/lundi86“>kasmír síðuna mína</a>
<a href=”http://www.hugi.is/smasogur/korkar.php?sMonitor=viewpost&iPostID=1106958&iBoardID=469"><b>Drekabaninn</b></a