Þessi Golf var eftir því sem ég best veit reynsluakstursbíll í eigu Heklu… en miðað við slysið þá finnst mér þessi hraði ekkert ólíklegur. Það á að svipta svona menn fyrir lífstíð.
Nei hvur andskotinn. Ég keyrði þarna framhjá og sá einhvern Golf þarna inná einhverjum svölum en tók ekkert eftir því að þetta væri GTI! Ég var meira svona að spá í Benz jeppanum sem Golfinn var greinilega búinn að stúta áður en hann tók flugið. Annað afturdekkið flaug undan og ég sá ekki betur en hann væri alveg jafn ónýtur og voffinn
Úps…gleymdi að taka fram að gata deilingin er 5*5,5" s.s. þetta eru 5 gata felgur sem passa undir Suzuki Vitara, Kia Sportage, Ford Explorer, Dodge Ram, Willy's (ekki Wrangler) og sjálfsagt einhverja fleiri bíla.
Það eru nú naumast smábarnalætin hérna alltaf hreint. Golf er ekki smábíll, heldur venjulegur fólksbíll í millistærð. Ekki lítill bíll og ekki stór bíll. Punktur.
Ég “átti” Lödu Sport í nokkra mánuði þegar ég var fimmtán ára eða þar til eigandinn hætti við að gefa mér hana…urrr. Það skemmtilega við hana var að einn ákveðinn bóndadurgur stal dempurunum undan henni að aftan þannig að hún var svona líka skemmtilega dúandi :P Svo fór svissbotninn og þá var því reddað með að víra bara beint í rafgeyminn og setja rofa í mælaborðið. Ágætis þjófavörn, þá þarf að svissa á bílinn og ýta á takkann til að fá bílinn til að ganga!
hérna er ágætis síða með allskonar upplýsingum um þessa eðalvagna: http://www.jeepgod.net/ En heyrðu, ég verð að kíkja á þig og bjölluna einhvern tímann þegar ég er kominn með prófið, það er bara vika þangað til :P
Nú sést það alveg SVART á HVÍTU að Skonrokk var ekki til neins annars en að koma Radíó Reykjavík á kúpuna. Svo þegar Radíó Reykljavík er hætt að senda út, hvað þá? Kemur ekki í fréttunum að það sé verið að hugsa um að sameina Skonrokk og X-ið, og þá getur maður alveg eins sleppt því að kveikja á útvarpinu nema Radíó Reykjavík komi aftur. Urrrrrrr…einn þokkalega pirraður.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..