Já, þó ég hafi verið harður Linux notandi áður en ég fékk mér makkann þá dettur mér ekki í hug að skipta frá Mac OS X. Það virkar allt bara svo vel, tóm snilld að opna tölvuna og geta byrjað að nota hana innan einnar sekúndu :-) Það tekur ótrúlega stuttan tíma og ég held að þú (ofurbabe) ættir að gefa því séns áður en þú ákveður þig.
Er semsagt Hilux ekki með andvana vél :P Að mínu mati er Wrangler eina vitið í dag ef maður er að leita sér að alvöru leiktæki. Jú jú, Patrol, Cruiser og Hilux eru alveg ágætir svo sem en þeir eru bara engin leiktæki nema eftir heljarinnar breytingar. Svo þegar Patrolinn er loksins orðinn nógu kraftmikill svo hann sé nothæfur (með nýjan kubb) þá eyðir þetta ívið meira en öflug V8 og heilagur jeppaguð hjálpi Patrol eigendum þegar olíugjaldið kemur. Þá er ég að tala um 3ja lítra bílana. En...
Bíll sem hægt er að þjösnast á í torfærum án þess að vera hræddur um að skemma hann :P Rav4 er semsagt ekki í þeim flokki! Vitara er hinsvegar alveg ótrúlega seigt tæki og ég hika ekki við að kalla það jeppa. Það er alveg svakalegt hvað er hægt að böðlast á þessu.
OK, það kemur auglýsing í blöðunum með bílnúmerum þeirra bíla sem á að bjóða upp, og svo mætirðu bara á uppboðið og býður í eitthvað sem þér líst á. Já svo ef þú ert “heppinn” gætirðu fengið að líta á þetta á föstudeginum áður og séð hvort það er eitthvað þarna.
Það er reyndar aðeins nauðsynlegt að láta bílinn ganga í nokkrar mínútur ef maður hefur verið að þenja hann eitthvað. Svo er það vegna þess að ef túrbínan snýst eftir að búið er að drepa á bílnum þá er búið að slökkva á smurningunni, þannig að túrbínan gæti verið að snúast þurr.
Að utan ég mála með útitex, texið er efnið sem segir sex, að innan ég mála með pólýtex, útitex utaná pólýtex innaná, texið er efnið sem segir sex, SEM SEGIR SEX!!!
Að mínu mati breytir það engu að OgVodafone eigi hlut í Línu.net. Viðskipti eru viðskipti, og ef lina.net er að græða á þessu þá sé ég enga ástæðu til þess að OV ætti að loka á þessi viðskipti, nema til þess þá að missa þessi viðskipti. OV getur heldur ekki boðið upp á jafn hraðar tengingar og Hive, Hive notar IP tæknina en OV og Síminn nota gömlu ATM tæknina.
Þar sem ég nota Mac dagsdaglega þá mæli ég með Camino. Fyrir Windows/Linux/etc mæli ég hins vegar með Firefox. Mér finnst Opera einhvern veginn of yfirdrifinn, troðfullur af fídusum sem ég myndi aldrei nota. Mér finnst miklu betra að hafa þetta einfalt og að mínu mati á browser bara að vera browser og ekkert annað. S.s. ekki póstforrit, spjallforrit og allur fjandinn eins og í Opera og Mozilla Suite.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..