Beans sem hann-sem-ekki-má-nefna Ég var núna rétt áðan að setjast við matarborði inní eldhúsi,
með kex í mjólk í hendi rendi ég augunum yfir slúðursíðuna í
fréttablaðinu, ég fraus…

Ég hafði komið auga á frétt um það að Rowan Atkinson
(mr.bean, johnny english) hafi verið ráðinn sem voldemort…

Ég kyngdi mjólkinni og opnaði fönixregluna og leit á myndina
á kaflan “Sá eini sem hann óttaðist” og hugleiddi aðeins þann
möguleika að Rowan gæti leikið volla, eftir nokkrar pælingar
komst ég að niðurstöðunni: “Ekki nokkur smuga!”

Og afhverju? Ég hef aldrei séð volla fyrir mér sem mann, (satt
að segja var ég hress með vollan aftan á quirrell) þar sem að
í öllum lýsingunum lítur hann einmitt út einsog myndinn
framan á kaflanum “sá eini sem hann óttaðist.”
Ég tek eiginlega ekkert mark á kápu/kaflamyndunum þar sem
að þær eru hálf vitleysulegar en þetta var gersamlegur
Voldemort þarna í myndinni fyrir ofan “sá eini sem hann
óttaðist.”

Jæja, ég er allavega ekki hress, hvað með ykkur?
Ég læt ekki sjá mig hér nema að ég sé fullur/með svefngalsa/geðbilun á háu stigi