Nú er svo komið fyrir mér að ég var að tala við mann sem að var að gera við bílinn minn og hann færði mér þær slæmu fréttir að grindin væri orðin svo skemmd af ryði að ekki borgaði sig að gera við hann. Bíllinn á ca. 6 mánuði eftir ólifaða.
Ég vil ekki sjá neitt nýrra en '86 og helst vil ég amerískt.
Svona til þess að gefa hugmynd um hvernig bíl ég er að leyta að þá er ég mjög hrifinn af þessum.
Það sem ég er að spá er hvort einhver mæli með skemmtilegum bílum í þessum dúr annars vegar og hins vegar hvort einhver hafi reynslu af því að versla bíla að utan ef ég skyldi fara út í það.