Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Hittumst á Dalsmynni og mótmælum.

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Af hverju ekki frekar að mótmæla hjá yfirdýralækni eða landbúnaðarráðuneyti, sem sagt hjá einhverjum sem hefur vald til að stoppa þetta?

Re: Leiðindi í skátunum

í Skátar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Af hverju ertu þá að hanga í skátunum ef allir eru svona leiðinlegir við þig? Af hverju ferðu ekki bara í eitthvað annað? T.d. Útivist eða Ferðafélagið eða í Rauða Krossinn?

Re: Andrés Önd og familíuhneykslið

í Myndasögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Skv. ættartrénu sem ég fann, þá er Andrés móðurbróðir unganna. Amma önd er föðuramma Andrésar og þess vegna langamma unganna en mamma Andrésar var systir Jóakims og systir þeirra var mamma Hábeins. Ungarnir eru því skyldir Hábeini og Jóakim en Amma Önd er bara skyld Andrési og ungunum.

Re: Andrés Önd og familíuhneykslið

í Myndasögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Kalla þeir hana ekki bara frænku sína vegna þess að hún er kærasta Andrésar? Ég fann ættartré Andrésar á http://www15.brinkster.com/wtstsgalor/donald.html og sé hana ekki þar en hún mun heita Daisy í upprunalegu útgáfunni og Hábeinn heitir Gladstone Gander.

Re: Áfengisaldurinn... ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér finnst bara hellings vit í því að hafa sakhæfisaldurinn 15 og finnst að hann ætti jafnvel að vera lægri en það ætti líka að vera unglingafangelsi. Ef einhver sem er 17 ára drepur einhvern, á þá bara að senda hann til sálfræðings og búið? Krakkar miklu yngri en 15 geta gert sér grein fyrir því að þau eru að gera eitthvað sem er rangt.

Re: Ég Öskra inni í mér

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég er alveg sammála því að þeir ættu ekki að þurfa að henda fólki út en þeir hafa rétt til þess og maður skilur það vel ef þeir hafa áhyggjur af eftirlitsmönnum. Það voru sendir eftirlitsmenn í Kópavogsstrætó og látnir reyna að svindla sér og svo reiknuðu þeir út tap skv. því hvað þeim tókst það oft og rukkuðu fyrirtækið sem sá um aksturinn. Ég hef fengið séns í strætó þegar ég hafði týnt græna kortinu mínu og var voða feginn en ég hef líka séð sama fólkið vera að fá séns aftur og aftur og...

Re: Ég Öskra inni í mér

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Bara fer eftir hvað það er mikið. Mér finnst það ekkert stóralvarlegt þegar einhver sleppur við að borga vaskinn af einhverju smotteríi sem hann er að láta gera fyrir sig, kannski 10 þús. kall sem ríkið tapar en þeir sem vinna alfarið svart og fyrirtæki sem svíkja undan skatti gera það öllu grófara.

Re: Ég Öskra inni í mér

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nákvæmlega þess vegna sem þeir hafa rétt til að spyrja, vegna þess að fólk svindlar á þessu og ég er viss um að margir gera það. Ég þekkti fólk sem borgaði barnagjald í strætó allt að til tvítugs og aðra sem pössuðu sig bara að vera með nógu mikið af krónum og fimmköllum til að geta farið ódýrt. Ég myndi nú ekki kalla þetta neina stórglæpastarfssemi, bara svona álíka og að svíkja undan skatti sem margir gera nú líka.

Re: Genetic Sexual Attraction

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Vissulega er úrkynjun fötlun. Byrjar þannig að einhver einstaklingur er með gallað gen sem einhverjir af afkomendum hans erfa síðan og eignist afkomendurnir barn, jafnvel þó þau séu þremenningar eða fjórmenningar (systkinabörn mega giftast á Íslandi), þá eru einhverjar líkur á að barnið verði fatlað. Ég sá í einhverjum þætti dæmi þar sem slíkt hafði gerst í Finnskum sveitum og hjón sem vissu ekki einu sinni að þau væru skyld höfðu eignast 2 börn, annað fatlað. Það var líka í einhverju...

Re: Ég Öskra inni í mér

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nema hann sé öryrki :)

Re: Ég Öskra inni í mér

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þú getur fundið þetta á bus.is og ég setti þær líka inní annað svar hérna fyrir ofan. Þetta er náttúrulega bara gert til að koma í veg fyrir að fólk uppí fertugt ferðist á unglingamiðum og eftir það á eldri borgara miðum.

Re: Ég Öskra inni í mér

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
geiri85: skv. reglum strætó, þá hefur bílstjórinn rétt til að biðja um skilríki ef þú ert með afsláttarmiða. Þú getur brjálast yfir því eins og þú vilt en þannig eru reglurnar og hann má reka þig út ef þú sýnir ekki skilríki.

Re: Ég Öskra inni í mér

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hér eru reglurnar, beint af bus.is: “Afsláttarfargjöld sérhópa gilda fyrir tiltekna hópa eins og sérákvæði tilgreina. Börn, 6-11 ára, eiga kost á sérstökum farmiðum. Það á einnig við um ungmenni, 12-18 ára og þá sem eru 67 ára og eldri. Sama á við um öryrkja, sem búa við það sem skilgreint er sem varanleg full örorka, þ.e. 75% örorka. Vagnstjóri getur óskað eftir að farþegi staðfesti rétt sinn til að nota afsláttarfargjald. Staðfestingar má einnig óska við kaup á afsláttarmiðum.” Skv. þessu...

Re: Ég Öskra inni í mér

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það eru ábyggilega ekki allir 11 ára krakkar með debetkort eða fá að ganga með það á sér. Þar að auki eru 11 ára krakkar á síðasta snúning með barnamiða. Hvað með þá sem eru 10 ára og stórir eftir aldri? Ekki fá þeir líka debetkort? Og ertu viss um að ellilífeyrisþegar séu aldrei spurðir? Ekki einu sinni þeir sem eru unglegir?

Re: Ég Öskra inni í mér

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvað er málið, að þú þurftir að sýna kort í strætó? Ef maður kæmi með eldri borgara miða og liti út fyrir að vera ekki degi eldri en fertugur, þá held ég að þú gætir bókað að margir vagnstjórar myndu biðja um skilríki. Þeir geta hins vegar ekki beðið krakka vegna þess að 12 ára krakkar eiga ekki skilríki :) Þeir eru heldur ekki að gera þetta til að vera leiðinlegir, alla vega ekki í flestum tilfellum, heldur eru þeir bara að vinna vinnuna sína og mega líka eiga það á hættu að það sé tékkað á...

Re: Mótorhlaupahjól

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég veit ekki hvernig sektin er en þeir mega ábyggilega ekki selja þér hjólið nema með öllum búnaði, á númerum og tryggt + þú verður líklega að hafa skellinöðruréttindi. Hins vegar gæti verið að þú gætir keypt af einhverjum sem á svoleiðis eða flutt inn.

Re: Mótorhlaupahjól

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ætli þeir hafi ekki hætt að flytja þau inn. Þetta var nefnilega flokkað undir skellinöðrur þannig að þú mátt hvergi vera á þessu, eða jú, á götunni og auk þess þarf að vera allur búnaður sem þarf að vera á skellinöðrum og væntanlega þá númeraplata og trygging líka.

Re: Unglinga

í Djammið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Skv. doktor.is verða allt að 20% þeirra sem drekka alkar. Það er 1 af hverjum 5. Gæti verið þú eða snikkin. Það ætti enginn að útiloka að það gæti komið fyrir sig. Það fara heldur ekkert allir á Vog sem eru alkar. Sumir halda bara áfram að drekka. Aðrir hætta sjálfir án aðstoðar.

Re: Unglinga

í Djammið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
snikkin, þú ættir ekki að útiloka þann möguleika að þú gætir orðið alki frekar en þú gætir fengið einhverja aðra sjúkdóma. Ef þú t.d. finnur fyrir einhverjum sjúkdómseinkennum sem gætu verið alvarleg, þá ferðu væntanlega til læknis og lætur tékka á því. Þú útilokar ekki bara þann möguleika að þetta gæti verið eitthvað alvarlegt. Það ætlar sér enginn að verða alki en það kemur samt fyrir slatta af fólki. Þess vegna kannski þig. Hins vegar ef þú hefur það bak við eyrað að hafa alltaf stjórn á...

Re: Eminem kærður af manni sem lagði hann í einelti

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er enginn að segja að það sé gott mál að ljúga einhverju uppá fólk, þess vegna getur það kært. Ef þú getur ekki sannað að það sé satt, þá tapar þú. Hins vegar sé ég ekki af hverju maður má ekki segja hvernig fólk er ef það hefur komið mjög illa fram. Segjum að þú eigir fyrrverandi kærasta sem var algjör drullusokkur og lamdi þig eins og harðfisk og hélt fram hjá þér. Myndir þú ekki segja öllum bænum hvernig hann er til að vara aðrar stelpur við eða myndir þú sleppa því vegna þess að þú...

Re: Guð blessi dómskerfið

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér finnst að við verðum eiginlega að ákveða hvort við viljum hafa skaðabætur eða ekki. T.d. færðu engar skaðabætur ef þú ert laminn nema þú hljótir varanlega örorku. Ekki heldur vegna læknamistaka. Í Bandaríkjunum geturðu fengið helling út á “pain and suffering”. Svo er líka mikill minnihluti nauðgunarmála sem yfirleitt koma fyrir dóm, hvað þá að það fáist dómur út á þau og því er frekar erfitt að breyta vegna þess að sönnunarbyrðin er mjög erfið. Hins vegar getur manneskjan sem kærði og...

Re: Eminem kærður af manni sem lagði hann í einelti

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
“Hvernig heldur þú að samfélagið væri ef allir myndu skrifa hatursbækur um fólk, og það væri bara allt í lagi?” Ef einhver hefur gert þér eitthvað, af hverju ættir þú ekki að mega segja frá því? Ef þú lýgur einhverju um fólk, þá getur það kært þig. Ef það er satt, þá getur það bara passað sig að koma betur fram við fólk næst. Annars myndu aldrei allir fara að skrifa hatursbækur vegna þess að þær fengju þær aldrei gefnar út. Hver heldur þú að myndi vilja kaupa bók um einhvern náunga sem...

Re: Við hvað er miðað..?

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fyrirsæturnar líta ekki einu sinni út eins og þú sérð í blöðum. það er allt Photoshop.

Re: Unglinga

í Djammið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sumt fólk getur aldrei hætt að reykja. Það var mikið í sjónvarpi hér í Kanada kona sem var að deyja úr krabbameini ekki nema fertug og var að tala á móti reykingum. Hún fór í skóla líka og talaði við krakka. Hún hafði oft reynt að hætta og gat það aldrei. Hún dó bara fyrir nokkrum dögum. Veit að þér finnst fertugt líklega afgamalt en þegar þar að kemur, þá viltu ábyggilega ekki deyja strax.

Re: 10 leðir til að spara

í Fjármál og viðskipti fyrir 22 árum, 11 mánuðum
- Smyrja nesti til að fara með í skólann/vinnuna. - Ekki ganga með pening eða kort á þér til að falla ekki fyrir freistingum. - Versla fyrir alla vikuna og vera búinn að skrifa innkaupalista heima og kaupa ekki neitt sem er ekki á honum. - Hugsa málið ef mann langar í eitthvað drasl hvort maður þurfi það virkilega. - Segja upp blöðum og lesa fréttir á netinu. - Segja upp tímaritum og lesa þau í búðinni. - Ef maður er skuldugur, þá semja alltaf við lánadrottna því það er ódýrara en...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok