Það er minnsta málið að skipta um brettakanta. Spurning samt hvort það dugi ekki bara að sprauta þá? Annars er alveg nóg til af þessu fyrir vestan. En endilega segðu mér meira um bílinn, hvaða vél er í þessu og svo framvegis.
JVC er svona líka en Alpine, pfff það má ekki koma smá hola og draslið hikstar og svo er það líka bara svo fáránlega óþægilegt tæki. Skil ekki hvað Hekla er að meina með því að pranga þessu drasli inn á alla sem versla VW hjá þeim!
Ef það á að reyna að flytja inn þessa bíla nýja gæti það verið vesen með mengunarkröfur ég veit samt ekki hvort það er ef þú flytur inn notaðan bíl. T.d. er bannað að flytja inn Land Cruiser 70 út af mengunarreglugerðum.
Ég er á Wrangler '87, 38" breyttum. Vélin er original 6 sílendra sleggja, 258 kúbiktommur en er þó komin með innspýtingu. Svo er hann að sjálfsögðu 100% loftlæstur, með gorma að aftan og grjótharðan topp. PS: Hann er ekki til sölu ;-)
ókídók…ég keypti þetta nú á 25000 kall en það var bara heimskulegt hjá mér. Þau eru ekki morkin og mesta slitið er í miðjunni, það er eins og það hafi verið of mikill þrýstingur í þeim. En já bjallaðu bara í mig og við græjum þetta. (ég lofa að svara í þetta skiptið…:P)
Dekkin eru Dunlop og ég hef ekki hugmynd um hvernig súkkurnar láta á þeim því ég hef aldrei keyrt á þeim. Keypti þau fyrir misskilning, hélt að þau pössuðu á Wranglerinn minn eeeen svo er ekki :-(
GM er nú bara á hraðferð beint til helvítis finnst mér. Það hefur ekkert komið af viti frá þeim nema Corvettan, annars er þetta allt saman einhver rússa-kóreu-smávegis-ameríku sambræðingur sem er barasta ekkert að ganga upp. Chrysler hins vegar er málið, já það er sko ekki spurningin :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..