Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

kristinnm
kristinnm Notandi frá fornöld 38 ára karlmaður
150 stig
Áhugamál: Jeppar, Bílar

Re: kistinnm

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Nei, hann er seldur og kominn þessi líka fíni og þrælskemmtilegi Grand Cherokee 4.7L V8 í staðinn :-)

Re: hvað finnst ykkur flottasti jeppi á íslandi

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Með breiðari hásingum þyrfti maður líka að skipta út brettakönntunum fyrir sólpalla…

Re: hvað finnst ykkur flottasti jeppi á íslandi

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
IceCool ekki nokkur spurning ef frá er talinn minn :P

Re: Dodge Ram charger STOLIÐ!!!

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ef ég rekst á kauða má hann þakka fyrir að ég er ekki með byssuleyfi…

Re: jeepster

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Blessaður vertu, ef þetta er nógu létt og kraftmikið þá drífur það mikið sama hvað það heitir ;-) (og auðvitað skemmir ekki fyrir að það sé AMERÍSKT!) Síðan er þetta auðvitað líka spurning um eintök, Jeepster er gamall bíll og mjöööög líklegt að hvert eitt og einasta eintak sé útúrmixað!

Re: sjálfskipting lengi að taka við sér

í Bílar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Farðu sem fyrst á smurstöð og láttu líta á olíuna ;-)

Re: Check this out!

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hafið þið eitthvað skoðað hvað kanarnir eru að gera í klettaklifrinu? Þar erum við að tala um fjöðrun. Alveg hreint ótrúlegir hlutir sem þeir eru að gera með blaðfjöðrum. Það eru ALVÖRU amerískar breytingar, það sem þið eruð að tala um eru kallarnir sem dreymir um stærra tippi…

Re: Vandræði með start

í Bílar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég er nokkuð viss um að þarna er startpungurinn að stríða þér. Ertu viss um að hljóðið heyrist úr startaranum? Svona startpungur ætti að kosta eitthvað smáklink í Bílanaust.

Re: Felgur

í Bílar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Notaðu bara tommustokk ;-)

Re: ástæða til að kætast?

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Já og eitt enn, það fara allir í fýlu ef einhverjum dettur í hug að fíflast aðeins, þetta er aðeins of mikið svona “fullorðins”

Re: leiktæki

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Einhver staðar heyrði ég að sá bíll væri um 1300-1400 kg (er það ekki blái annars) en sel það samt ekki dýrar en ég stal því…

Re: ástæða til að kætast?

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Það sem mér finnst fáránlegast er að maður þarf að vera félagi í 4x4 til að taka þátt. Ég er nú reyndar félagi, en samt, það eru alltof fáir þarna eftir að þessu var breytt! Það eina sem var að gömlu var að hún var stundum að bila, en hey, það má redda því!

Re: pugman

í Bílar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Af hverju hef ég aldrei tekið eftir þessum PugMan?

Re: 44" breyting á patrol

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Já og þetta með hvað kaninn vill hafa breið dekk á felgu, það er ekkert hægt að bera þetta saman við það sem við gerum vegna þess að þeir eru að gera allt annað með jeppana. Djöfull er ég búinn að fá leið á því að íslendingar halda að þeir séu laaaaaangbeztir í þessum jeppamálum öllum og kaninn sé fæðingarhálviti.

Re: 44" breyting á patrol

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hérna, hvernig er það, er 89 patrolinn kominn á gorma eða var þetta ennþá gamla tunnustafamanndrápstólið?

Re: 44" breyting á patrol

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Nauts, ég á sko EKKI patrol.

Re: 44" breyting á patrol

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
shit þetta var nú meira bullið í mér. Svona er þetta, eftir að hafa brotið eitt lok á vatnslás, einn hjörulið, einn pinnbolta til að festa lok á vatnslás og skallað hásingu í þokkabót (og allt þetta í dag) er ekki nokkur furða að mig minnti að verið væri að tala um 38“ en ekki 44” dekk :-)

Re: 44" breyting á patrol

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
19" felgur????

Re: Afhverju?

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
1 lítri = 1000 kúbik og passaðu þig á því að það er ekki það sama og kúbiktomma, t.d. eru 350 kúbiktommur það sama og 5,7 lítrar.

Re: Smájeppar (start a flamewar!)

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Jeep Wrangler! Nákvæmlega ekkert mál að breyta þessu fyrir 33-35" dekk, gríðarlega skemmtilegt að keyra þetta og svo ég tali nú ekki um að taka toppinn af!

Re: 44" breyting á patrol

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Í hvaða sólkerfi skilaði 3.3 máttlaus afli?

Re: leiktæki

í Jeppar fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Þessi rafmagnslás (http://traction.eaton.com/prod1.htm) mun vera alveg þrusugóður miðað við það sem ég hef lesið um hann á netinu. Þetta er ekki sama draslið og fylgir með Toyotu og öllum þessum grjónadollum. Þarna ertu heldur ekki með þessar helv… loftleiðslur og loftleka inni í hásingu

Re: leiktæki

í Jeppar fyrir 20 árum, 12 mánuðum
pfff af hverju loftlás þegar þú getur fengið rafmagnslæsingu sem er sterkari ef eitthvað er… Svo myndi ég hafa Dana 60 til að geta stokkið eitthvað, helst fljótandi þá. Síðan væri boddýið og framendinn úr trefjaplasti, heill framendi sem maður gæti kippt af. Góð veltigrind og þá er draumabíllinn kominn!

Re: drífur

í Jeppar fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Ég er með Wrangler á 38" , það þarf rétt að hleypa aðeins úr dekkjunum og hann fer allt.

Re: Hryllileg meðferð á dýrum

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Ef ykkur finnst þetta ógeðslegt þá er það bara djöfuls kellingaskapur. Ég hef unnið við þetta og sé því miður alls ekki hvað er svona hryllilegt við þetta. Ykkur væri nær að spá í hvað er að gerast í fangelsum víðs vegar um heiminn, t.d. í Bandaríkjunum heldur en einhverjum kvikindum sem eru ræktuð til matar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok