Ég er ekki viss um að jeppapróf hafi nokkuð að segja.
Þá þyrfti í raun miklu fleiri próf, því ég tel að það sé meiri ábyrgðarhluti að segja nýprófista á bak við stýrið á 300 hrossa sportbíl en 38" grútarbrennara.
Gröfur eru allt önnur tæki en jeppar, og þarf sérstök vinnuvélaréttindi á þær. Fæstar þeirra geta haldið þeim hraða sem telst eðlilegt að almenn umferð haldi, og eiga því ekkert sérstaklega vel heima meðal almennrar umferðar.
Það eru hinsvegar til svoleiðis tæki (var fyrir aftan eitt á 90 km hraða á Vesturlandsvegi) og í raun sé ég lítið að því að það sé innan um almenna umferð, svo framarlega að það uppfylli allar þær kröfur sem gerðar eru til ökutækja á vegum úti.
Persónulega finnst mér mikil sjónmengun af mörgum litlum fólksbílum á götunum. Þessar innkaupakerrur eru flestar komnar með það sem allar innkaupakerrur verða að hafa, stórt handfang að aftan (sem þeir kalla spoiler).
Þó þeir fari stundum í taugarnar á mér (og þetta séu þeir ökumenn sem helst svína á manni) þá hef ég engan rétt til að heimta að þeir verði bannaðir, bara af því að þeir fara í mínar fínustu.
Það sama á við um jeppana, þeir fara í taugarnar á mörgum, ekki endilega af því að þeir eru eitthvað hættulegri en aðrir (sbr. Orion könnun) heldur af því bara.
JHG