ég vorkenni þeim sem eru búnir að þjóta yfir og fá sér 12 mánaðara Hive tengingu, ég er búinn að vera skoða þetta og það er margt áhugavert.
t.d. þarf að borga 1400 auka á mánuði til að fá póstfang, þetta er vissulega mikill hraði en það er vert að benda á það að þeir eru með útlandagátt í gegnum linu.net og sú gátt er bara 10 mb, þannig að ég er hræddur um að ofur downloadarar eigi ekki eftir að skemmta sér vel í útlandinu að ná sér í dót, svo eru þeir með lokað fyrir öll port og þeir gera það í þeim tilgangi að koma í veg fyrir skráardeili notkun, þannig að ég held að menn ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir hlaupa til og gera 12 mánaða áskrift