Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

kristofer
kristofer Notandi frá fornöld 90 stig

Re: Samsærið gegn Hitler 20. júlí 1944

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Ég er sammála því, að morð Hitlers hefði ekki breytt neinu, sögulega séð. Á Yalta ráðstefnunni, 1943, samþykktu leiðtogar bandamanna í fyrsta lagi að ekki yrði um neina sérsamninga að ræða, og að í öðru lagi myndu þeir ekki samþykkja neitt annað en algjöra uppgjöf frá Þjóðverjum. Svo er spurning hvað tilræðismennirnir hefðu reynt að gera, hvort þeir hefðu reynt sérsamning við vesturveldin, en haldið áfram baráttunni gegn Rússum, reynt algjöra samninga, eða hreinlega gefist upp.

Re: Endalok Kalda stríðsins í Reykjavík (aftur???)

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Ég myndi vilja bæta því við annars ágæta grein, að hlutverk NATO mótast í dag mjög af ofstækisfullri stefnu forseta Bandaríkjanna. Stefna George W. Bush virðist hingað til hafa miðast við það, að dæma þjóðir sem “öxulveldi hins illa”, og reka stríð á hendur þeim. Þessi stefna mun koma til með að enda illa, ef hún fær að halda áfram óáreitt. Pólitískt andrúmsloft í hinum vestræna heimi er mjög viðkvæmt núna, vegna hryðjuverkanna 11. sept. Þó að hryðjuverkin hafi ekki komist nálægt því að taka...

Re: Uppgangur nasista í Þýskalandi 1919-1933

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Mjög góð grein. Hún lýsir mjög vel ástandinu sem ríkti í Þýskalandi á þessum tíma, og fer einnig vel í pólitískt umhverfi, án þess að fara út fyrir efnið. Þú færð einnig hrós fyrir að vera hlutlaus, og falla ekki í þá gryfju að koma með órökstuddar ásakanir og svívirðingar í garð hinna ýmsu embættismanna Þýskalands fyrir brot sem aðeins fáir báru ábyrgð á.

Re: Einfaldir kjósendur?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 3 mánuðum
I fyrsta lagi “eyda” menn, en their “eida” sjaldnar. I odru lagi get eg fullyrt med talsverdu oryggi, ad stjornmalamennirnir sem stjorna thessu landi hafast fleira ad en ad reisa sendirad i Japan, tho ad thad se vissulega hrifandi idja. Er ekki vid haefi ad skoda sma brot af thvi sem theim forst vel ur hendi a moti hverju tilviki sem eitthvad hefdi betur matt fara? Vardandi launahaekkanir, tha eru thaer yfirleitt rettlaetar med tveimur meginastaedum; annars vegar thad ad halda laununum i...

Re: Einfaldir kjósendur?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Dbd, Ef thu athugar althingi.is (mig minnir ad thad se haegt ad nalgast thessar upplysingar thar), getur thu sed ad flestir af valdamestu stjornamalamonnum thjodarinnar eru logfraedingar. En eins og kunnugt er, tha er thad enginn leikur ad fara i gegnum logfraedina i haskola. Thad er engin hrikaleg threkraun, en thad er heldur alls ekki thad audveldasta sem madur gerir. Thessar dylgjur um skort a menntun stjornamalamanna eru thvi ut i hott.

Re: Einfaldir kjósendur?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Saell Rx7, Thessi aras thin a laun thingmanna hljomar frekar eins og vanstillingararas, sem a raetur sinar ad rekja i ofund, frekar en neinu odru. Thad ad bera laun menntads folks i stjornunarstodum vid verkamannakaup er faranlegt. Thegar thetta er borid saman hlidra menn ser oft vid ad koma me dnein motrok, thvi ad thad er oft og einatt tulkad sem hroki af theirra halfu. Sannleikurinn er einfaldlega sa, ad su abyrgd og su vinna (ja, thad er erfidara ad vinna vid skrifbord en sem verkamadur,...

Re: Php: forrit framtíðar?

í Vefsíðugerð fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ég leyfi mér að mótmæla því að C# hafi meiri framtíð en PHP með eftirfarandi rökum: C# er mjög óþægilegt forritunarmál, það hefur alla ókosti Java, en enga af kostunum. C# keyrir aðeins á einum platform, og það er Windows. DLL er ekki nothæft á öðrum platformum. Ég leyfi mér að benda á að UNIX er með um 60% vefþjónamarkaðsins. C# er dýrt, notar dýr þróunartól, keyrir á dýrum hugbúnaði, og krefst gífurlegs vélarafls (Pentium II 500 MHz, 128 MB minni, BARA til að keyra stýrikerfið??? Hvaða...

Re: Hinar ógurlegu xhtml villur

í Vefsíðugerð fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þetta er meðal betri greina sem ég hef séð hér lengi. Hún tekur á máli sem einmitt var þörf á því að útskýra aðeins, er hnitmiðuð, og kemur sér beint að kjarna málsins. Gott mál.

Re: svínin eru Fífl

í Deiglan fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég verð eiginlega enn og aftur að lýsa furðu minni á þessari fáránlegu tízku að vera illa við lögregluna. Ég hef aldrei á ævinni séð til lögreglunnar að beita óhóflegu ofbeldi, þó að þeir þurfi í starfi sínu stundum að höndla erfiðar aðstæður. Hvenær ætlar fólk að skilja það, að það gæti engan veginn verið án hinnar miklu og erfiðu þjónustu sem lögreglan veitir? Maður tekur líka eftir því að það eru ákveðnir hópar sem þykjast hafa eitthvað að klaga upp á lögregluna, ákveðnir einstaklingar...

Re: Norður Írland... Á þetta fólk skilið sjálfstæði?

í Deiglan fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Sæl öllsömul, Mig langaði til að koma með smá innlegg í þessa ágætu umræðu… Í fyrsta lagi finnst mér talað allt of mikið um IRA í sambandi við hryðjuverk…þeir eru frægastir, en langt frá því að vera herskáastir. Reyndar hefur IRA verið í opnahléi um talsvert skeið (sem hefur reyndar gengið upp og ofan). Kannski er best að rifja aðeins upp sögu Írlands, sem fæstir hérna virðast hafa á hreinu. Írland, sem er, og hefur alltaf verið, kaþólskt land, var hertekið af bretum á miðöldum. Þeir...

Re: Hversu langt er í algjört stjórnleysi?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Jahá. Eins og ég tók fram í greininni er ég ekki endilega sammála því að vopna lögregluna, ég er eiginlega á báðum áttum. Ég tel ekki að vopnun lögreglu sem slík myndi hvetja glæpamenn til að taka upp vopn, en hins vegar er lögreglan eins og hún er í dag bara samasafn vitleysingja sem annað hvort eru með svo mikla minnimáttarkennd að starfið höfðar til þeirra, eða þá að þeir fái hvergi vinnu annars staðar. Vegna þessa myndu þeir ekki hafa neitt með byssur að gera - þeir myndu bara misnota...

Re: Þriggja ára fangelsi fyir hrottafengna nauðgun!!!!

í Hugi fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Mig langaði nú bara til að æla þegar ég las þessa lysingu. Hvers konar sjúkleiki er það sem rekur einhvern í það að gera svona? Og 3 ára dómur á Íslandi þýðir að honum verður sleppt eftir 1-2 ár. Og þá mun hann trúlega fara og seilast í aðra stelpu, og gera henni eitthvað svipað. Djöfulsins viðbjóður. Svona menn á bara að gelda, ef ekki taka af lífi bara.

Re: All my base are belong to you

í Ljóð fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Upprunalega er þessi setning úr illa þýddum japönskum tölvuleik frá 9. áratugnum.

Re: Svör...

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Vá…fleiri svör. Ég hélt að umræðan væri búin. ;-) Jæja…hverju á ég að svara fyrst…já. Skilgreining á forsjárhyggju. Þú spyrð hvort það sé OK að fara til Keflavíkur á 200 ef þú skaðar engan annan. Jájá, ef vegurinn er lokaður annarri umferð á meðan, myndi ég segja. Þá mættiru leika þér þarna eins og þú vildir. Á eigin bíl, og að því gefnu að enginn annar færi á svæðið á meðan. Og þarna…C nikk eikkað sem ég man ekki, þú skrifar langt og ítarlegt svar. Nokkuð gott svar. Þú setur nokkuð skýrt...

Svar til Refur98

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Sæl…þú virðist hafa misskilið mig aðeins…ég vil að menn hafi frelsi til að gera það við sjálfan sig sem þeir vilja…en tvímælalaust ekki við aðra. Það er mjög heilbrigð krafa að menn mæti edrú í vinnu. Augljóslega, og hvergi er öðru haldið fram, myndi ég halda. Nema náttúrulega hjá Sigga Hall í “vínskoðuninni” hans á Stöð 2.

Svör...

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Drengur. Ég vil ekki vera dónalegur eða neitt, en veistu _eitthvað_ um það sem þú ert að tala um? Þú hefur náttúrulega fullan rétt á því að koma þinni skoðun á framfæri og svona, en að svara svona comment er eins og að reyna að svara “járn er úr plasti”, eða eitthvað álíka… Spurning með að kynna sér málið aðeins áður en þú gerir þig að fífli á eins fjölförnum spjallvef og Hugi.is er.

Re: svona almenn svör

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Ert þú tilbúinn til að tala um lögleiðingu kannabis, já? Flott mál, það er skref í rétta átt. En þú áttar þig ekki á punktinum. Punkturinn er valdið til að banna kannabis eða hvað sem er. Það vald á, að mínu áliti, ekki að vera hjá ríkinu eða neinum. Með fullri virðingu, þá ert það þú sem snýrð út úr. Þú virðist ekkert vita um eiturlyf. Hins vegar er ég sammála því, að það er ekkert jákvætt við eiturlyf. Málið er bara, að það er til heimskt fólk, og því miður verðum við að virða þeirra rétt...

Re: Forsjárhyggja

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Buddy. Félagi. Hvernig nærðu að flokka það undir það að “taka tillit til frelsis annarra” að beygja sig undir vald annarra í eigin neyslu á vondum mat eða eitruðum M&M nömmum? Löggjafinn _er_ almúginn. Þar fyrir er hann ekkert nær óskeikulleika en almúginn. Aðalmálið í þessu er það, að ekki allir kæra sig um að einhver löggjafi sé að skipta sér að einkamálum þess, enda er það fáránlegt. Ég er ekki að deila um það sem löggjafinn gerir í krafti þess valds (sem reyndar er yfirleitt fáránlegt...

Kroni (aftur)

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Hér er ég mjög sammála þér. Fólk á að geta gert hvað sem það vill á meðan það skaðar ekki aðra. Klám er ekki vandamálið. Þrælkunin er það. Ekki blanda þessu tvennu saman!

Re: Forsjárhyggja

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Í fyrsta lagi. Það kallast ekki að skammast sín fyrir nafnið sitt að setja sjálfvalið gælunafn undir greinar. Þó tek ég fram að Kristófer er mitt rétta nafn, og ég skammast mín ekki fyrir það. Svarið þitt virðist mestöll snúast um allt annað efni en greinin…sumsé fyndin mannanöfn og einelti vegna þeirra. Þetta kemur því prinsippi “frelsi”, ekkert við. Umhyggjusamir foreldrar skíra börnin sín ekki Drulluhala. Og samfélagið hefur þegar nóg af úrræðum til að svipta óumhyggjusama foreldra...

Kroni

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Og enn kvóta ég: “Þú verður að athuga að þegar einstaklingurinn er birjaður að neyta eyturlyfja þá ráða eyturlyfin honum gersamlega.” Hvað flokkar þú sem eiturlyf? Ég veit ekki um neitt eiturlyf sem hefur svo skjót og tvímælalaus áhrif, og ef eitthvað slíkt finnst ætti að banna það, það er alveg á tæru. Enn og aftur ítreka ég, að það á ekki að vernda fólk frá sjálfu sér, bara frá öðrum. En ef lyf gera *alla* sem neyta þess tvímælalaust þannig að hann sé án alls vafa hættulegur öðrum, er...

Re: Forsjárhyggja - nauðsynleg vernd eða hreinn hrok

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Jájá…þú mátt sætta þig við að fylgja einhverjum nafnalista frá stjórnvöldum. Mér, hins vegar, dettur ekki í hug að gera það. Ég geng ekki á þinn rétt til að láta hugsa fyrir þig. Ef þú vilt láta hugsa fyrir þig er þér það velkomið. Ég vil bara ekki láta hugsa fyrir mig. Ég tel mig fullfæran um það. Sjálfsagt að leyfa fólki að leyfa öðrum að stjórna sér. Það er hins vegar langt frá því að vera sjálfsagt að leyfa fólki að leyfa öðrum að stjórna enn öðrum. Sumsé, þú hefur ekki leyfi til að...

Re: Forsjárhyggja - nauðsynleg vernd eða hreinn hrok

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Jahá. Þú. malkav, telur að vegna heilbrigðiskerfisins hafir þú rétt til að skipa öðrum fyrir um eigið heilsufar. Þar erum við ósammála. Í alvöru talað…af hverju ættir þú að hafa slíkan rétt, og ef heilbrigðiskerfið væri ekki, finnst þér þá að þú myndir missa þennan rétt? Og Buddy, mér finnst tónninn hjá þér eins og hjá ströngu foreldri. “Fólki er ekki einu sinni treystandi til að fina nöfn á börnin sín þannig að skömm hljótist ekki af.” Þú meinar að vegna þess að þér, eða einhverjum líkar...

Re: Svar við Malkav...

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Ég vitna í þig: “Kannabis er ég hræddastur við vegna þess sem gæti fylgt í kjölfarið, finnst að margir líti bara á lögleiðingu þess sem skref í átt að leyfa öll eiturlyf, síðan þá finnst mér margir gera of lítið úr skaðsemi þess.” Jamm. En hvað kemur þetta málinu við? Þó að þetta sé skaðlegt neytandanum, þá þýðir það ekki að það eigi að banna það. Leyfa fólki sjálfu að ákveða hvað það gerir. Og í sambandi við að lögleiða önnur eiturlyf…þú nefnir það sem eitthvað sem er augljóslega slæmt…án...

Re: Forsjárhyggja - nauðsynleg vernd eða hreinn hrok

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Vernd er eitt. Boð og bönn annað. Auðvitað þurfa börn vernd. Hins vegar er ekki starf ríkisins að vernda fólk (ekki einusinni börn) frá sjálfum sér. Hvað meinaru með því að fræðsla sé ekki nóg? Meinaru að ef þú værir alveg viss um að fólk myndi velja þína “réttu” skoðun værir þú til í að veita þeim þann rétt að velja - en annars ekki? Hvers konar frelsi væri það? Fíklar eru alltaf til. Það er erfðasjúkdómur, fíkn, þ.e.a.s. sá veikleiki að verða auðveldlega háður. Þá skiptir ekki máli hvað...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok