<b> ÉG hef ferðast þarna nýlega og mér finnst alveg hrikalegt hvað á að gera við þessa stórkostlegu náttúruperlu. Þarna fyrir ofan gljúfrið, hefur komið alveg heilmikið af bláberjalyngi, mosa og öðrum fallegum, íslenskum gróðri sem á nú að fara að sökkva undir vatn. Og til hvers. Já, auðvitað vantar Davíð meiri pening í ríkiskassann á kostnað náttúrunnar. Þetta lón á eftir að fyllast af leir og drullu <u>INNAN EINNAR ALDAR</u> frá framkvæmdinni. Ég hvet því fólk eindregið að skreppa austur...