Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

kristofer
kristofer Notandi frá fornöld 90 stig

Re: Flugnám - langar þig?

í Flug fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sæll bvlgari, Ray Ban flugmannasólgleraugu kosta frá 72 dollurum (úti) og uppí um 120 dollara. Rétt er að margfalda þetta með 100 til að fá verð hingað heim ef þú flytur þau inn sjálfur, eða með ca. 150 til að fá verðið ef þú kaupir þau út úr búð hér heima. Við erum því að tala um 7.200-12.000 ef þú flytur inn sjálfur, en 10.800-18.000 ef þú kaupir þau úr búð hér heima. -Kristófe

Re: Flugnám - langar þig?

í Flug fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Leiðrétting: blindflugið er auðvitað 660.000, ekki 66.000. Bætið því 600 þús. við heildarupphæðina. :)

Re: Flugkonur í fjarska.

í Flug fyrir 22 árum, 11 mánuðum
AN225, Ég vona að þetta sé bara “djók” hjá þér - ekki meira um það að segja. Superjara88, Möguleikar kvenna í fluggeiranum eru síst minni en karla, sem betur fer. Ef þú hefur áhuga á því að verða flugmaður (konur eru líka menn…og þar af leiðandi eru menn líka konur?) og telur þig hafa það sem til þarf skaltu ekki hika við að fara út í þetta.

Re: Einkennileg kvörtun frá ispinum mínum...

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þetta seinasta “á einum sólarhring” átti að vera “á einum mánuði”…:)

Re: Einkennileg kvörtun frá ispinum mínum...

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Sæll “illmenni2”, Það er alveg rétt hjá þér, að ekki er fræðilega mögulegt að þú hafir sótt þetta magn á gefnum tíma. Það sem um var að ræða var bilun í kerfinu, sem lýsti sér þannig að mánaðarlegu tölurnar voru notaðar (við útbúum mánaðarskýrslur 1. hvers mánaðar) í stað þeirra daglegu. Fyrir hönd Reiknistofnunar Háskólans biðjumst við auðvitað afsökunar á óþægindum sem tilkynningarnar kunna að hafa valdið, við höfum lokað öllum málum sem upp komu 1. mars, til að vera ekki að hengja menn að...

Re: JR Firewall - uppástungur og bögg :-)

í Linux fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Já, annað sem ég gleymdi að svara…varðandi að hafa verið að gagnrýna gamla útgáfu af veggnum, þá eru það alfarið mín mistök…hélt að þetta nýjasta undir eldveggnum væri bara umræða, en ekki ný útgáfa. Sorry. ;) Flestir punktarnir í greininni minni eiga samt alveg eins við nýjustu útgáfuna sýnist mér, svo þetta sleppur… – Kristó

Re: JR Firewall - uppástungur og bögg :-)

í Linux fyrir 23 árum, 4 mánuðum
JReykdal, > Er það mitt að segja til um hvar iptables er installað? Það gæti vel lent í /usr/local/ ef þeim er bætt við eftirá (ólíklegt en skítur skeður). Mér finnst reyndar /usr/local mjög lógísk staðsetning fyrir iptables, undir ákveðnum kringumstæðum. ;) Sko, ég hefði sett einhverju breytu efst með þessu, t.d.: IPTABLES=/usr/sbin/iptables $IPTABLES -A FORWARD -s ble -d ble -j bla > Þetta er ekki kennsla í að gera sjálft systemið öruggt. Það væri efni í maaaargar greinar eins og fjöldi...

Re: JR Firewall - uppástungur og bögg :-)

í Linux fyrir 23 árum, 4 mánuðum
H0ddi, a) Rétt - oftast. En almennt (að mínu áliti) er tilgangslaust og beinlínis rangt að loka á eitthvað, bara til að loka á það. ICMP redirects hafa fleiri kosti en galla, þau eru til af ástæðu. b) Sammála, en minni gagnrýni var beint að aðferðinni við að gera þetta, frekar en að aðgerðinni sjálfri. c) Júmm, myndi segja það. Tók ég það ekki fram í greininni, annars? d) Það á ekki að púsla saman fragments, þeir eru notaðir til að segja að það þurfi að minnka MTU'ið. Að loka á þá tefur og...

Re: Er Friður 2000 hryðjuverkasamtök?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Auðvitað á að loka Ástþór inni, það er augljóst. Hins vegar er ekki hægt að segja að alveg allt sem hann berst fyrir sé steypa. Til dæmis er það augljóslega rétt, að það er hálfóþægilegt fyrir samvisku okkar Íslendinga, nema þeirra okkar sem eru því meira blindaðir af áróðri, að íslensk yfirvöld taki þátt í fjöldamorðum til þess eins að gleðja þjóð sem hefur hersetið land okkar í yfir hálfa öld. Við erum öll of fljót að gleyma. Hvað haldið þið að margir Íslendingar kjósi aftur yfir sig...

Re: Innanlands/utanlands rukkunarsvindl?

í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nei, ég vinn ekki hjá Símanum, og hef aldrei gert. Ég veit ekki af hverju þú heldur að ég sé fúll þó að ég reki ofan í þig vitleysuna. ;-)

Re: Innanlands/utanlands rukkunarsvindl?

í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
OK, nú ertu kominn niður í 2 punkta. Mjög gott. 1. “ef þú er með 1gb niðurhals flokk og sækir 500 borgar þú væntanlega mismuninn,” Þetta er alveg rétt. En þú verður að athuga, að með því að velja 1 GB niðurhalsflokk ertu að samþykkja að kaupa 1 GB, það er inni í samningnum. Svo þetta er annað sem þú getur sjálfum þér um kennt. Varðandi gjaldskrá Símans í áskriftarflokksbreytingum, þá veit ég ekkert um það… Þú segir að ekki sé hægt að fá magnmælingu á því sem sótt er, aðeins 100, 500, eða...

Re: Innanlands/utanlands rukkunarsvindl?

í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta finnst mér stórmerkilegur og í rauninni hlægilegur póstur. Í fyrsta lagi ertu ekki að kaupa 1 GB með, heldur er það gimmick sem fylgir með tengingunni. Ef þú ert svona svakalega svekktur yfir því getur þú t.d. farið til Íslandssíma, þar sem aðeins 100 MB fylgja (mig minnir reyndar að það sé hægt að fá tengingar hjá Landssímanum þar sem aðeins 500 MB fylgja). Punkt númer tvö þekki ég ekki of vel, en væntanlega fer þetta eftir því hversu viðamikil breyting er í gangi. Þriðji punkturinn...

Re: Innanlands/utanlands rukkunarsvindl?

í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta finnst mér stórmerkilegur og í rauninni hlægilegur póstur. Í fyrsta lagi ertu ekki að kaupa 1 GB með, heldur er það gimmick sem fylgir með tengingunni. Ef þú ert svona svakalega svekktur yfir því getur þú t.d. farið til Íslandssíma, þar sem aðeins 100 MB fylgja (mig minnir reyndar að það sé hægt að fá tengingar hjá Landssímanum þar sem aðeins 500 MB fylgja). Punkt númer tvö þekki ég ekki of vel, en væntanlega fer þetta eftir því hversu viðamikil breyting er í gangi. Þriðji punkturinn...

Re: Frjálshyggja

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Heilir og sælir, Ég verð að segja, að mér finnst þessi ummræða vera mjög tímabær í okkar samfélagi. Ekki svo að skilja að hún sé neitt sérstaklega ný…alls ekki. Umræðan um einkaskóla er frekar gömul. Þrátt fyrir ýmsa góða punkta í þessum þræði finnst mér skorta aðeins á víðsýni fulltrúa beggja sjónarmiða, svo ekki sé minnst á málfræði og stafsetningu. Mér sýnist umræðan standa aðallega um hvort einungis eigi að hafa einkaskóla, eða einungis ríkisrekna skóla. Ég tel bestu leiðina felast í því...

Re: Ekki allveg sáttur við irc rásina #flug.is

í Flug fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Sæll, “siruhaus”, Ekkert að afsaka, það kemur fyrir besta fólk. Svona til þess að leiðrétta misskilning, þá bönnum við alls ekki að away sé notað, og hvetjum í rauninni til þess, þar sem það gefur fólki sem vill ná í þig þarfar upplýsingar. Hins vegar bönnum við tilkynningar inn á rásina sem koma rásarmeðlimum ekki að neinu gagni. Undir þessa skilgreiningu falla m.a. away tilkynningar. Sumsé, notaðu away eins og þú vilt, en ekki láta IRC forritið þitt segja okkur öllum frá því í hvert sinn...

Re: Ekki allveg sáttur við irc rásina #flug.is

í Flug fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Sæll “siruhaus”, Sem einn af stjórnendum IRC rásarinnar #flug.is verð ég eiginlega að svara þessu með nokkrum orðum. Ég veit ekki hversu kunnugur þú ert þeim reglum og hefðum sem ríkt hafa á IRC, en meginreglan er sú, að svokallað Signal to Noise Ratio (SNR), eða hlutfall áhugaverðs efnis í þeim texta sem sendur er inn skiptir talsvert miklu máli. Litir og óþarfa rusl gera ekki annað en að leiða athyglina frá því sem raunverulega skiptir máli, auk þess sem það gefur óþarflega til kynna að...

Re: Þingmenn og hagsmunasamtök.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
“Málið með Línu.Net” er það, að Reykjavíkurborg er að gera þann mjög framsýna og sniðuga hlut, að byggja upp ljósleiðaranet sem er löngu komin þörf fyrir. Þetta er eins og það framtak fyrir 100 árum að leggja hitaveitu, rafmagn og síma…nokkuð sem þarf að gera. Þetta er einmitt það eina sem ég styð R listann í. ;)

Re: Sekt og sakleysi.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég er innilega sammála helico. Það er alveg á tæru, að það er freklegt brot á lögum að birta mynd af einhverjum og ásaka hann um glæp. Samkv. lögum mega fjölmiðlar (og, já, hugi.is flokkast undir fjölmiðil) ekki birta myndir eða önnur persónugreinanleg einkenni fólks sem er grunað um glæp nema þeir hafi verið dæmdir…og varla þá. Þar sem stjórnendur verða að samþykkja myndir (og það var stjórnandi sem sendi þessa inn, meira að segja) er ekki hægt að segja að Hugi.is geti ekki verið ábyrgur...

Re: Framkoma Lögreglunar í reykjavík

í Bílar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Sælir, Ég myndi segja að í þessu máli, eins og öllum öðrum, sé augljóst, að hér er aðeins um annan hlusta sögunnar að ræða. Ef þið spyrðuð lögreglumennina hvernig þetta hefði farið fram hefði sagan væntanlega orðið öðruvísi. Ég held að fólk almennt geri sér ekki grein fyrir því hvað störf lögreglu/öryggisvarða/dyravarða/gæslufólks eru mikilvæg til að tryggja almannaöryggi. Enginn hikar svosem við að fara fram á hjálp frá þessu fólki, en þegar aðstæður eru þannig, að þessir aðilar þurfi að...

Re: Þráðlaust net í HÍ

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég veit það ekki nógu vel, þar sem Windows er ekki mín grein, en ég mæli með því að þú sendir póst á help@hi.is, og spyrjir þar. -Kristófe

Re: Gat á flugleiðavél

í Flug fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég er í PPL námi hjá Geirfugli, og er jafnframt Geirfugl, þ.e.a.s. einn af eigendum/meðlimum Geirfugls. Ég er reyndar í bóklega náminu hjá FÍ, vegna þess að það náðist ekki nógu góð þáttaka til að hafa slíkt hjá Geirfugli. Mig langar til að leggja orð í belg varðandi gagnrýnina á FÍ sem hefur komið fram í þessum þræði. Mér finnst hún ómálefnaleg, og til skammar. Geta menn ekki stillt sig um að vera alltaf að reyna að bíta FÍ á barkann? Á þessum síðustu og verstu tímum er best að flugmenn...

Re: Þráðlaust net í HÍ

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Við vorum ekki að auka styrkinn, nei. Það geta legið ýmsar ástæður fyrir truflunum á sambandi. Til þess að bilanagreina þetta verð ég að fá mun nákvæmari upplýsingar um hvar þetta er. Annars er best að koma með spurningar á help@hi.is, en bilanatilkynningar á netstjorn@hi.is – Kristófer Sigurðsson Tel: +354 525 4103 Netsérfræðingur/Network specialist E-mail: ks@rhi.hi.is Reiknistofnun HÍ/University of Iceland Public PGP key: finger -l ks@katla.rhi.hi.is

Re: Þráðlaust net í HÍ

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Til þess ferðu í Nemendaskrá, sem er staðsett í sama húsi og Félagsstofnun Stúdenta, og Bóksala Stúdenta, við Hringbraut. Þeir redda þessu fyrir þig þar… – Kristófer Sigurðsson Tel: +354 525 4103 Netsérfræðingur/Network specialist E-mail: ks@rhi.hi.is Reiknistofnun HÍ/University of Iceland Public PGP key: finger -l ks@katla.rhi.hi.is

Re: Þráðlaust net í HÍ

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Sæl talbina, Það sem þú þarft til að tengjast þráðlausu neti Háskóla Íslands er þráðlaust netkort sem styður IEEE 802.11b staðalinn. Það ætti ekki að skipta neinu máli hvar kortið er keypt, á meðan það styður þennan staðal. Auðveldast væri að þú keyptir Lucent kort, en það eru þau kort sem við mælum helst með. Til þess að geta byrjað að nota þráðlausa netið þarftu svo að fara á þessa síðu: http://www.rhi.hi.is/net/thradlaust/skraning.html Þarna þarft þú gilt notandanafn og lykilorð, sem þú...

Re: Mannasiðir á Internetinu?

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Sælir, Nokkrar athugasemdir… Já, það er mikill dónaskapur á Huga - fólk virðist vera mjög hrifið af því að geta falið sig bak við nafnleynd sem í rauninni er ekki til. Starfsmenn Landssímans hafa fullan aðgang að nöfnum og kennitölum notenda Huga. UNIX menn, þ.e.a.s. notendur UNIX kerfa, sýna oft það sem kemur út sem hroki í samskiptum sínum við nýliða. Ástæðurnar fyrir þessu eru í flestum tilvikum pirringur. Flestir sem koma t.d. á IRC og ætlast til þess að menn þar geri hlutina fyrir sig....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok